Farið að leka úr öðrum tanki El Grillo

Svo virð­ist sem farið sé að leka úr öðrum olíu­tanki í flaki El Grillo en þeim sem lak í vor. Umhverf­is­stofnun og Land­helg­is­gæslan eru að meta næstu skref.

El Grillo var sökkt í Seyðisfirði í síðari heimsstyrjöldinni
El Grillo var sökkt í Seyð­is­firði í síð­ari heims­styrj­öld­inni Mynd: Af vefnum East.is

Kafarar á vegum Land­helg­is­gæslu Íslands köf­uðu niður að flaki El Grillo þann 16. Júlí eftir að vart varð við olíu­mengun frá skip­inu. Flakið liggur á botni Seyð­is­fjarðar. Í ljós kom að aðgerðir sem farið var í til að hefta olíu­leka úr einum af tönkum skips­ins í vor halda og er eng­inn leki sjá­an­legur frá þeim tanki.

Hins vegar virð­ist sem farið sé að leka úr öðrum tanki sem stað­settur er undir brú skips­ins. Lekinn kemur frá mann­opi sem er framan við brúna en drasl og set á dekki heftir aðgengi að þeim tanki, segir í til­kynn­ingu land­helg­is­gæsl­unnar og Umhverf­is­stofn­unar um málið. Sjáv­ar­hiti er hár á þessum árs­tíma sem getur orsakað auk­inn leka. Ekki er um mik­inn leka að ræða.

Umhverf­is­stofnun og Land­helg­is­gæslan eru að meta næstu skref og mögu­legar aðgerðir til að stöðva lek­ann.

[adspot]

El Grillo var 10 þús­und lesta olíu­birgða­skip banda­manna í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Þrjár þýskar flug­vélar gerðu sprengju­árás á skipið 10. febr­úar árið 1944 er það var statt á Seyð­is­firði.

Flug­vél­arnar vörp­uðu sprengjum á skipið og hæfði ein þeirra skut­inn svo það sökk að hálfu leyti. Áhöfnin sem í voru 48 menn slapp, en skip­verjar á skip­inu skutu á móti við árás­ina. Eftir árás­ina var skipið svo laskað að Bretar ákváðu að sökkva því, þó mikið magn olíu væri enn um borð.

Skipið var vel vopnum búið, með tvær fall­byssur, fjórar loft­varna­byssur og fjórar rak­ettu­byssur. Eins voru djúp­sprengjur um borð, segir í umfjöllun um það á Wikipedia.

Flakið er 134 metra langt og liggur á 50 metra dýpi í miðjum Seyð­is­firði, rétt utan hafn­ar­innar. Olíu­meng­unar hefur orðið vart öðru hverju á Seyð­is­firði allt frá því að skipið sökk. Árið 1952 dældu Olíu­fé­lagið og Hamar 4.500 lítrum af olíu úr El Grillo. Í upp­hafi ald­ar­innar var svo ráð­ist í viða­miklar hreins­un­ar­að­gerðir til að ná sem mestu af olí­unni sem enn var í skips­flak­inu. Magnið reynd­ist vera 91 tonn, að því er fram kemur á vef stjórn­ar­ráðs­ins, sem var mun minna en það sem menn ótt­uð­ust að gæti verið þar að finna.

Árið 1983 vann Land­helg­is­gæslan í sam­starfi við varn­ar­liðið á Kefla­vík­ur­flug­velli við könnun á djúp­sprengjum í flak­inu, segir enn fremur í sam­an­tekt á Wikipedia. Þá voru teknar upp þrjár djúp­sprengjur sem fluttar voru yfir í Loð­mund­ar­fjörð þar sem þær voru sprengdar á sjö metra dýpi. Á tíma­bil­inu frá 1972-2006 hafa yfir 500 sprengjur verið fjar­lægðar úr því. Einni fall­byss­unni hefur einnig verið lyft upp og er hún nú minn­is­varði á Seyð­is­firði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár