Hyggst opna nýja greiðslumiðlun á næsta ári

Ingi Rafn Sig­urðs­son, stofn­andi Karolina Fund, stefnir að því að setja íslensku greiðslu­miðl­un­ina Alein Pay á markað á næsta ári. Núna leitar hann að rekstr­ar­að­ilum til að taka þátt í þróun verk­efn­is­ins.

Ingi Rafn Sigurðsson, stofnandi Alein Pay.
Ingi Rafn Sig­urðs­son, stofn­andi Alein Pay. Mynd: Aðsend

Nýtt íslenskt greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæki, Alein Pay, verður sett á markað fyrir almenna notkun á næsta ári. Þetta segir Ingi Rafn Sig­urðs­son, stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins í sam­tali við Kjarnann. Samkvæmt Inga mun fyr­ir­tækið bjóða upp á sjálf­virkar greiðslur sem geta ein­faldað bók­hald og minnkað áhættu í rekstri, en hann segir að íslensk fyr­ir­tæki sem séu til í að taka þátt í þróun verk­efn­is­ins geti nú prófað greiðslu­miðl­un­ina.

Embættismenn með áhyggjur af erlendu eignarhaldi

Líkt og Morg­un­blaðið greindi frá í síð­ustu viku hafa emb­ætt­is­menn innan Seðla­banka Íslands, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins viðrað áhyggjur sínar af mik­illi sam­þjöppun á sviði greiðslu­miðl­unar og sölu Arion banka og Íslands­banka á slíkum fyr­ir­tækjum til erlendra aðila.

Samkvæmt blað­inu hefur þjóðar­ör­ygg­is­ráð fundað fjórum sinnum um stöð­una og til hvaða aðgerða sé rétt að grípa. Gunnar Jak­obs­son, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­bank­ans, sagði í við­tali við blaðið að bank­inn ynni að upp­bygg­ingu inn­lendrar og óháðrar smá­greiðslu­lausnar fyrir íslensk fyr­ir­tæki.

Færslur til birgja og leigusala í rauntíma

Ingi, sem er einnig stofn­andi hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unnar Karolina Fund, segir Alein Pay bjóða upp á að hluti hverrar greiðslu sem á sér stað hjá rekstr­ar­að­ilum fari sjálf­virkt til birgja eða leigu­sala í raun­tíma, í stað þess að þær séu greiddar mán­að­ar­lega. Með þessu segir Ingi að þrösk­uld­ur­inn fyrir því að reka fyr­ir­tæki lækki, þar sem minni hætta sé á að kröfu­hafar þeirra fái ekki greitt.

Samkvæmt Inga verða greiðslu­posar einnig óþarfir í nýja kerf­inu, þar sem hægt verði að hlaða því niður í sím­anum. Kvitt­anir geta svo verið sendar til greið­enda í gegnum tölvu­póst.

Þróun verk­efn­is­ins hefur staðið yfir síð­ustu miss­erin með stuðn­ingi frá Rannís. „Við setjum Alein á markað fyrir almenna notkun á næsta ári,“ segir Ingi Rafn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár