Tugmilljarða króna vaxtamunaviðskipti í fyrra

Erlendir aðilar fjár­festu fyrir 76 millj­arða króna á Íslandi í fyrra. Langstærsti hluti fjár­fest­inga þeirra voru í íslenskum rík­is­skulda­bréfum, eða 54 millj­arðar króna. Vaxta­muna­við­skiptin eru hafin á fullu á ný.

Alls keyptu erlendir aðilar eignir á Íslandi fyrir 76,1 millj­arð króna í fyrra. Langstærstur hluti fjár­fest­ingar þeirra var í íslenskum rík­is­skulda­bréfum, alls um 54 millj­arðar króna. Þeir keyptu auk þess hluta­bréf fyrir 5,7 millj­arða króna, fast­eignir fyrir 652 millj­ónir króna og fjár­festu í atvinnu­rekstri fyrir um þrettán millj­arða króna. „Aðrar fjár­fest­ingar erlendra aðila“ námu síðan um 1,1 millj­arði króna. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, um inn­flæði gjald­eyris til lands­ins á árinu 2015.

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins segir að það hafi óskað eftir upp­lýs­ingum frá Seðla­banka Íslands til að svara fyr­ir­spurn Þor­steins. Upp­lýs­ing­arnar sem svarið byggir á ein­skorð­ast við það inn­flæði gjald­eyris sem kom til Íslands eftir svo­kall­aðri „nýfjár­fest­inga­leið“ og fyrir til­stilli gjald­eyr­is­út­boðs Seðla­banka Íslands.

Þessar tölur gefa skýrt til kynna að svokölluð vaxta­muna­við­skipti eru hafin af mik­illi alvöru á ný.

Eins og áfengi, góð í hófi

Á árunum fyrir hrun flæddu erlendir pen­ingar inn í íslenska hag­kerfið í svoköll­uðum vaxta­muna­við­skiptum. Í ein­földu máli snú­ast þau um að erlendir fjár­festar tóku lán í myntum þar sem vextir voru lágir og keyptu síðan íslensk skulda­bréf, vegna þess að vextir á þeim eru háir í öllum alþjóð­legum sam­an­burði. Því gátu fjár­fest­arnir hagn­ast vel umfram þann kostnað sem þeir báru af lán­töku sinnar. Og ef þeir voru að gera við­skipti með eigin fé þá gátu þeir auð­vitað hagn­ast enn meira.

Þessi vaxta­muna­við­skipti áttu stóran þátt í að blása upp þá bólu sem sprakk á Íslandi haustið 2008. Það erlenda fé sem leit­aði í íslenska skulda­bréfa­flokka var end­ur­lánað til við­skipta­vina íslensku bank­anna og við það stækk­aði umfang þeirra gríð­ar­lega. Við hrun, þegar setja þurfti fjár­magns­höft á til að hindra útflæði gjald­eyris, voru vaxta­muna­fjár­fest­ingar vel á sjö­unda hund­rað millj­arða króna.

Vextir Seðla­banka Íslands lækk­uðu skarpt fyrstu árin eftir hrun. Und­an­farin miss­eri hafa þeir hins vegar hækkað, enda vaxta­hækk­anir helsta stýri­tæki bank­ans til að halda aftur að verð­bólgu. Stýri­vextir á Íslandi eru nú t.d. 5,75 pró­sent á sama tima og þeir eru mjög nálægt núll­inu i mörgum öðrum löndum. Þessar vaxta­hækk­anir hafa gert Ísland eft­ir­sókn­ar­verð­ara sem fjár­fest­inga­kost. Kynning á áætlun stjórn­valda um losun hafta, sem fyr­ir­hugað er að muni eiga sér stað á þessu ári, gerði einnig mikið til að auka áhuga erlendra fjár­festa á því að ávaxta fé sitt á Íslandi. Losun hafta myndi enda þýða að þeir væru frjálsir til að flytja fé sitt aftur heim þegar skulda­bréfa­flokk­arnir sem þeir fjár­festu í væru á gjald­daga.

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri tjáði sig um aukin vaxta­muna­við­skipta á Íslandi í við­tali við Bloomberg í júní síð­ast­liðnum og sagði þá að aukin vaxta­muna­við­skipti væru fagn­að­ar­efni.Við­skiptin væru merki um að til­trú erlendra fjár­festa á Íslandi væri að aukast. Þau væru þó líkt og áfengið, góð í hófi.

Yfir 50 milljarðar í ríkisskuldabréf

Í fyrra­sumar voru síðan sagðar fréttir af því að vaxta­muna­við­skipti væru klár­lega hafin að nýju. Og sam­kvæmt svar­inu sem Þor­steini barst frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu þá voru þau umtals­verð á árinu. Alls voru keypt rík­is­skulda­bréf fyrir um 54 millj­arða króna af erlendum aðilum í fyrra. Mest var keypt í skulda­bréfa­flokki sem er á gjald­daga 2025, eða fyrir um 21 millj­arða króna. Næst mest var keypt í flokki sem er á gjald­daga 2031, eða fyrir um 15,1 millj­arð króna. Nánast allar fjár­fest­ingar erlendra aðila í rík­is­skulda­bréfum voru gerðar af lög­að­ilum, ekki ein­stak­lingum.

Erlendir aðilar virð­ast líka vera búnir að fá áhuga á íslenskum hluta­bréfum. Þeir keyptu slík fyrir um 5,8 millj­arða króna á síð­asta ári. Mestur áhugi var á bréfum í Icelandair (1.031 milljón króna) og Marel (1.022 milljón króna). Auk þess keyptu erlendir fjár­festar í HB Granda, Högum, Eimskip og Reitum fyrir 820-848 millj­ónir króna á árinu 2015.

Fengu tugmilljarða afslátt á íslenskum eignum

Það eru ekki bara vaxta­muna­við­skiptin sem hafa gert Ísland að aðlandi fjár­fest­inga­kosti fyrir erlenda aðila sem eiga pen­inga á und­an­förnum árum. Hin svo­kall­aða fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands, sem sett var upp til að vinna á snjó­hengju erlendra gjald­miðla­eigna eftir hrunið, var einnig ansi arð­bær leið fyrir þá sem áttu pen­inga í útlöndum og vildu flytja þá til Íslands.

Í útboðum fjár­fest­inga­leið­ar­innar, sem lauk í febr­úar í fyrra, komu alls um einn millj­arður evra til lands­ins og fyrir þær feng­ust um 206 millj­arðar króna. Miðað við opin­bert gengi Seðla­bank­ans á evru í febr­úar 2015 þá voru evr­urnar sem komu inn í landið um 157 millj­arða króna viði. Því fengu fjár­fest­arnir sem nýttu sér þessa leið, en margir þeirra voru Íslend­ingar sem áttu fé erlendis, 48,7 millj­arða króna virð­is­aukn­ingu á fjár­fest­ingu sína. Á manna­máli þýðir það að þeir sem skiptu gjald­eyri í útboðum fjár­fest­inga­leiðar Seðla­bank­ans á árunum eftir hrun fengu um 20 pró­sent afslátt, alls tæp­lega 50 millj­arða króna, á eignum sem þeir keyptu á Íslandi. Þær eignir gátu t.d. verið fast­eignir, hluta­bréf eða skulda­bréf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár