Myndin sem varð málgagn öfgamanna

Hvernig end­aði mynd af hrað­asta tán­ings­hlaupara Sví­þjóðar í áróðri gegn inn­flytj­endum? Af því hann var 15 ára, með dökka skegg­rót og af mið­aust­ur­lensku bergi brot­inn. Ímynd­un­ar­aflið sá um rest.

Þann 19. maí 2011 birt­ist mynd af hlaup­andi hópi barna og dökk­hærðum karl­manni í bæj­ar­blað­inu í Krist­i­an­stad í Suður-Svíþjóð. Maðurinn á mynd­inni var efni­legur hlaup­ari. Hann hafði skömmu áður hlaupið 100 metrana á 11,82, sem var besti tím­inn í flokki 14 ára í Svíþjóð það árið. Það er það eina sem Saad Alsaudi hefur unnið sér til frægðar. Samt er hann frægur víða um heim.

Óhætt er að slá föstu að engin frétt bæj­ar­blaðs­ins í Krist­i­an­stad hafi hlotið við­líka athygli. Krist­i­an­stad er á stærð við Kópavog sem, með fullri virð­ingu fyrir bæði Kópavogi og Krist­i­an­stad, telst eng­inn bold­ungs bær í Svíþjóð. Fréttin var hins vegar fljót­lega tekin af vef­síðu blaðs­ins því hún varð fljótt að flökku­sögu á vef­síðum hægriöfga­manna. Ástæðan? Jú, Saad þótti svo manna­legur á mynd­inni að erfitt var að trúa því að hann væri tán­ingur.

Í með­förum fólks sem ekki gest að útlend­ingum, varð myndin af Saad vin­sælt „sönn­un­ar­gagn” þess að hann væri enn eitt dæmið um hæl­is­leit­endur sem ljúga til um ungan aldur til þess að auka lík­urnar á því að fá hæli. Vanda­málið var bara að saga Saads kemur ekki heim og saman við lýs­ing­arnar á net­inu. Nafnið hans var ekki einu sinni rétt stafað.

Rataði í Daily Mail

Steininn tók úr þegar myndin af Saad var prentuð í öðru stærsta dag­blaði Bret­lands, götu­blað­inu Daily Mail. Þar er mynd­inni af Saad slegið fram undir clickbait yfir­skrift­inni: „Hversu gömul heldur þú að þessi ‘flótta­manna­börn’ séu? Rosa­legar myndir ... vitna um vax­andi skandal í flótta­manna­krís­unni í Evrópu”. Í inn­gangi frétt­ar­innar getur að lesa að „Svíþjóð standi ráða­laus frammi fyrir fjölda ‘ólög­ráða’ flótta­manna án fylgdar full­orð­inna”. Í texta frétt­ar­innar eru svo dregin fram ýmis dæmi um nýlegt ofbeldi og árásir á heim­ilum fyrir ólög­ráða hæl­is­leit­endur. Þá er látið í veðri vaka að aug­ljós­lega séu þessir piltar eldri en 18 ára, því allir séu þeir hávaxnir og þeim spretti sann­an­lega og ríf­lega grön.

Það er alveg rétt að margir þeirra hæl­is­leit­enda sem koma til Sví­þjóðar þessa dag­ana gefa upp að þeir séu undir lög­aldri og að þeir séu einir á ferð. Árið 2014 voru 8,7% hæl­is­leit­enda ólög­ráða ung­menni án full­tingis fjöl­skyldu­með­lima. Árið 2015 hafði þetta hlut­fall stokkið upp í 21,7%, sam­kvæmt tölum frá sænsku útlend­inga­stofn­un­inni Migrationsverket. Afganar eru fjöl­menn­astir í fylgd­ar­lausa ung­menna­hópnum, alls 66,3% í fyrra, eins og Kjarninn hefur áður skrifað um.

Senni­legt má telj­ast að þó nokkrir í þessum hópi séu í raun eldri en þeir segj­ast vera. Þó nokkrir láta eflaust freist­ast til að ljúga af því að kerfið veitir ung­mennum meiri aðstoð en full­orðnum. Aðrir geta í ein­lægni sagt að þeir viti ekki hvað þeir eru gamlir.

Höfum hug­fast að í Afganistan fæð­ast um tveir þriðju allra barna í stof­unni heima, án þess að heil­brigð­is­kerfið komi þar nálægt, þjóð­skrá fylgist með eða umheim­ur­inn viti af því á annan hátt. Margir á lands­byggð­inni eru ólæsir á texta og tölur og daga­töl eru þar af leið­andi ekki á öllum heim­ilum.

Hin raunverulegi Saad Alsaudi

Myndin víð­förla er tekin þegar tán­ing­ur­inn Saad Alsaudi heim­sótti gamla barna­skól­ann sinn aftur eftir hlaupa­afrekið. Hann hljóp einn hring í kringum skól­ann, eins og er hefð fyrir að börnin geri á hverjum degi í Centralskolen. „Ég var alltaf með í hlaup­unum,” segir Saad við Krist­i­an­stads­bla­det. “Það var hérna sem ég upp­götv­aði að ég var fljótur að hlaupa.”

Eins og norski pistla­höf­und­ur­inn Øyvind Strømmen bendir á í grein á vef­miðl­inum Minervanett, er myndin gott dæmi um það sem á ensku heitir confirmation bias. (- Stað­fest­ing­ar­til­hneig­ing er ein lipur snörun á íslensku.) Þetta gengur út á að leita ein­göngu að upp­lýs­ingum sem stað­festa þá heims­mynd sem mann­eskjan hefur þegar.

Fyrir þá sem ein­setja sér að finna stað­fest­ingu þess að erlend ung­menni ljúgi til um aldur til að kom­ast áfram í kerf­inu, þá getur myndin af hlaupa­hópnum litið þannig út. Saad er dökkur yfir­litum, með dökka og grófa skegg­rót. Hálf­op­inn jakk­inn blæs út af lofti á hlaup­unum þannig að Saad, sem er í góðri þjálfun, virð­ist enn vöðvaðri yfir brjóst­kass­ann. Hann er að auki umkringdur börnum sem eru höfð­inu lægri en hann, skóla­börnum sem líta út fyrir að geta verið á aldr­inum 10-12 ára. Hann lítur í alvör­unni út fyrir að geta verið eldri en fimmtán, ef það er það sem maður vill sjá.

Saad Alsaudi hefur hins vegar enga ástæðu til að ljúga til um aldur. Hann er búinn að búa í Svíþjóð frá því hann var sex ára, árið 2003. Pabbi hans flutti fyrstur og fékk fjöl­skyld­una, þ.m.t. Saad sem ungan dreng, til sín eftir að hann hafði fengið var­an­legt dval­ar­leyfi fyrir alla fjöl­skyld­una, eftir því sem Saad segir sjálfur frá. Í frétt sænska rík­is­sjón­varps­ins blaðar Saad í gegnum myndir af sér barn­ungum í Svíþjóð, því til sönn­unar hvað hann hefur verið þar lengi. Hann seg­ist geta sýnt gömul skil­ríki með fæð­ing­ar­deg­inum. En það hefur ekk­ert að segja. Saad kom til Sví­þjóðar sem barn. Hann sótti ekki um eða fékk dval­ar­leyfi með því að ljúga um aldur.

Lifir sjálfstæðu lífi

Goð­sögnin um hrað­lygna hæl­is­leit­and­ann Saad Alsaudi, (hefur einnig verið rang­lega skrifað Alsudi eða Alsaud) lifir hins vegar orðið sjálf­stæðu lífi. Það mun lík­lega engu máli skipta þótt sænskir, norskir og nú íslenskir fjöl­miðlar beri frétt­ina til baka. Daily Mail virð­ist ekki einu sinni hafa breytt sinni frétt að neinu marki.

Saad hefur lagt hlaupa­skóna á hill­una út af meiðslum. Hann er núna á síð­asta ári á nátt­úru­fræði­braut í fram­halds­skóla í Krist­i­an­stad. Hann vildi óska þess að fólk væri gagn­rýnna á þær upp­lýs­ingar sem það sér á net­inu, segir hann við Krist­i­an­stadbla­det í nýrri frétt frá því á þriðju­dag­inn – með nýrri mynd fyrir þá sem vilja vita hvernig hann lítur út í dag. Allra helst óskar hann þess að fólk væri ekki að nota tím­ann í að ræða það sem ekki skiptir máli, heldur þori að taka á vanda­málum eins og ras­isma.

Myndin af honum mun hins vegar lík­lega halda áfram að rúlla í hring um inter­netið, þar sem hann er titl­aður skegg­barn eða annað þaðan af verra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár