Hinir meintu erfðabreyttu tvíburar

Kín­verskir vís­inda­menn full­yrða að erfða­breytt börn hafi fæðst. Engar sann­anir eru þó komnar fram um að svo sé. Sið­ferð­is­legar spurn­ingar hljóta hins vegar að vakna í kjöl­farið.

Ósannað
Ósannað Fullyrt er að erfða­breyttir tví­burar séu fæddir í Kína. Mynd: Shutterstock

Þær fréttir bár­ust frá Kína í síð­ustu viku að fyrstu erfða­breyttu börnin væru fædd. Vís­inda­heim­ur­inn stóð á gati, sér í lagi vís­inda­menn sem vinna við erfða­rann­sóknir og nota erfða­breyt­ingar í því skyni dag­lega. Erum við stödd í vís­inda­skáld­sögu eða er tæknin raun­veru­lega komin á þennan stað?

Kín­verski vís­inda­mað­ur­inn He Jiankui til­kynnti frétta­stofu AP að hann hefði aðstoðað sjö pör með tækni­frjóvgun sem fól í sér erfða­breyt­ingar á erfða­efni fóst­ur­vísanna. Börnin eru tví­bura­stúlkur sem fædd­ust kín­versku pari, þar sem karl­mað­ur­inn er HIV-jákvæður. Það ætti svo sem ekki að skipta máli, en þegar erfða­breyt­ingin sjálf er skoðuð er það auð­vitað grund­vall­ar­at­riði.

Vörn gegn HIV

Genið sem varð fyrir val­inu er nefni­lega CCR5 sem skráir fyrir við­taka á yfir­borði ónæm­is­frumna. HIV-veiran nýtir sér þennan við­taka til að smygla sér inn í T-frum­urnar. Nokkur dæmi eru þekkt í heim­inum þar sem ein­stak­lingar með ákveðnar basa­breyt­ingar á þessu geni eru vernd­aðir gegn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár