Gefa sér 20 ár til að kolefnisjafna að fullu íslenska nautgriparækt

Full­trúar Bænda­sam­taka Íslands og stjórn­valda hafa sam­þykkt stefnu þess efnis að allar afurðir frá íslenskum naut­gripa­bændum verði vott­aðar sem kolefn­is­hlut­lausar fyrir árið 2040.

Full­trúar Bænda­sam­taka Íslands og stjórn­valda hafa skrifað undir sam­komu­lag um að stefna að því að íslensk naut­gripa­rækt verði að fullu kolefn­is­jöfnuð árið 2040. Ráð­stafað verður nærri þriðj­ungi af því fjár­magni sem stjórn­völd veita grein­inni til fram­leiðslu­jafn­vægis til aðgerða sem draga úr kolefn­is­fótspori naut­gripa­ræktar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins.

Losaði 650 kílótonn af koltvísýring

[links]Ræktun á naut­gripum til kjöt- og mjólk­ur­fram­leiðslu á langstærstan þátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í búfjár­rækt í heim­in­um ­sam­kvæmt skýrslu FAO, Mat­væla- og land­bún­að­ar­­­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna. Áætluð losun naut­gripa er ríf­lega 5 millj­arðar tonna í koltví­sýr­ingsí­gild­um, eða rúm 65 pró­sent af árlegri losun allra gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í búfjár­rækt í heim­in­um.

Í skýrsl­unni er greint frá því hvernig draga má úr losun gróð­ur­húsa­­loft­teg­unda í búfjár­rækt með því að draga úr fram­leiðslu og neyslu búfjár­af­urða eða með því að draga úr losun við fram­leiðsl­una. Talið er að með því að breyta fram­leiðslu­ferli búfjár­ræktar megi draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í grein­inni um allt að 30 pró­sent eða um 1,8 millj­arða tonna koltví­sýr­ingsí­gilda.

Í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum kemur fram að 21 pró­sent allra þeirra los­unar sem íslensk stjórn­völd bera beina ábyrgð á, sam­kvæmt alþjóð­legum skuld­bind­ing­um, kemur frá land­bún­aði. Í tölum Hag­stof­unnar má jafn­framt sjá að land­bún­aður og mat­væla­fram­leiðsla hér á landi los­uðu 649,6 kílótonn af koltví­sýr­ing út í umhverfi árið 2017.

Allar afurðir verði vottaðar sem kolefnishlutlausar 

Sam­komu­lagið sem und­ir­ritað var í síð­ustu viku, er hluti af end­ur­skoðun á samn­ingi um starfs­skil­yrði naut­gripa­ræktar. Í sam­komu­lag­inu kemur fram að stjórn­völd og full­trúar bænda séu sam­mála um stefna að því að naut­gripa­rækt verði að fullu kolefn­is­jöfnuð eftir 20 ár, árið 2040.

Samkvæmt sam­komu­lag­inu verður mark­mið­inu náð með því að auka enn frekar þekk­ingu bænda á sínu landi og um leið efla getu þeirra til að auka bind­ingu kolefnis á því og draga úr losun. Auka þurfi því rann­sóknir, ráð­gjöf og fræðslu fyrir bændur.

Auk þess verði unnið að því að draga úr losun og binda kolefni með bættri fóðrun, með­höndlun og nýt­ingu búfjár­á­burðar, mark­vissri jarð­rækt og öðrum þeim aðgerðum er miða að því að kolefn­is­jafna búskap.

Jafn­framt kemur fram í sam­komu­lag­inu að inn­leiða þurfi fjár­hags­lega hvata fyrir bændur til að ná árangri í að auka bind­ingu. Því verður heim­ilt að nýta 30 pró­sent af því fjár­magni sem veitt er til fram­leiðslu­jafn­vægis til verk­efna að draga úr kolefn­is­fótspori naut­gripa­ræktar.

Ef mark­mið­inu verður náð þá verða allar afurðir frá íslenskum naut­gripa­bændum vott­aðar sem kolefn­is­hlut­lausar fyrir árið 2040.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár