Alls 317 á biðlista eftir því að komast í afplánun í fangelsi – Þar af 38 konur

Dóms­mála­ráð­herra er sam­mála umboðs­manni Alþingis um að til­efni sé til að skoða hvort það halli á konur innan fang­els­is­kerf­is­ins. Eina opna fang­elsið sem stendur konum til boða er Sogn, sem þykir ekki jafn eft­ir­sókn­ar­vert og Kvía­bryggja.

Sex konur voru í afplánun í fangelsinu á Hólmsheiði í lok september síðastliðins.
Sex konur voru í afplánun í fang­els­inu á Hólms­heiði í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Mynd: Aðsend

Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins voru 279 karlar og 38 konur á biðlista eftir afplánun í fang­elsi. Sam­an­lagt voru því 317 manns að bíða eftir að afplána dóma sem þeir höfðu verið dæmdir til að sitja af sér.

Þetta kemur fram í svari Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Við­reisnar, um stöðu kvenna í fang­elsum lands­ins sem birt var á vef Alþingis í dag.

Þar segir að ell­efu konur hafi verið í afplánun í lok sept­em­ber­mán­aðar. Sex þeirra voru í fang­els­inu á Hólms­heiði, þrjár á Sogni og tvær voru að afplána utan fang­elsa.

Umboðs­maður Alþingis birti í sept­em­ber skýrslu þar sem stóð að mögu­lega væri til­efni til að taka ólíka stöðu karla og kvenna í fang­elsum lands­ins til sér­stakrar skoð­unar. Skýrslan var gerð í kjöl­far þess að umboðs­maður fór í óvænta eft­ir­lits­ferð á Kvía­bryggju þar sem 20 karlar afplána dóma. Var það mat hans að Kvía­bryggja væri eft­ir­sókn­ar­vert fang­elsi sam­an­borið við önnur, en um svo­kallað opið fang­elsi er að ræða. Eina opna úrræðið sem býðst konum er hins vegar Sogn, sem þykir ekki jafn eft­ir­sókn­ar­vert. Auk tveggja opinna fang­elsa eru tvö lokuð fang­elsi á Íslandi: áður­nefnt fang­elsi á Hólms­heiði og Litla-Hraun.

Sjálfboðaliða með jóga- og leikfimitíma fyrir konur

Þorbjörg spurði ráð­herra hvort hann tæki undir það mat umboðs­manns Alþingis að það hall­aði á konur innan fang­els­is­kerf­is­ins þegar kæmi að aðstöðu. Í svari Jóns segir að í skýrslu umboðs­manns segi að til­efni sé til að skoða aðstæður kven­fanga í íslenskum fang­elsum með heild­stæð­ari hætti en hefur verið gert þar sem meiri hluti fanga sé karl­kyns og fulln­ustu­kerfið því að miklu leyti mótað með það í huga. „Innan fulln­ustu­kerf­is­ins hefur verið reynt að koma til móts við aðstæður kvenna í fang­elsum og þá stað­reynd að konur hafi færri vist­un­ar­mögu­leika en karlar í fang­elsum. Það hefur til dæmis verið gert með því að konur hafa aðgang að stærra úti­vist­ar­svæði á Hólms­heiði en karlar og aukatóm­stunda­her­bergi þar og þá fá þær for­gang í vinnu á Hólms­heiði. Sjálf­boða­liðar hafa á tíma­bilum komið í fang­elsin með jóga- og leik­fimi­tíma fyrir konur.“

[adspot]Þorbjörg spurði einnig til hvaða aðgerða ráð­herr­ann ætl­aði að grípa til að bæta stöðu kvenna í fang­elsum lands­ins. Í svari Jóns sagði að hann tæki undir það sem fram komi í skýrsl­unni um að til­efni sé til að skoða hvort halli á konur innan fang­els­is­kerf­is­ins og þá með hvaða hætti. „Til stendur að gera breyt­ingar á lögum um fulln­ustu refs­inga og verða þessi sjón­ar­mið þá tekin til sér­stakrar athug­unar sem og aðrar athuga­semdir frá umboðs­manni.“

Fjöldi þeirra sem bíða eftir afplánun hefur dreg­ist saman frá því sem áður var en Kjarninn greindi frá því snemma árs 2018 að þá hafi 560 manns beðið eftir því að kom­ast í afplánun. Í þeirri umfjöllun kom einnig fram að tæpur helm­ingur þeirra sem sat inni í íslenskum fang­elsum á þeim tíma hefðu setið inni áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fangelsi

FréttirFangelsi

Með­al­dómur fanga á Íslandi í dag er rúm­lega fjögur ár

Þann 13. októ­ber síð­ast­lið­inn voru 139 fangar að afplána óskil­orðs­bundna fang­els­is­refs­ingu í fang­elsum íslenska rík­is­ins. Auk þess afplán­aði einn vara­refs­ingu vegna fésekta og 15 sátu í gæslu­varð­haldi. Þeir sem sátu inni þann dag voru því sam­tals 155 tals­ins. Það eru um 86 pró­sent þeirra 180 dóm­þola sem eru að afplána óskil­orðs­bundna fang­els­is­refs­ingu. Hluti þeirra, alls 25 manns, afplánar hana utan...
FréttirFangelsi

Helm­ingur fanga hefur áður afplánað, flestir sitja inni vegna fíkni­efna

Um helm­ingur þeirra sem afplána dóma í íslenskum fang­elsum hafa setið inni áður. Íslend­ingar eru í miklum meiri­hluta í fang­els­unum, eða 91 pró­sent vist­manna. Flestir sitja inni fyrir fíkni­efna­brot, kyn­ferð­is­glæpi eða ofbeld­is­brot. Þetta kemur fram í svari Fang­els­is­mála­stofn­unar rík­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um mála­flokk­inn. Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um hann und­an­farna daga.Lang­flestir eru Íslend­ingar Þótt 139 fangar sitji í fang­elsum...
FréttirFangelsi

475 bíða eftir afplánun í fang­elsi, allt að fimm ára bið

Alls bíða 475 dóm­þolar eftir því að hefja afplánun í íslenskum fang­elsum. Sá sem hefur beðið lengst hefur beðið í tæp fimm ára eftir því að hefja afplánun. Ástæðan er ein­föld, öll fang­elsi eru yfir­full, dómar eru að lengj­ast og mála­flokk­ur­inn hefur setið á hak­anum árum saman. Fang­els­is­mála­stofnun hefur látið Kjarn­anum í té ýmsa töl­fræði og upp­lýs­ingar um stöðu fang­els­is­mála...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár