Uppboð aflaheimilda skilaði árangri í annarri tilraun Namibíumanna

Önnur til­raun stjórn­valda í Namibíu til þess að bjóða upp afla­heim­ildir heppn­að­ist og skil­aði jafn­virði tæp­lega 3,5 millj­arða króna í rík­is­sjóð. Fjár­mála­ráð­herra lands­ins segir stjórn­ina sann­færða um að upp­boð séu rétta leiðin til að úthluta kvót­anum.

Frá Windhoek, höfuðborg Namibíu.
Frá Windhoek, höf­uð­borg Namibíu. Mynd: Pexels

Fjár­mála­ráð­herra Namibíu, Iipumbu Shiimi, segir að rík­is­stjórn lands­ins sé sann­færð um að upp­boð á kvóta verði áfram rétta fyr­ir­komu­lagið til þess að úthluta kvóta til tekju­öfl­unar fyrir rík­is­sjóð lands­ins.

Hann tjáð namibíska þing­inu í vik­unni að í nýlegum upp­boðum á alls rúm­lega hund­rað þús­und tonnum af kvóta í þremur fisk­teg­undum hefðu alls feng­ist 408 millj­ónir namibískra dala, jafn­virði tæp­lega 3,5 millj­arða íslenskra króna, fyrir tíma­bundin afnot afla­heim­ilda.

Frá þessu segir í fréttum miðl­anna Namibian Sun og The Namibian, en athygli vakti fyrir rúmu ári síðan er fyrsta til­raun stjórn­valda í Namibíu til þess að standa fyrir upp­boði á afla­heim­ildum fór gjör­sam­lega í vaskinn og skil­aði sára­litlum tekjum.[links]

Uppboðið átti að vera leið til auk­ins gagn­sæis varð­andi úthlutun afla­heim­ilda til tekju­öfl­unar fyrir rík­is­sjóð, eftir að Fishrot-skandall­inn, eða mál Samherja í Namibíu, kom upp á yfir­borðið.

Klúðrið í fyrra upp­boði fólst í því að nær allir þeir aðilar sem buðu í afla­heim­ild­irnar reynd­ust tóm­hentir þegar á hólm­inn var komið og komið var að því að greiða fyrir þær – og skildu rík­is­stjórn­ina eftir með „egg á and­lit­inu“, eins og það var orðað í umfjöllun The Namibian.

Komist var hjá þessum vanda nú með því að inn­heimta trygg­ingafé af þeim aðilum sem buðu í kvót­ann.

Ríkisstjórn Kongó tók rúm 27 þúsund tonn

Alls voru boðnar upp afla­heim­ildir fyrir 15.948 tonn af lýs­ingi, 87.500 tonn af hrossa­makríl og 392 tonn af skötu­sel á upp­boðum sem fóru fram frá því í júní og fram í lok ágúst, sam­kvæmt orðum ráð­herr­ans.

[adspot]

Ekki tókst þó að selja allan hrossa­makríl­kvót­ann á upp­boði til inn­lendra aðila, en samn­ingar náð­ust við rík­is­stjórn Lýð­stjórn­ar­lýð­veld­is­ins Kongó um að kaupa þann 27.300 tonna kvóta sem út af stóð fyrir 85,7 millj­ónir namibískra dala.

Samkvæmt frétt namibíska blaðs­ins New Era frá því í sept­em­ber var ekki full sátt með söl­una á kvót­anum til Kongómanna hjá aðilum í namibískum sjáv­ar­út­vegi, en þó var búist við því að namibísk fyr­ir­tæki yrðu fengin til að veiða afl­ann, þrátt fyrir að honum yrði síðan landað í hafn­ar­borg­inni Matadi í Kongó.

„Ágóðinn af upp­boð­unum mun renna til for­gangs­verk­efna stjórn­valda, sér­stak­lega í heil­brigð­is­geir­anum, sem þarf á auknum fjár­munum að halda til að glíma við COVID-19,“ sagði ráð­herr­ann þing­inu.

Fréttin hefur verið upp­færð: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar var því rang­lega haldið fram, vegna villu í útreikn­ingum blaða­manns, að rík­is­stjórn Kongó hefði keypt hrossa­makríl­skvóta á því verði sem var með­al­verð á þeim upp­boðum sem namibísk stjórn­völd stóðu fyrir. Hið rétta er að Kongómenn greiddu hærra verð en fékkst í upp­boð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár