Í forgangi að hækka fæðingarorlof

Stjórn­völd vilja hækka fæð­ing­ar­or­lof, en stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn leggur til leng­ingu. Starfs­hópur síð­asta ráð­herra vildi gera bæði, og inn­leiða frí­tekju­mark. Hækkun gagn­ast feðrum, en fæstum mæðrum.

Ný rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar vill leggja áherslu á það að hámarks­fjár­hæðir fæð­ing­ar­or­lofs verði hækk­aðar „í öruggum skrefum“ á næstu fjórum árum á meðan þing­menn VG hafa lagt fram frum­varp um leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs­ins í eitt ár.

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, ætlar að leggja fram frum­varp um hækkun á fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslum á þessu þingi. Hann hefur sagt að það sé for­gangs­mál að hækka greiðsl­urnar, en ekki lengja orlofið. Þegar hann var fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins lögð­ust sam­tökin gegn því að fæð­ing­ar­or­lofið yrði lengt í ár. Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurn um það hvort ráð­herr­ann sé mót­fall­inn leng­ingu á fæð­ing­ar­or­lofi, en ekki fengið svar við þeirri fyr­ir­spurn. Einnig var spurt um það hvaða upp­hæðir væru í spil­inu fyrir hámarks­greiðslur.

Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar kemur þó fram að vinna þurfi mark­visst að því að tryggja börnum leik­skóla- eða dag­vist þegar fæð­ing­ar­or­lofi sleppir, með sam­eig­in­legu átaki ríkis og sveit­ar­fé­laga. Ekki kemur fram með hvaða hætti þetta á að gera, né hvort stjórn­völd vilji þá að slík vistun yrði í boði frá níu mán­aða aldri.

Frumvarp félags­mála­ráð­herra á að líta dags­ins ljós í mars, en frum­varp frá þing­mönnum VG um leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs­ins var rætt í fyrstu umræðu á þing­inu í gær. Samkvæmt því myndi fæð­ing­ar­or­lof fara í tólf mán­uði í tveimur þrepum á árunum 2018 og 2019. Hvort for­eldri um sig myndi fá fimm mán­uði í orlof, og tveir mán­uðir yrðu sam­eig­in­legir og fólk gæti skipt þeim á milli sín. Þetta er í sam­ræmi við til­lögur starfs­hóps um fram­tíð­ar­stefnu í fæð­ing­ar­or­lofs­málum. Þingmenn VG vilja að hærra hlut­fall trygg­ing­ar­gjalds verði notað til að fjár­magna leng­ing­una, enda sé lengra fæð­ing­ar­or­lof mik­il­vægt vel­ferð­ar­mál ungra fjöl­skyldna. 

Ákveðið að hækka með reglugerð

Fæðingum hefur fækkað veru­lega á Íslandi und­an­farin ár. Til þess að við­halda mann­fjölda til langs tíma þarf hver kona að fæða 2,1 barn, en hlut­fallið hér á landi er farið niður fyrir 1,8 börn á hverja konu. Samkvæmt bráða­birgða­tölum frá heil­brigð­is­stofn­unum fædd­ust 3.877 börn í fyrra hér á landi, en árið 2015 voru þau 4.098 og 4.292 árið 2014.

Eygló Harð­ar­dóttir, þáver­andi félags­mála­ráð­herra, ákvað með reglu­gerð í októ­ber í fyrra að hámarks­greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi yrðu hækk­aðar í 500 þús­und krónur. Þetta var gert eftir að ljóst var að hún myndi ekki ná í gegn frum­varpi til breyt­inga á lögum um fæð­ing­ar­or­lof, sem byggði á til­lögum starfs­hóps­ins sem hún skip­aði árið 2014 til að móta fram­tíð­ar­stefnu stjórn­valda í þessum mál­um. Sam­kvæmt því frum­varpi átti að hækka hámarks­greiðslur í 600 þús­und krón­ur, auk þess sem lengja átti fæð­ing­ar­or­lofið í áföng­um í eitt ár. Ákvörðun Eyglóar var umdeild, ekki síst meðal nýbak­aðra for­eldra sem eign­uð­ust börn rétt áður en breyt­ing­arnar tóku gildi þann 15. októ­ber.

Starfs­hóp­ur­inn sem Eygló skip­aði lagði enn­fremur til að fyrstu 300 þús­und krón­urnar af tekjum þeirra sem fara í fæð­ing­ar­or­lof yrðu óskertar. Þannig myndu lægst laun­uðu for­eldr­arnir halda 100 pró­sent af tekjum sínum, en ekki fá 80 pró­sent eins og nú er.

Hækkunin gagnast feðrum en fæstum mæðrum

Ef farið hefði verið að til­lögum starfs­hóps­ins, og fyrstu 300 þús­und krón­urnar sem nýir for­eldrar afla yrðu óskert­ar, þá myndu greiðslur til þeirra sem hafa hærri laun en 300 þús­und líka aukast umtals­vert. Þannig myndu þeir sem eru með tekjur á milli 300-400 þús­und fá 97 pró­sent launa sinna í fæð­ing­ar­or­lofi, þeir sem þéna 400-500 þús­und fá 93 pró­sent og þeir sem þéna 500-750 þús­und krónur fá 90 pró­sent launa að með­al­tali á mán­uði.

Alls eru rúm­lega 80 pró­sent þeirra mæðra sem tóku fæð­ing­ar­or­lof fyrstu níu mán­uði árs­ins í fyrra með mán­að­ar­tekjur undir 500 þús­und krónum á mán­uði, en 42 pró­sent þeirra voru með 300 þús­und eða minna á mán­uði. 44 pró­sent feðra sem tóku orlof voru hins vegar með tekjur yfir 500 þús­und krónur á mán­uði.

Í byrjun árs 2008 voru hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði 535.700 krón­ur. Ef þær greiðslur hefðu fylgt vísi­tölu neyslu­verðs – sem mælir verð­bólgu – þá væru hámarks­greiðslur úr sjóðnum í jan­úar 2017 828.160 krón­ur. Svo er hins vegar ekki.

Strax í byrjun árs 2009 voru hámarks­greiðsl­urnar skertar í 400 þús­und krónur og svo lækk­aðar niður í 350 þús­und krónur sum­arið 2009, eftir að rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur tók við völd­um. Í byrjun árs 2010 voru hámarks­greiðsl­urnar enn lækk­aðar og nú niður í 300 þús­und krón­ur. Þær voru hækk­aðar upp í 350 þús­und krónur á loka­metrum vinstri­st­jórn­ar­innar og svo upp í 370 þús­und krónur í byrjun árs 2014, eftir að ný rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks tók við völd­um. Undir lok kjör­tíma­bils­ins voru greiðsl­urnar hækk­aðar í 500 þús­und, en greiðsl­urnar hafa ekki fylgt hækk­unum á vísi­tölu neyslu­verðs.

Horfum á kerfið hrynja

Þessar skerð­ingar eru taldar ein meg­in­á­stæða þess að fæð­ing­ar­or­lof­staka feðra hefur minnkað veru­lega á árunum eftir hrun. Þegar þakið var hæst árið 2008 voru umsóknir feðra um fæð­ing­ar­or­lof 90% af umsóknum mæðra. Árið 2014 var þetta hlut­fall komið niður í 80%. Færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof og þeir sem taka fæð­ing­ar­or­lof gera það í mun færri daga en þegar mest var. Árið 2008 var með­al­daga­fjöld­inn í fæð­ing­ar­or­lofi feðra 103 dag­ar, en árið 2015 var með­al­daga­fjöld­inn kom­inn niður í 74 daga.

Reglu­lega er talað um það að fæð­ing­ar­or­lofslögin á Íslandi hafi verið bylt­ing­ar­kennd þegar þeim var komið á. Með þeim hafi verið stigið stórt skref í jafn­rétt­isátt. Kristín Ást­geirs­dótt­ur, fram­kvæmda­stýra Jafn­rétt­is­stofu, hefur lengi sagt að þakið á Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hafi staðið of lengi í stað. „Við horfum upp á ein­stakt kerfi, sem búið var að byggja hér upp, molna niður fyrir framan okk­ur,“ sagði hún við Morg­un­blaðið í fyrra. Nauð­syn­legt væri að hækka þakið og hafa það í takt við launa­þróun í land­inu, vegna þess að það hafi áhrif á ákvörðun um barn­eignir hvort for­eldrar hafi efni á að taka sér frí. Fæð­ing­ar­or­lofið tryggi að auki jafn­ari stöðu kynj­anna bæði á vinnu­mark­aði og í umgengni for­eldra við börn sín.

Kostnaðurinn aukist gríðarlega

Kjarninn greindi einnig frá því í sept­em­ber í fyrra að á sama tíma og hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði höfðu dreg­ist saman um rúm­lega 30 pró­sent hækk­uðu bæði laun og útgjöld heim­ila um tugi pró­senta. Kostn­aður vegna heil­brigð­is­þjón­ustu og lyfja hafði hækkað um 47,7 pró­sent, föt og skór hækk­uðu um 56,6 pró­sent og mat­ar- og drykkja­rvörur um 68,7 pró­sent. Þá hafði hús­næð­is­verð hækkað um 20,4 pró­sent og húsa­leiga um heil 84,5 pró­sent. Þetta kom fram í tölum sem BSRB og ASÍ tóku saman ann­ars vegar um þróun hámarks­greiðslna úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði frá árinu 2008 og hins vegar um hlut­falls­lega hækkun launa og útgjalda heim­il­is­ins frá árinu 2008.

Nið­ur­staðan var skýr. Greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hafa lækkað mikið en allir kostn­að­ar­liðir hækk­uðu veru­lega. Afleið­ingin er sú að færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof, fæð­ing­ar­tíðnin hefur dreg­ist skarpt saman og sá hópur sem á erf­ið­ara með að láta enda ná saman eftir barns­burð hefur vaxið mjög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið undanfarið ár