FME dregur skýra línu í sandinn varðandi meðferð innherjaupplýsinga

Fjár­mála­eft­ir­litið telur ekki hafa verið farið rétt með inn­herj­a­upp­lýs­ingar varð­andi rekstur Eim­skipa­fé­lags­ins, og því var félagið sektað. Félagið mót­mælir þessu og ætlar að láta reyna á rétt sinn fyrir dómi.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur lagt 50 millj­óna stjórn­valds­sekt á Eim­skipa­fé­lag Íslands fyrir að birta ekki inn­herj­a­upp­lýs­ingar úr rekstri félags­ins nægi­lega snemma.

Hinn 8. mars 2017 tók stjórn FME þessa ákvörðun á Eim­skipa­fé­lag Ísland hf. (Eimskip) vegna brots gegn 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007 um verð­bréfa­við­skipti. „Brotið fólst í því að Eimskip birti ekki inn­herj­a­upp­lýs­ingar, sem lágu fyrir þann 20. maí 2016, um mikið bætta rekstr­ar­af­komu félags­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi 2016, eins fljótt og auðið var og á jafn­ræð­is­grund­velli eða frestaði birt­ingu inn­herj­a­upp­lýs­ing­anna,“ segir í til­kynn­ingu FME.

Eimskip hefur hækkað um 36 pró­sent á und­an­förnu ári, í við­skiptum á mark­aði, og er mark­aðsvirði félags­ins nú tæp­lega 60 millj­arðar króna.

Allt í uppnám?

Óhætt er að segja að þessum tíð­indum hafi ekki verið vel tekið hjá Eimskip. Félagið segir þessa laga­túlkun FME setja í upp­nám hvernig staðið skuli að birt­ingu upp­lýs­inga í aðdrag­anda upp­gjöra á mark­aði. Eins og alltaf þegar skráður mark­aður er ann­ars vegar, þá er mikið í húfi. Grund­vall­ar­hug­myndin að baki því að halda úti skráðum mark­aði er sú að þátt­tak­endur hafi jafnan aðgang að upp­lýs­ingum.

Í til­kynn­ingu Eimskip segir að ef þessi nið­ur­staða FME eigi að vera leið­andi fyrir skráðan markað, þá sé skráðum félögum í raun gert ómögu­legt með að vinna að und­ir­bún­ingi fjár­hags­upp­gjara.

FME rök­styður nið­ur­stöðu sína með því að horfa sér­stak­lega til þess hvernig máls­at­vik voru í umrætt sinn.

Í lýs­ingu á máls­at­vikum segir að vinna við gerð árs­hluta­reikn­ings Eimskips fyrir fyrsta árs­fjórð­ung 2016, tíma­bilið 1. jan­úar til 31. mars (Q1), hafi haf­ist um miðjan maí og „lágu fyrstu drög fyrir þann 20. maí 2016 kl. 11:39,“ eins og orð­rétt segir í máls­at­vika­lýs­ing­unni.

Þá segir að drög hafi sýnt „mikið bætta rekstr­ar­af­komu Q1 2016, m.a. nam EBITDA 9,6 millj­ónum evra og jókst um 66,5% í sam­an­burði við Q1 2015“, og hagn­aður hafi numið 1,8 millj­ónum evra og jókst um 21,1 pró­sent í sam­an­burði við Q1 2015.

66,5 prósent hækkun

„Drögin breytt­ust óveru­lega fram að sam­þykkt stjórnar Eimskips á stjórn­ar­fundi þann 26. maí 2016. Þá fyrst var reglu­vörður Eimskips upp­lýstur um inni­hald upp­gjörs­ins og afkomutil­kynn­ingar sem inni­hélt upp­færða afkomu­spá. Þann sama dag var árs­hluta­reikn­ing­ur­inn ásamt afkomutil­kynn­ing­unni birtur í Kauphöll. Í fyr­ir­sögn til­kynn­ing­ar­innar kemur eft­ir­far­andi fram: „EBITDA jókst um 66,5% á fyrsta árs­fjórð­ungi 2016“ og „Afkomu­spá fyrir 2016 hækkuð í 49 til 53 millj­ónir evra.“ Þann 28. maí 2016 hafði verð hluta­bréfa félags­ins hækkað um 12,89% frá opnun mark­aða þann 26. maí 2016,“ segir FME.

FME tók til skoð­unar hvort inn­herj­a­upp­lýs­ingar hefðu mynd­ast við upp­gjörsvinnu Eimskips fyrir fyrsta árs­fjórð­ung 2016 sem bar að birta eins fljótt og auðið var „og á jafn­ræð­is­grund­velli, eða eftir atvikum fresta birt­ingu upp­lýs­ing­anna, í sam­ræmi við 1. og 4. mgr. 122. gr. Vvl.“

Undirbúningur uppgjara í uppnámi?

Eimskip heldur því fram að með þess­ari ákvörðun FME sé búið að setja und­ir­bún­ing upp­gjara í upp­nám. Í til­kynn­ingu félags­ins eru sér­stak­lega sett fram aðtriði sem félagið telur að sýni, að ákvörðun FME sé ekki í sam­ræmi við veru­leika skráðra félaga þegar kemur að upp­gjörum.

Þessar upp­lýs­ingar eru setta fram svona í til­kynn­ingu Eim­skipa­fé­lags­ins:

  • Birting árs­hluta­upp­gjörs er hluti reglu­legrar upp­lýs­inga­skyldu, en ekki ann­arrar atviks­bund­innar upp­lýs­inga­skyldu.
  • Fjár­hags­daga­tal árs­ins 2016 lá fyrir þegar í des­em­ber 2015, um birt­ing­ar­dag þann 26. maí 2016. Sá dagur var síðan stað­festur með til­kynn­ingu 18. maí 2016.
  • Félagið upp­lýsti í febr­úar 2016 að það gerði ráð fyrir bættri afkomu sam­an­borið við fyrra ár.
  • Und­ir­bún­ingur og birt­ing rekstr­ar­upp­gjöra skráðra félaga er háð ákveðnu reglu­bundnu ferli sem krefst aðkomu stjórn­enda, end­ur­skoð­un­ar­nefndar og stjórnar. End­an­legt sam­þykki árs­hluta­reikn­ings er í höndum stjórnar félags­ins og hann er ekki hægt að birta fyrr en slíkt sam­þykki liggur fyrir.
  • Ekki er hægt að líta ein­vörð­ungu til EBITDA fram­legðar heldur verður að horfa heild­stætt á afkomu félags­ins þegar árangur er met­inn.
  • Félaginu þykir skjóta skökku við að sekt­ar­fjár­hæðin, 50 millj­ónir króna, er hærri en nettó aukn­ing hagn­aðar milli fyrsta árs­fjórð­ungs 2015 og 2016, sem nam um 45,4 millj­ónum króna.
  • Félagið telur ekki rétt að bein­tengja breyt­ingar á verði hluta­bréfa félags­ins í kjöl­far upp­gjörs ein­vörð­ungu við bæt­ingu á EBITDA, þegar aðrir þættir geta haft verð­mót­andi áhrif, s.s. upp­færð afkomu­spá, til­kynn­ingar vegna fyr­ir­hug­aðs sam­starfs við Royal Arctic Line, fyr­ir­huguð fyr­ir­tækja­kaup á árinu, flot á bréfum félags­ins, almennar vænt­ingar á mark­aði o.fl.

Félagið telur að FME sé að ganga of langt, og ætlar að fara með málið fyrir dóm­stóla, þar sem tek­ist verður á um þessi mál.

FME segir hið meint broti varða upp­lýs­inga­skyldu útgef­anda á hluta­bréfa­mark­aði, en það var framið eftir gild­is­töku laga um breyt­ingar á laga­á­kvæðum um við­ur­lög við brotum á fjár­mála­mark­aði, þar sem fjár­hæð stjórn­valds­sekta var hækkuð umtals­vert auk þess sem heim­ilt er að miða fjár­hæð­ina við allt að 10 pró­sent af heild­ar­veltu lög­að­ila. „Litið er til for­dæma með hlið­sjón af fram­an­greindri laga­breyt­ingu. Auk þess er við ákvörðun sekt­ar­fjár­hæðar tekið mið af því að brotið var framið af gáleysi og félagið hefur ekki á síð­ustu fimm árum gerst brot­legt við ákvæði laga um verð­bréfa­við­skipti,“ segir FME.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár