1111. spurningaþraut: Breskur bær, fótboltafélag, bækur og fljót

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að ofan? Gætið vand­lega að.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða þétt­býl­is­staður á Íslandi hefur póst­núm­erið 200?

2.  Hver skrif­aði hinar geysi­vin­sælu Ævin­týra­bækur fyrir börn sem nutu einkum vin­sælda hér á landi 1955-1975?

3.  Hvað nefnd­ist dýrið sem kom mjög við sögu í þessum bóka­flokki?

4.  Sami höf­undur skrif­aði þrjá bóka­flokka aðra af svip­uðu tagi sem einnig komu út á íslensku. Af einum flokknum komu þó aðeins fáeinar bækur. Hvað hétu þessir flokkar? Fyrir tvo flokka fást stig, en ef þið hafið alla þrjá fáiði Iðunn­ar­stig!  

5.  Hvar er Vil­hjálmur Alex­ander kon­ungur?

6.  Í hvaða landi er borgin Avignon?

7.  Hversu margir eru þeir Kim-feðgar sem ráðið hafa Norður-Kóreu hver af öðrum?

8.  Gylfi Þór Sig­urðs­son fór ungur til Bret­lands og komst til manns sem fót­bolta­maður hjá félagi einu sem hefur aðsetur í bæ ofar­lega við næst­lengsta fljót Bret­landseyja. Hvað heitir bær­inn og þar með fót­bolta­fé­lagið líka?

9.  En hvað heitir þetta næst­lengsta fljót Bret­lands?

10.  Hvað er Steinway?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Við hvaða götu stendur þetta hús?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kópa­vogur.

2.  Enid Blyton.

3.  Páfa­gauk­ur­inn Kíkí.

4.  Dul­ar­fullu bæk­urnar, Fimm-bæk­urnar og svo bæk­urnar um Leyni­fé­lagið Sjö saman, eða Sjö saman.

5.  Hollandi.

6.  Frakk­landi.

7.  Þrír.

8.  Reading.

9.  Thames.

10.  Píanó-teg­und.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Gísli Marteinn. Myndin er frá 2005 þegar hún var notuð í aug­lýs­inga­her­ferð VR gegn kyn­bundnum launa­mun undir fyr­ir­sögn­inni Láttu ekki útlitið blekkja þig.

Húsið á neðri mynd­inni er Safna­húsið sem stendur við Hverf­is­götu.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár