Sigmundur: „Þetta voru ekki kínverskir ferðamenn sem ég mætti“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist hafa tak­mark­aða mögu­leika á því að óska eftir því að fram fari rann­sókn á ásök­unum sem komið hafa upp um mis­ferli í tengslum við flokks­þing flokks­ins um helg­ina. Þó væri eðli­legt að málið yrði skoðað. Hann seg­ist hafa orðið vitni að und­ir­förli, hann­aðri atburða­rás, enda­lausum spuna og algjörum skorti á prinsippum í aðdrag­anda og á flokks­þing­inu sjálfu.

Þetta var meðal þess sem kom fram í við­tali við hann í þætt­inum Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni fyrir skömmu.

Sig­mundur Davíð hafn­aði því algjör­lega í við­tal­inu að hafa reynt að skipta sér nokkuð af dag­skrá flokks­þings­ins, líkt og aðrir hafa lýst. „Einu afskipti mín af dag­skrá voru að leggja til að það yrði sér­stakur tími fyrir ráð­herrana að tala, sem er óvenju­legt.“ Hann sagði jafn­framt að hann hefði ekki komið nálægt því að útsend­ingu af flokks­þing­inu hafi verið slitið eftir klukku­tíma langa ræðu hans á fyrri degi flokks­þings­ins. Því var ræða Sigurðar Inga Jóhanns­sonar ekki send út. Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum sagði aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, Jóhannes Þór Skúlason, að um mis­tök hefði verið að ræða, en tækni­menn í Háskóla­bíó sögðu engin mis­tök hafa átt sér stað. Þeir hafi fengið fyr­ir­mæli um að rjúfa útsend­ing­una eftir ræðu Sig­mundar.

Þetta segir Sig­mundur að sé allt hluti af hann­aðri atburða­rás sem þarna hafi náð hámarki, og ein­hverjir aðrir hafi verið að reyna að gefa til kynna að hann og aðstoð­ar­maður hans hafi verið þarna að verki. Honum hafi verið sagt hverjir hafi staðið á bak við þessa hönn­uðu atburða­rás en hann hafi ekki getað sann­reynt það.

Þá end­ur­tók Sig­mundur Davíð að það hafi mætt mik­ill fjöldi fólks á flokks­þingið á sunnu­dag­inn, fólk sem ekki hafði tekið þátt áður. Þetta fólk hafa komið í rútum. Þegar honum var greint frá frétta­flutn­ingi þess efnis að einu rút­urnar sem hafi verið á staðnum hafi verið rútur með kín­verskum ferða­mönnum sagði hann: „Þetta var ekki hópur af kín­verskum ferða­mönnum sem ég mætti. Ég held að ég hefði alveg áttað mig á því.“

Sig­mundur Davíð lýsti svo yfir ein­dregnum stuðn­ingi við Lilju Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og odd­vita flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Hann hvatti fólk til þess að mæta á kjör­stað til þess að greiða henni atkvæði. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að hún nái inn á þing,“ sagði Sig­mundur Davíð, og sagði Lilju vera eins og hann sjálfur, hafi aldrei ætlað sér í póli­tík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár