Landsbankinn samþykkir kaup á fimm milljarða hlut í sjálfum sér

Ríkið á 98,2 pró­sent hlut í Lands­bank­anum en hlutu starfs­manna og fyrr­ver­andi stofn­fjár­hafa yfir­tek­inna spari­sjóða er 0,89 pró­sent. Virði hans nemur ríf­lega tveimur millj­örðum króna.

Bankaráð Lands­bank­ans hefur ákveðið að nýta heim­ild til að kaupa eigin hlutafé, en heim­ildin var veitt á aðal­fundi bank­ans 14. apríl síð­ast­lið­inn. Kaupin nema að hámarki 480 millj­ónum hluta, eða sem nemur um tvö pró­sent af útgefnu hlutafé. Ríkið á um 98,2 pró­sent hluta­fjár í bank­anum.

Sé mið tekið af því að virði bank­ans sé sem nemur bók­færðu virði eigin fjár, þá nemur tvö pró­sent um 5,2 millj­örðum króna.

Lækka hlutafé og gefa möguleika á sölu

Til­gang­ur­inn með kaup­unum er að lækka eigið fé bank­ans og einnig að gefa hlut­höfum bank­ans mögu­leika á því að selja hluti sína í bank­anum. Eig­in­fjár­staða Lands­bank­ans er sterk, eða 28,6 pró­sent. Hún hefur styrkst mikið á und­an­förnum árum, og er eigið fé bank­ans nú um 260 millj­arðar króna.

Það er örlítið meira en hjá næst stærsta fyr­ir­tæk­inu í eigu rík­is­ins, Lands­virkjun, sé horft á stærð­ina út frá eigin fé. Þar er eigið fé rúm­lega 250 millj­arðar króna. Arð­greiðslur bank­ans til hlut­hafa, að lang­mestu leyti til rík­is­ins, nema alls 82 millj­örðum á árunum 2013 til 2016.

Hömlur á fram­sali hlut­anna í bank­anum féllu niður 1. sept­em­ber, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum.

Lands­bank­inn býðst til að kaupa hluti af hlut­höfum á eft­ir­far­andi þremur end­ur­kaupa­tíma­bilum að því er segir í til­kynn­ingu frá bank­anum.

· 19. sept­em­ber 2016 – 30. sept­em­ber 2016

· 31. októ­ber 2016 – 9. des­em­ber 2016

· 13. febr­úar 2017 – 24. febr­úar 2017

Jafn­framt er tekið fram hvert gengið er í við­skipt­unum, eða 10,4 miðað við að útistand­andi hlutafé sé 23.781.690.382 krónur, nákvæm­lega til­greint. Þetta þýðir að tvö pró­sent hlutur er um fimm millj­arðar króna virði. „Þeir hlut­hafar sem ákveða að nýta sér fram­an­greint boð eiga að senda Lands­bank­anum til­kynn­ingu um það. og er eyðu­blað fyrir til­kynn­ing­una aðgengi­legt á vef bank­ans. Til­kynn­ingar verða afgreiddar á hverju tíma­bili í þeirri röð sem þær ber­ast bank­anum þar til fram­an­greindu hámarki (480 millj­ónir hluta) verður náð. Verði hámark­inu náð á ein­hverju end­ur­kaupa­tíma­bil­anna verða frek­ari til­kynn­ingar því ekki afgreiddar, hvort sem það verður á fyrsta, öðru eða þriðja tíma­bil­inu,“ segir í til­kynn­ingu Lands­bank­ans.

Verðið getur breyst

Verðið í við­skiptum með hlut­ina getur þó breyst. Í sam­ræmi við ákvörðun aðal­fundar bank­ans, þá býðst Lands­bank­inn til að kaupa hvern hlut á fram­an­greindum end­ur­kaupa­tíma­bilum á gengi sem sam­svarar hlut­fall­inu á milli eigin fjár, sem til­heyrir hlut­höfum bank­ans, og síðan heild­ar­hluta­fjár bank­ans, sam­kvæmt síð­asta birta upp­gjöri áður en við­kom­andi end­ur­kaupa­tíma­bil hefst.

Núver­andi starfs­menn Lands­bank­ans, og hópur fyrr­ver­andi starfs­manna einnig, nokkuð mik­illa hags­muna að gæta þegar kemur að hlut­unum í bank­anum.

Við stofnun Lands­bank­ans 7. októ­ber 2008, þegar gamli bank­inn féll eins og spila­borg, lagði íslenska ríkið nýja bank­anum til 775 millj­ónir króna í eigið fé og síðar 121,2 millj­arða króna til við­bótar í formi skulda­bréfs með gjald­daga árið 2018, eða sam­tals 122 millj­arða króna.

Þar með eign­að­ist íslenska ríkið 81,33% hluta­fjár í bank­anum en LBI hf. (slitabú gamla Lands­banka Íslands) átti 18,67% hlut. Í apríl 2013 gaf Lands­bank­inn út skil­yrt skulda­bréf til LBI að fjár­hæð 92 millj­arðar króna og við það fram­seldi LBI hluti sína í bank­anum til íslenska rík­is­ins.

Þar með fór eign­ar­hlutur rík­is­ins í um 98%. Á sama tíma eign­uð­ust þáver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Lands­bank­ans hluti í bank­anum, sem áður voru í eigu LBI, í sam­ræmi við samn­ing íslenska rík­is­ins, bank­ans og LBI frá 15. des­em­ber 2009, eins nefnd er í til­kynn­ingu bank­ans. Á þeim hlutum voru kvaðir um að ekki mætti fram­selja hlut­ina fyrr en 1. sept­em­ber 2016 en gert hafði verið ráð fyrir að búið yrði að skrá hluta­bréf í bank­anum á skipu­legan verð­bréfa­markað fyrir þann tíma. Svo er hins vegar ekki.

Árið 2015 runnu Spari­sjóður Norð­ur­lands og Spari­sjóður Vest­manna­eyja saman við Lands­bank­ann og fengu þá rúm­lega 400 stofn­fjár­eig­endur end­ur­gjald sem greitt var með hlutum í Lands­bank­anum. Á þeim hlutum voru sam­svar­andi hömlur á fram­sali, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Ríkið, starfsmenn og stofnfjárhafar

Alls eru hlut­hafar Lands­bank­ans 1.833 tals­ins, þegar allt er talið. Íslenska ríkið er stærsti hlut­hafi bank­ans og á 98,2% hlut, eins og áður sagði. Bankinn á sjálfur 0,91% hlut. Þá eiga um 870 núver­andi starfs­menn bank­ans, um 530 fyrr­ver­andi starfs­menn og um 430 fyrrum stofn­fjár­hafar í tveimur spari­sjóðum sam­tals 0,89%. Banka­ráðs­menn Lands­bank­ans eiga ekki hluti í bank­anum. Hlutur starfs­manna, núver­andi og fyrr­ver­andi, og 430 fyrrum stofn­fjár­haga í spari­sjóð­unum er því um 2,2 millj­arða króna virði.

Fyr­ir­hug­uðum áformum um sölu á allt að þrjá­tíu pró­sent hlut í Lands­bank­ans hefur verið frestað, og bíður það nýrrar rík­is­stjórnar, að taka ákvörðun um hvort hlutur í bank­anum verður seldur eða hvort hann verður áfram í eigu rík­is­ins að nær öllu leyti.

Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum, fagnar ákvörðun banka­ráðs og segir hana sam­ræm­ast stefnu Banka­sýsl­unnar.

Æðstu stjórn­endur Lands­bank­ans eiga stærri eign­ar­hlut í bank­anum en aðrir starfs­menn, eða allt að þrefalt meira en megnið af þeim ­starfs­mönnum sem eiga hlut í bank­an­um. Þetta sýna gögn um hlut­hafa Lands­bank­ans miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs 2014. Þeir starfs­menn bank­ans sem eiga flesta hluti, af þeim sem komu til­ ­skipt­anna fyrir starfs­menn miðað við sam­þykkt hlut­hafa­fundar bank­ans frá 17. júlí 2013, eru Hreiðar Bjarna­son, Helgi Teitur Helga­son og Árni Þór Þor­björns­son, en þeir áttu allir 528.732 hluti í lok árs 2014, eins og fram kom í umfjöllun Kjarnans í októ­ber í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár