Sigmundur Davíð gagnrýnir RÚV fyrir fréttaflutning af flokksþingi

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist sann­ar­lega vera til í flokks­þing hvenær sem er. Það sé hins vegar álita­mál hvort það henti flokknum að verja kröftum og fjár­magni í flokks­þing rétt fyrir kosn­ingar. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hans.

Sig­mundur birtir mynd þar sem klipptar hafa verið saman fréttir af vef RÚV um flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins, og reyndar ein frétt um flokks­þing Demókra­ta­flokks­ins í Banda­ríkj­unum. Hann segir einnig að sumir virð­ist hafa fengið stór­kost­legan áhuga á funda­dag­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins, og nefnir beina útsend­ingu RÚV frá fund­ar­stað fram­sókn­ar­manna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, en þeir kusu á kjör­dæm­is­þingi í gær með því að halda flokks­þing í flokknum fyrir kosn­ingar. Á slíku flokks­þingi yrði kosið um for­ystu flokks­ins.

Sig­mundur Davíð segir að kjör­dæm­is­þingin hjá flokknum séu haldin til að taka ákvörðun um val á aðferð við röðun á fram­boðs­lista. „Líklega hefur aldrei verið eins mik­ill áhugi á því að vita hvaða aðferði yrði valin fyrir val á fram­boðs­lista hjá nokkrum flokki. Reyndar kom á dag­inn að athyglin sner­ist fyrst og fremst (eða ein­göngu) um ein­stakan áhuga á því hvort Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi halda flokks­þing. Þó eru nokkrar vikur frá því að boðað var til mið­stjórn­ar­fundar einmitt til að boða flokks­þing. Mið­stjórn mun taka málið fyrir og velja dag­setn­ingu út frá því sem hentar flokknum best,“ skrifar hann.

Hann segir jafn­framt að stundum læð­ist að honum sá grunur að „sér­stakir áhuga­menn um flokks­þing utan flokks­ins séu áhuga­sam­ari um eitt­hvað annað“ en það að fara yfir „hina geysi­sterku mál­efna­stöðu“ flokks­ins og hvernig sé hægt að vinna nýja sigra.

Sumir virð­ist gefa í skyn að það sé betra fyrir hann að hafa flokks­þing eftir kosn­ingar en fyrir þær. „Það ber ekki endi­lega vott um mik­inn póli­tískan skiln­ing. Aug­ljós­lega er best fyrir for­mann sem mæti málið ein­ungis út frá eigin stöðu að halda flokks­þing fyrir kosn­ingar og fara í kosn­inga­bar­áttu með nýend­ur­nýjað umboð fremur en að fara í kosn­ingar (sér­stak­lega í miklu óvissu­á­standi eins og núna) og mæta svo á flokks­þing í fram­hald­inu. Það á alveg sér­stak­lega við þegar annað for­ystu­fólk í sama flokki hefur gefið fyr­ir­heit um að það ætli ekki að fara gegn for­mann­inum.“

Það sé hins vegar meira álita­mál hvort það henti flokknum að verja kröftum og fjár­magni í flokks­þing fyrir kosn­ingar, „sér­stak­lega ef grunur reyn­ist réttur um það að áhuga­fólk um flokks­þing utan flokks hafi tak­mark­aðan áhuga á árangri og mál­efna­vinnu flokks­ins.“

Sig­mundur Davíð lýkur svo færsl­unni á því að spyrja hvernig und­ir­bún­ingur flokks­þinga og lands­funda í öðrum flokkum gangi. „Ætli það verði ekki farið yfir það í beinni í fréttum í kvöld og næstu daga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár