Sumarbústaðir hækka um tæp 40 prósent milli ára

Sum­ar­bú­staðir hækka veru­lega í verði milli ára, en verð­mætasta sum­ar­bú­staða­landið er á Þing­völlum. Af bæj­ar­fé­lögum er mest hækkun fast­eigna­mats á Húsavík.

Húsavík er það bæjarfélag þar sem fasteignamatið hækkar mest.
Húsavík er það bæj­ar­fé­lag þar sem fast­eigna­matið hækkar mest.

Heild­ar­verð­mæti sum­ar­bú­staða og sum­ar­bú­staða­lóða á Íslandi er 231 millj­arður króna, sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati fyrir árið 2018. Það er 38,7 pró­senta hækkun milli ára. Þjóðskrá Íslands hefur kynnt nýtt fast­eigna­mat alls hús­næðis á Íslandi fyrir næsta ár.

Þjóðskrá tók í þetta skipti upp nýja aðferða­fræði fyrir útreikn­inga sína á sum­ar­bú­stöðum, en það er sams konar aðferða­fræði og búið er að taka upp fyrir íbúð­ar­eignir og versl­unar- og skrif­stofu­hús­næði. Nýja aðferðin bygg­ist á þing­lýstum kaup­samn­ingum.

Alls eru 19.372 sum­ar­bú­staðir á land­inu. Núver­andi fast­eigna­mat þess­ara eigna hljóðar upp á 167 millj­arða en matið fyrir næsta ár er 231 millj­arður króna, sem er sem fyrr segir 38,7 pró­sent. Níu af hverjum tíu sum­ar­bú­stöðum hækka í mati milli ára en einn af hverjum tíu lækkar. Það eru miklar breyt­ingar eftir svæðum, en algeng­asta hækk­unin er 39,7 pró­sent. 70 pró­sent þess­ara eigna hækka um innan við fjórar millj­ónir og 80 pró­sent innan við sex millj­ónir, þrátt fyrir að breyt­ing­arnar séu miklar í pró­sentum talið.

Þing­vellir eru dýrasta sum­ar­bú­staða­svæði lands­ins sam­kvæmt nýja fast­eigna­mat­inu, þar á eftir kemur Kiðja­berg og svæðið við Álfta­vatn. Sum­ar­húsa­byggðir á Suð­ur­landi eru þær verð­mæt­ustu, en það sem ræður miklu um verð­mæti sum­ar­bú­staða er stað­setn­ingin. Fjarlægð frá golf­völlum, háspennu­línum og nálægð við vatn eru meðal þess sem tekið er til­lit til í mat­inu.

Mest hækkun á Húsavík

Heild­ar­fast­eigna­mat fast­eigna á Íslandi hækkar um 13,8 pró­sent frá árinu í ár, og verður 7.288 millj­arðar króna. Íbúð­ar­hús­næði hækkar mikið á milli ára, eða um 15,5 pró­sent heilt yfir. Það verður tæp­lega 5.000 millj­arðar króna, 4.980 millj­arðar, en 130.346 íbúð­ar­ein­ingar eru á Íslandi sam­kvæmt Þjóðskrá.

Nú er svo komið að íbúðir í sér­býli hækka meira heldur en íbúðir í fjöl­býli, þó ekki muni mjög miklu. Sérbýli hækka um 15,8 pró­sen á meðan fjöl­býli hækka um 15,2 pró­sent. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er mun­ur­inn þó meiri, þar sem sér­býli hækka um 17,5 pró­sent en fjöl­býli um 15,4 pró­sent. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er meiri hækkun í fjöl­býli, 13,7 pró­sent sam­an­borið við 12,2 pró­sent í sér­býli.

Húsavík sker sig úr öðrum bæjum á land­inu, en þar hækkar íbúða­mat um 42,2 pró­sent milli ára.

Heild­ar­fast­eigna­mat á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkar um 14,5%, um 12,5% á Suð­ur­nesjum, um 14% á Vest­ur­landi, 8,6% á Vest­fjörðum, 12,2% á Norð­ur­landi vestra, 12,4% á Norð­ur­landi eystra, 6,4% á Aust­ur­landi og um 12,9% á Suð­ur­landi.

Fast­eigna­mat hækkar mest í Kjós­ar­hreppi eða um 41,3%, um 27,5% í Norð­ur­þingi, um 25,9% í Reyk­hóla­hreppi og 25,2% í Skorra­dals­hreppi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár