Norsk Hydro hættir við kaupin á álverinu í Straumsvík

Norska álfyr­ir­tækið Norsk Hydro ASA hefur hætt við kaup á álver­inu í Straums­vík. Frá þessu er greint á heima­síðu Norsk Hydro en fyr­ir­tækið gerði í febr­úar skuld­bin­andi til­boð um að kaupa álverið af núver­andi eig­anda þess, Rio Tinto.

Norska álfyr­ir­tækið Norsk Hydro ASA hefur hætt við kaup á álver­inu í Straums­vík. Frá þessu er greint á heima­síðu Norsk Hydro en fyr­ir­tækið gerði í febr­úar skuld­bin­andi til­boð um að kaupa álverið af núver­andi eig­anda þess, Rio Tinto.

[links]Í til­boð­inu fólst að kaupa allt hlutafé í íslenska álver­inu, 53 pró­sent hlut í hol­lenskri verk­smiðju Rio Tinto og helm­ings hlut í sænskri verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins. Til­boðið í allan pakk­ann hljóð­aði upp á 345 millj­ónir dali, eða 34,7 millj­arða króna.

Búist var við því að ferl­inu myndi ljúka á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs.

Í til­kynn­ingu frá Norsk Hydro segir að upp­fylla hafi þurft fjölda skil­yrða, til að mynda frá sam­keppn­is­yf­ir­völdum og íslenskum stjórn­völdum. Auk þess hafi tekið langan tíma að fá sam­þykki frá evr­ópskum sam­keppn­is­yf­ir­völdum.

„Eftir að hafa kannað aðrar tíma­línur, útkomur og óskaði Hydro eftir því að hætt yrði við við­skiptin,“ segir í til­kynn­ing­unni. Báðir aðilar hafa sam­þykkt rift­un­ina og Hydro hefur dregið umsókn sín til evópska sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til baka.

Í febr­úar sagði Svein Ric­hard Brand­tzæg, for­stjóri Norsk Hydro, að til­boðið end­ur­spegl­aði mikla trú fyr­ir­tæk­is­ins á álf­ram­leiðslu. Eft­ir­spurn eftir því sé að vaxa meira en eftir nokkrum öðrum málmum á heims­vísu.

Norsk Hydro er eitt stærsta álfyr­ir­tæki í heimi. Norska ríkið á 43,8 pró­sent hlut í því og norski olíu­sjóð­ur­inn á auk þess 6,5 pró­sent hlut. Hjá fyr­ir­tæk­inu starfa um 13 þús­und manns. Hluta­bréf Norsk Hydro eru skráð í kaup­höll­inni í Osló.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár