Táningar á flótta frá Afganistan

Meirihluti afganskra flóttamanna sem hafa sótt um hæli í Evrópu á þessu ári eru táningsstrákar undir 18 ára aldri sem koma án forráðamanna.
Meiri­hluti afganskra flótta­manna sem hafa sótt um hæli í Evrópu á þessu ári eru tán­ings­strákar undir 18 ára aldri sem koma án for­ráða­manna. Mynd: EPA

Síðustu vik­urnar hefur nýtt land verið að sigla fram úr Sýrlandi í flótta­manna­töl­fræð­inni. Það er reyndar varla hægt að tala um nýtt flótta­manna­land, því Afganistan tróndi lengi vel á toppi list­ans yfir flesta lands­menn á flótta utan eigin landamæra. Fyrir tæpu ári síðan tók Sýrland þetta dap­ur­lega topp­sæti, sem Afganistan hafði þá haldið óslitið í rúma þrjá ára­tugi. Sýr­lend­ing­arnir voru lengi vel fjöl­menn­astir í yfir­fylltum gúmmí­bát­unum til Grikk­lands, en nú eru Afg­an­irnir líka farnir að fjöl­menna til Evrópu. Á öðrum árs­fjórð­ungi í ár komu 13% hæl­is­um­sókna í ESB-lönd­unum frá Afgönum, en á tíma í fyrra voru Afganir ein­ungis um 5% hæl­is­leit­enda. Þetta helst í hendur við vax­andi ofbeldi og von­leysi í Afganistan. Meiri­hluti afganskra flótta­manna sem hafa sótt um hæli í Evrópu á þessu ári eru tán­ings­strákar undir 18 ára aldri sem koma án for­ráða­manna.

Börn og unglingar í meirihluta

Í Svíþjóð eru 64% þeirra Afgana sem hafa sótt um hæli fyrstu tíu mán­uði árs­ins undir 18 ára aldri og komu án fylgdar full­orð­inna. Þó að sýr­lenskir flótta­menn séu á heild­ina litið 80% fleiri en afganskir, þá eru börn og tán­ingar án fylgdar nærri 5 sinnum fleiri frá Afganistan en frá Sýrlandi. Í Noregi lætur nærri að 6 sinnum fleiri afgönsk börn og tán­ingar hafi sótt um hæli án for­ráða­manna, heldur en sýr­lenskir jafn­aldrar þeirra. 55% afganskra hæl­is­leit­enda í Noregi á þessu ári eru ólög­ráða og fylgd­ar­lausir. 

Flestir hinna fylgd­ar­lausu eru strákar á aldr­inum 14-17 ára en stúlkum fer fjölg­andi. Sumir lögðu upp í ferð­ina án fylgdar full­orð­inna en aðrir hafa misst fjöl­skyld­una á leið­inni. Fyrri hóp­ur­inn stendur betur að vígi en sá síð­ari; er betur búinn undir það sem fyrir hendi ber. Þeir sem glíma við ást­vina­missi til við­bótar við minn­ingar um martraða­kennt ferða­lag eru ber­skjald­aðri og eiga erf­ið­ara með að fóta sig.

Ofbeldissagan endurtekur sig

Í Afganistan hafa verið vopnuð átök óslitið frá 1980, hvort heldur sem er stað­bundin eða alltum­lykj­andi. Fólk sem nú er 35 ára hefur aldrei upp­lifað að það ríki friður í land­inu þeirra. Vonin sem margir höfðu eftir 2001 er nú að blikna. Alþjóða­að­stoðin fer þverr­andi, stríðs­á­tökin breiða úr sér og hríðin harðnar. Tali­banar eru að klofna í tvær fylk­ingar, íslamska ríkið að sækja í sig drengir veðrið og aðrir hryðju­verka­hópar, gamlir og nýir, halda áfram að berj­ast bæði inn­byrðis og allir sem einn við örygg­is­sveitir afganska rík­is­ins. Við þetta bæt­ist að gamlir stríðs­herrar eru farnir að safna liði og fægja riffl­ana.

Vara­for­seti lands­ins, hinn alræmdi Rashid Dostum, er á ný lagstur í hernað með sínum einka­sveitum gegn hryðju­verka­hópum á heima­slóð­unum í Norð­vestur-Afganistan. Staðan er í stuttu máli flókin og versn­andi. 

Sífellt fleiri óbreyttir borg­arar missa lífið í átök­unum. 2014 var metár og allt bendir til að enn fleiri verði fyrir kúlum og sprengjum í ár. Að auki fær­ast mann­rán og morð á grund­velli þjóð­ar­brots og trúar í auk­ana. Þjóð­flokk­ur­inn Hazara er sér­stak­lega ugg­andi. Þeir eru flestir sjíamúslimar og hafa því iðu­lega orðið fyrir ofsóknum ofbeld­is­hópa. Þess gætir nú þegar, enn á ný. 

Afganir eru brennda barnið sem forð­ast eld­inn. Þeir sjá í hvað stefnir; þekkja það allt of vel af sárri raun. Þeir sem hafa á því nokkur tök eru farnir að hugsa sér til hreyf­ings. Gleymum því ekki að margir með afganskt rík­is­fang hafa lengi verið flótta­menn í nágranna­lönd­unum Íran og Pakistan, sem og öðrum löndum. Það er mjög ótrygg staða, erfitt að draga fram lífið og stöðugar hót­anir um að verða sendur heim. Í síð­ustu viku til­kynnti Pakistan að nú væri nóg komið og kynnti tveggja ára áætlun um að senda alla afganska flótta­menn aftur til heima­lands­ins. Margir þess­ara hafa verið í Pakistan í 30 ár. Guardian sagði einnig nýlega frá því að Íran sendi afganska flótta­menn til Sýrlands til að berj­ast við hlið sýr­lenska hers­ins.

Hvers vegna flýja svona margir ungir?

Í Afganistan hefur fjöl­skyldan mikil áhrif í lífi ein­stak­ling­anna og eldri með­limir taka gjarnan stórar ákvarð­anir fyrir hönd hinna yngri eða hefur í það minnsta mikil áhrif á þeirra eigin ákvarð­anir. Þannig er það í til­viki margra þess­ara ung­linga. Fjöl­skyldan hefur sent þá af stað, safnað pen­ingum eða fengið lánað, til þess að einn úr fjöl­skyld­unni eigi mögu­leika á betri fram­tíð. Vonir um betri atvinnu­mögu­leika og rýmri fjár­for­ráð í nýju landi eru hluti af ástæð­unni. Margir hugsa sér eflaust einnig að sá sem fer, geti unnið og sent pen­inga heim þegar harðnar í ári hjá fjöl­skyld­unni. En þetta er ekki bara gróða­á­ætlun. Farid Ghiami vinnur með ósjálf­ráða tán­ings­flótta­mönnum sem fengið hafa hæli í Noregi. Hann útskýrir fyrir Kjarn­anum að það að senda unga menn úr landi sé í og með hugsað til að bjarga lífi þeirra og fram­tíð. Afganskar fjöl­skyldur vita af sárri raun að þegar átökin harðna, þá eru ungir menn bæði skot­skífur og mark­hópar ofbeld­isafl­anna. Þegar ofbeld­is­menn kveðja dyra, þá er ungum mönnum stillt fyrst upp við vegg­inn. Í nauð eða af nauð­ung ganga margir til liðs við hópana, af því það er enga aðra vinnu að fá eða af því ann­ars bíður þeirra bráður dauði. Farid kom sjálfur til Noregs sem flótta­maður frá Afganistan í lok síð­ustu aldar.

Glanssögur á Facebook

Margir í Afganistan gera sér ekki grein fyrir öllum hætt­unum sem leyn­ast á veg­inum, útskýrir Farid, og aðrir Afganir sem Kjarninn ræðir við taka undir það. 

Á sam­fé­lags­miðl­unum kemur nán­ast ein­vörð­ungu fram að grasið sé grænna hinu megin, ekki að leiðin þangað sé háska­leg. Margir sem að heiman fara finnst þeir bera skyldu gagn­vart fjöl­skyld­unni; þetta verði að heppn­ast. Þeir freist­ast til að leyna erf­ið­leik­unum á leið­inni og fegra mynd­ina af nýju lífi á nýjum stað. Smygl­arar sem hafa lifi­brauð af að sel­flytja fólk birta glans­sögur af gulli og grænum skógum sem bíða á Vest­ur­löndum. Þeir gefa vill­andi upp­lýs­ingar um útlend­inga­lög­gjöf Evr­ópu­land­anna, til að láta sem mögu­leik­arnir á hæli og land­vist­ar­leyfi séu meiri en þeir eru. 

Sagan af Ali Farid segir okkur einnig sög­una af hinum 16 ára Ali, sem kom nýverið til Noregs, aleinn. Fjöl­skyldan hans og hann tóku ákvörð­un­ina í sam­ein­ingu. Þegar tali­banar voru við völd 1994-1996 flúðu for­eldr­arnir frá Kabúl til Mazar-e-Sharif í Norður-Afganistan. Lífið var erfitt. Nú þykir for­eldr­unum staðan í Afganistan farin að líkj­ast þeim tímum ugg­væn­lega mikið. Þau vita að ung­lings­strákar eins og Ali eiga á hættu að vera þving­aðir til að ganga í upp­reisn­ar­sveitir eða hrein­lega að vera drepnir af því þeir til­heyra ákveðnu þjóð­ar­broti eða þjóð­fé­lags­hópi. Saga Alis speglar veru­leika margra af fylgd­ar­lausu tán­ings­flótta­mönn­unum.

For­eldrar hans líta sem svo á að með því að senda hann úr landi séu þau ekki ein­ungis að gefa honum mögu­leika á bjart­ari fram­tíð, heldur hrein­lega að gefa honum líf. Þau eru að bjarga honum frá hætt­unum sem þau þekkja. Þau grunar ekki hvaða hættur bíða hans á för­inni. Ali ferð­ast með bílum, bátum, vöru­bílum, rútum, lestum og á tveimur jafn­fljótum.

Leiðin liggur gegnum Íran, Tyrkland, Grikk­land, Búlgaríu, Rúmeníu, Aust­ur­ríki, Þýska­land, Danmörku, Svíþjóð og loks til Noregs. Á leið­inni upp­lifir ung­ling­ur­inn Ali margt sem ásækir hann síðan. 

Martraðakenndar minningar

Á tíu tíma göngu frá Íran til Tyrk­lands liggur leiðin í gegnum skóg og yfir fjall í kolniða­myrkri. Það eru engin ljós, til að landamæra­verðir sjái ekki til þeirra. Ali er þar í hópi 50 flótta­manna á öllum aldri. Fátt af göngu­fólk­inu var und­ir­búið undir svo langa og erf­iða göngu en smygl­ar­arnir slógu fólk sem var að þrotum komið. Allur matur og vatn var búið og eng­inn vissi hversu langa leið þau ættu fyrir höndum. Fáir þorðu að spyrja smyglar­ana, bæði út af tungu­mála­örð­ug­leikum en þó sér­stak­lega til að forð­ast bar­smíðar að óþörfu. 

Og svo var það báts­ferðin til Grikk­lands. Fjöl­skylda Alis sendi smygl­ur­unum pen­inga, 2500 doll­ara. Þeir lof­uðu góðum og öruggum báti. Ekki fleiri en 10 far­þegar, sögðu þeir, en þá kostar farið líka meira. Á strönd­inni það kvöld er samt rúm­lega 23 flótta­mönnum hrúgað saman í lít­inn gúmmí­bát. Enn á ný ferð­ast fólkið í niða­myrkri. Mönnunum í hópnum er skipað að róa frá landi, til að mót­or­hljóðið kæmi ekki lög­regl­unni á sporið. Þeir róa í drjúga stund og eru komnir langt frá landi þegar fólkið upp­götvar að það er alls eng­inn utan­borðs­mótor á bátnum. Þarna er orðið verra í sjó­inn og fólkið eys með öllu til­tæku. Allir um borð eru orðnir gegn­drepa og kaldir. Það kemur til slags­mála og ein­hver eða ein­hverjir detta í sjó­inn. 

Þá tekur fólkið eftir að loftið er að leka úr gúmmí­bátnum. Allir lenda í köldum og dimmum sjónum. Ali missir þá litlu von sem hann átti eftir, hatar for­eld­rana, sjálfan sig og lífið allt. Getur lífið í Evrópu verið svona mik­ils virði? Í kringum hann öskrar dauð­hrætt fólkið og biður bænir. Börnin gráta hástöfum. 

Þau halda hóp­inn, fljót­andi í björg­un­ar­vestum í myrkum sjónum og eftir drjúga stund heyra þau þyrlu­hljóð. Þeim er bjargað í land af tveimur grískum lög­reglu­bátum. Lög­reglu­menn­irnir vilja helst skila þeim aftur í land í Tyrk­landi en fólkið biður um hæli, svo það er sent til eitt af risa­stórum skrán­ing­ar­stöðum á grísku strönd­inni. Ali stansar stutt og heldur áfram ferð­inni. Eftir sex mán­aða ferða­lag kemur hann til Noregs, aleinn með erf­iðar minn­ingar, til­finn­ingar og áhyggjur.

Erfitt og auð­mýkj­andi ald­urs­mat Í stað­inn fyrir hina öruggu höfn sem hann hélt að Noregur myndi verða, upp­lifir hann mót­tök­urnar sem auð­mýkj­andi. Hann er yfir­heyrður og þukl­aður af örygg­is­fólki. Hann þarf að fara í ýmiss konar rann­sóknir á lík­ama og sál til að reyna að stað­festa hversu gam­all hann er. Síðan er hann sendur á milli hæl­is­leit­enda­húsa án þess að hafa neina stjórn yfir eigin örlögum eða íveru­stað. Norskar reglur skylda hæl­is­leit­endur til að búa á þar til gerðum gisti­stöðum á vegum rík­is­ins. 

Hvað ertu eiginlega gamall?

New York Times hefur eftir þýskum landamæra­vörðum að 1. jan­úar 1999 sé áber­andi algengastur skráðra afmæl­is­daga hæl­is­leit­enda þessa dag­ana. „Einmitt! Þú og allir vinir þínir eru 17 ára,” segir lög­reglu­maður á landamæra­stöð­inni í Passau í Þýska­landi. “Veistu hvað ég heyri þetta oft á dag?” Í grein New York Times er einnig góð lýs­ing á algengum aðferðum við ald­urs­mat á tán­ingum. Margir hæl­is­leit­endur segj­ast vera undir 18 ára aldri. Sumir eru í alvöru svo ungir. Aðrir nota það efa­laust sem yfir­skyn. Ólögráða hæl­is­leit­endur fá mild­ari með­ferð og meiri stuðn­ing; hversu mik­ill mun­ur­inn er fer eftir mót­tök­u­löndum. Í Afganistan er heldur alls ekki óal­gengt að fólk viti ekki hvenær það var fætt. Þar er engin þjóð­skrá eða ígildi kirkju­bóka sem halda utan um fæð­ing­ar­daga eða aldur fólks.

Það er hins vegar engin þörf á að draga í efa að það eru margir óharðn­aðir ung­lingar og börn, margir á aldr­inum 11-14 ára, sem koma einir til Vest­ur­landa þessa dag­ana. Sumir fóru einir af stað eða með jafn­aldra. Aðrir hafa misst for­eld­rana á leið­inni. Þeir eiga það sam­eig­in­legt að þurfa mikla aðstoð til að kom­ast yfir erf­iða lífs­reynslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár