Ekki hægt að bjarga neinum banka

Sér­fræð­ingur J.P. Morgan, sem flogið var til Íslands í einka­þotu 5. októ­ber 2008 til að sann­færa íslenska ráða­menn um að íslenska banka­kerfið væri fallið, segir við Morg­un­blaðið að bank­arnir hafi verið allt of stórir til að hægt væri að bjarga þeim.

Fundurinn sem Michael Ripley og kollegar hans héldu með íslenskum ráðamönnum fór fram daginn áður en að Geir H. Haarde tilkynnti um setningu neyðarlaga á Íslandi.
Fund­ur­inn sem Michael Ripley og kollegar hans héldu með íslenskum ráða­mönnum fór fram dag­inn áður en að Geir H. Haarde til­kynnti um setn­ingu neyð­ar­laga á Íslandi. Mynd: Skjáskot

Það var ekki til nægur gjald­eyr­is­vara­forði til að bjarga neinum íslensku bank­anna sem féllu fyrir nákvæm­lega ára­tug í dag. Kaupþing, Lands­bank­inn og Glitnir höfðu sótt gríð­ar­lega fjár­muni á erlenda mark­aði þar sem lánsfé var ódýrt og vöxtur þeirra í kjöl­farið gerði það að verkum að bank­arnir þrír urðu allt of stórir í hlut­falli við íslenska hag­kerfið.

Þetta segir Michael Ridley, sér­fræð­ingur hjá fjár­fest­inga­bank­anum J.P. Morgan, í við­tali við Morg­un­blaðið í dag. Hann var einn þriggja sér­fræð­inga bank­ans sem var flogið með einka­þotu frá London um kvöld­mat­ar­leytið 5. októ­ber 2008 til Reykja­víkur þar sem þeir fóru yfir stöðu banka­kerf­is­ins með íslenskum ráða­mönnum. „Ég held að sumir ráð­herr­arnir hafi verið búnir að átta sig á stöð­unni og að hinir hafi gert það á þessum fundi. Það er að minnsta kosti ljóst að þegar honum lauk tók rík­is­stjórnin stefn­una á neyð­ar­lögin og þá aðferð að tryggja hags­muni Íslands og íslensku þjóð­ar­innar með því að leyfa bönk­unum að falla og vernda inn­stæður,“ segir Ridley við Morg­un­blaðið.

Hann segir við Morg­un­blaðiðað í ljósi þess að ekki hafi verið til fjár­munir til að bakka upp allt banka­kerfið þá var ekki hægt að bjarga neinum banka. Ríkið gat stigið inn, án þess að bakka upp allt kerfið, í en þá hefði fjár­festar áttað sig um leið að staðan væri alvar­leg. Það var ekki hægt að bjarga neinum banka þessa afdrifa­ríku helgi í byrjun októ­ber 2008 að sögn Ridley. „Ekki þremur, ekki tveimur og ekki einum. Það var orðið ljóst á þessum tíma­punkti að það þyrfti að byggja upp nýtt greiðslu­kerfi og nýtt inn­lána­kerfi á grunni nýrra banka.“

Ridley neitar því að full­trúar J.P. Morgan hafi haldið því fram að ef það væri hægt að bjarga ein­hverjum banka væri það Kaupþing. Össur Skarp­héð­ins­son, þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, hafði sagt það við rann­sókn­ar­nefnd Alþingi. „Þetta hefði ég aldrei sagt. Ég vissi að það var ekki til nægur gjald­eyr­is­forði í Seðla­bank­anum til að bjarga neinum þeirra. Eina athuga­semdin sem ég kann að hafa látið falla á fund­inum er að fjár­mögnun Kaup­þings myndi halda eitt­hvað lengur en hinna bank­anna, ein­fald­lega vegna dag­setn­inga sem tengd­ust end­ur­fjár­mögn­un­ar­þörf þeirra. Það var vitað að sú stund var runnin upp í til­felli Glitnis strax í kom­andi viku, þá Lands­bank­anum og svo Kaup­þingi. Auk þess hefði slík björgun kallað á að íslenskur almenn­ingur hefði tekið á sig gríð­ar­legar skuld­bind­ingar, líkt og gerð­ist þegar írska ríkið ákvað að bjarga sínum bönkum.“

Seðla­banki Íslands lán­aði þó Kaup­þingi 500 millj­ónir evra dag­inn eftir, þann 6. októ­ber, sama dag og neyð­ar­lögin voru sett. Ridley segir að stjórn­völd hafi ekki ráð­fært sig við hann um þá ákvörðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár