Vilja gera óperuna aðgengilega fyrir Íslendinga

Kamm­eróperan ætlar að flytja meist­ar­verkið Così fan tutte eftir Mozart íslensku á óperu­kvöld­verði í Iðnó. Safnað er fyrir verk­efn­inu á Karolina fund.

Kamm­eróperan er nýstofnað tón­list­ar­fé­lag á Íslandi. Markmið Kamm­eróp­er­unnar er að skapa vett­vang fyrir smærri óperu­verk­efni, gera upp­lifun áhorf­enda óform­legri en tíðkast hefur og óperu aðgengi­legri. Stofn­endur Kamm­eróp­er­unnar eru Eggert Reginn Kjart­ans­son tenór, Jóna G. Kol­brún­ar­dóttir sópran, Kristín Sveins­dóttir mezzósópran, Unn­steinn Árnason bassi. Þau byrj­uðu ung að koma fram saman í Lang­holts­kirkju undir stjórn Jóns Stef­áns­sonar og síðan lá leið þeirra allra til Vín­ar­borgar í söng­nám. Nú eru þau öll búsett hér­lendis eftir nám og vilja þau taka virkan þátt í að efla óperu­list­formið á Íslandi.

Jóna segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi kviknað vegna þess að hóp­ur­inn vildi gera óper­una aðgengi­lega fyrir Íslend­inga. „Okkur lang­aði til að brjóta upp klass­íska formið þar sem áhorf­endur sitja í þrjár klukku­stundir og reyna sitt besta að halda þræð­inum í óperu sem er á fram­andi tungu­máli. Þess vegna ætlum við flytja þetta meist­ara­verk í íslenskri þýð­ingu og einnig stytta verkið örlítið svo áheyr­endur geti notið sýn­ing­ar­innar til fulls. Hug­myndin að bjóða fólki í óperu­kvöld­verð kom svo í fram­haldið. Öll erum við miklir mat­gæð­ingar og hugs­uðum með okkur hvort það væri ekki skemmti­legt að bæta í upp­lifun­ina með þriggja rétta mál­tíð sem við svo tvinnum inn í sýn­ing­una sjálfa. Þegar hug­myndin var komin þá datt okkur eng­inn staður annar í hug en Iðnó. Passar full­kom­lega við stemn­ing­una sem við viljum mynda og skemmti­legt að syngja og leika í svona miklu návígi við áheyr­endur. Við ákváðum að Cosi fan tutte eftir Mozart væri hin full­komna ópera fyrir þetta verk­efni. Sögu­þráður óper­unnar er bæði léttur og skemmti­legur og þó drama­tíkin sé vissu­lega til staðar í óper­unni þá er hún full af húmor. Tón­listin er snilld­ar­lega samin og hentar afar vel fyrir unga söngv­ara.“

Tímavél sem flytur áhorfendur til Reykjavíkur í byrjun 20. aldar

Hún segir ekk­ert þema ein­kenna verk­efnið utan þess að óperu­flutn­ingur er í for­grunni. Fólk megi búast við skemmti­legri og eft­ir­minni­legri óperu­upp­lifun fyrir gesti. „Þegar áheyr­endur mæta í Iðnó stíga þau inn í tíma­vél sem flytur þau til Reykja­víkur í byrjun 20. aldar. Flytj­endur eru í hlut­verkum stað­ar­hald­ara Iðnó, þjóna til borðs og leika í kringum áheyr­endur sem njóta matar, drykkjar, söngs og hljóð­færa­leiks fram eftir kvöldi.“

[adspot]Fyrir þá sem eru ókunnir verk­inu þá er Così fan tutte ein þekktasta og vin­sælasta ópera Mozarts. Óperan fjallar um tvo vini, Gugli­elmo og Ferrando sem fara í veð­mál við Don Alfonso sem er eldri og þyk­ist vitr­ari. Don Alfonso telur að allar konur séu ótrúar, eða að allar konur séu eins (líkt og tit­ill­inn, Cosi fan tutte, gefur til kynna). Þeir ákveða að dul­búa sig og sanna það fyrir Don Alfonso að þeirra kærustur Fior­diligi og Dora­bella séu vissu­lega trúar sama hvað. Þetta hefur í för með sér skemmti­lega og fyndna atburða­rás sem endar með ósköpum.

Vilja láta óperulistformið blómstra

Að sögn Jónu er um að ræða fyrsta stóra verk­efnið sem Kamm­eróperan skipu­leggur og mikil spenna er hjá hópnum vegna þessa. „Við von­umst til að sjá sem flesta á sýn­ing­unum 26. og 27. októ­ber og er þetta kjörin sýn­ing bæði fyrir óperu­unn­endur en einnig fyrir þá sem aldrei hafa farið á óperu.

Við viljum láta óperu­list­formið blómstra enn frekar hér­lendis. Stétt óperu­söngv­ara hefur staðið í ströngu und­an­farin ár og er þá enn mik­il­væg­ara að skapa verk­efni sem bæði vekur áhuga fólks á óperum en einnig sem veitir klass­ískum söngv­urum tekjur í sinni starfs­grein. “

Þeir sem koma að sýn­ing­unni eru Bjarni Thor Krist­ins­son sem leik­stýrir henni og Gísli Jóhann Grét­ars­son er hljóm­sveit­ar­stjóri. Söngv­arar eru Unn­steinn Árnason sem Gugli­elmo, Eggert Reginn Kjart­ans­son sem Ferrando, Kristín Sveins­dóttir sem Dora­bella, Lilja Guð­munds­dóttir sem Fior­diligi, Jón Svavar Jós­efs­son sem Don Alfonso og Jóna sýngur sjálf hlut­verk Despinu.

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár