Félagsleg og efnahagsleg vandamál fylgi brottfalli drengja

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, segir að taka þurfi brott­fall drengja úr skóla­kerf­inu og af vinnu­mark­aði alvar­lega.

Af þeim 1.692 sem braut­skráð­ust úr grunn­námi í Háskóla Íslands í fyrra voru 1.108 konur og 584 karlar. Tveir þriðju konur og einn þriðji karlar.

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði og nefnd­ar­maður í pen­inga­nefnd Seðla­banka Íslands, gerir þessa stöðu að umtals­efni í grein í Vís­bend­ingu, sem kom til áskrif­enda í dag, sem ber heitið; Hvar eru drengirnir?

Í grein­inni fjallar hann meðal ann­ars um brott­fall drengja úr skóla­kerf­inu, og segir að þetta mál sé engan vegin ein­skorðað við Ísland. Hins vegar komi frá bæði félags­leg og efna­hags­leg vanda­mál sem þurfi að taka alvar­lega. „Brott­fall og slak­ari náms­ár­angur drengja ein­skorð­ast engan veg­inn við Ísland. Hins vegar felst í því félags­legt og efna­hags­legt vanda­mál fyrir Ísland. Það hlýtur að telj­ast órétt­læti að vel­gengni nýfædds Íslend­ings í námi ráð­ist að veru­legu leyti af því hvort hann sé klæddur bláum eða bleikum fötum á fæð­ing­ar­deild­inni. Það er því mik­il­vægt að greina ástæður þeirrar þró­unar sem hér hefur verið lýst og gera kerf­is­breyt­ingar þannig að bæði karlar og konur fái þrif­ist í sam­fé­lagi okkar.

Við getum velt fyrir okkur nokkrum hugs­an­legum skýr­ingum á brott­falli drengja en þær eru ein­ungis vanga­veltur þangað til að orsakir hafa verið kann­aðar og rann­sak­aðar. Mögulegt er að sú stað­reynd að kenn­ara­stéttin er kvenna­stétt (fimm­fallt fleiri konur braut­skráð­ust með kenn­ara­menntun árið 2013!) verði til þess að drengjum skorti fyr­ir­myndir í skól­anum. Drengir á tán­ings­aldri þurfa á jákvæðum fyr­ir­myndum að halda og ekki ljóst hvert þeir eigi að sækja þær. Kannski eru það frægir knatt­spyrnu­menn eða svo­kall­aðir „jút­úbarar“ sem halda ein­ræður á „youtube“. Einnig er mögu­legt er að drengir þurfi meiri aga en stúlkur í námi og hann skorti í núver­andi kerfi,“ segir Gylfi meðal ann­ars í grein sinni.

Hann fjallar einnig um málin frá öðrum hliðum, dregur fram hag­tölur máli sínu til stuðn­ings, og spyr hvað sé til ráða, til að hægt sé að virkja drengi og karla betur í sam­fé­lag­inu.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár