Konum fjölgað í verkefnahóp um mótun kvikmyndastefnu

Breyt­ingar hafa verið gerðar á verk­efna­hóp mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyts­ins um mótun kvik­mynda­stefnu eftir að kynja­hlut­föll hóps­ins voru gagn­rýnd. Hópurinn er nú skip­aður sex konum og sex körlum.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur til­kynnt hverjir skipa verk­efna­hóp á vegum ráðu­neyt­is­ins sem á að vinna að gerð kvik­mynda­stefnu stjórn­valda sem gilda á frá 2020-2030. WIFT, félag kvenna í kvik­myndum og sjón­varpi, sendu frá ályktun fyrr í vik­unni þar sem gagn­rýnt var að í hópnum væru aðeins tvær konur en sjö karlar. Félagið krafð­ist þess að helm­ingur verk­efna­hóps­ins yrði skip­aður konum og að í hópnum yrði að minnsta kosti ein kona sem starfi við kvik­mynda­gerð. Verk­efna­hópur ráðu­neyt­is­ins er nú skip­aður sex konum og sex körlum

Jöfn kynjahlutföll í hópnum

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að verk­efna­hópur hafi verið skip­aður á vegum mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins til þess að vinna að gerð kvik­mynda­stefnu sem gilda á frá 2020-2030. Þetta er í fyrsta sinn sem stjórn­völd móta heild­stæðu stefnu og aðgerða­á­ætlun á grunni hennar, sem nær yfir hlut kvik­mynda í menn­ingu þjóð­ar­innar, menntun í kvik­mynda­gerð á öllum skóla­stigum, miðlun íslensks kvik­mynda­efnis og stuðn­ing við fram­leiðslu kvik­mynda. Samkvæmt til­kynn­ing­unni mun hóp­ur­inn vinna náið með hags­muna­að­ilum í kvik­mynda­gerð á Íslandi við mótun stefn­unnar en ráð­gert er að hóp­ur­inn skili til­lögum sínum fyrir júní­lok á þessu ári.

[links]Kjarninn fjall­aði um ályktun WIFT í gær. Félagið gagn­rýndi það harð­lega að ekki hafði verið fylgt jafn­rétt­is­stefnu stjórn­valda við skipun hóps­ins. Auk þess gagn­rýndi félagið að hvorug þeirra kvenna sem skip­aður voru fyrst í hóp­inn störf­uðu við fag­ið. Því krafð­ist félagið að í verk­efna­hóp ráðu­neyt­is­ins væri að minnsta kosti ein kona sem starf­aði við kvik­mynda­gerð ­og að helm­ingur hóps­ins yrði skip­aður konum. Nú hefur hópur ráðu­neyt­is­ins verið stækk­aður úr níu manns í tólf og nú skipa konur helm­ing hóps­ins.

Verk­efna­hóp­inn skipa nú Dagur Kári Pét­urs­son, leik­stjóri og for­maður Samtaka kvik­mynda­leik­stjóra, Ása Helga Hjör­leifs­dóttir, leik­stjóri og félagi í WIFT, Áslaug María Frið­riks­dóttir, for­maður Kvik­mynda­ráðs, Baldur Sig­munds­son, sér­fræð­ingur í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti, Einar Karl Birg­is­son, fram­kvæmda­stjóri, Friðrik Þór Frið­riks­son, kvik­mynda­leik­stjóri og full­trúi Kvik­mynda­ráðs, Fríða Björk Ingv­ars­dóttir, rektor Lista­há­skóla Íslands , Grímar Jónsson, fram­leið­andi, Hanna Katrín Frið­riks­son, alþing­is­maður, Jóna Páls­dóttir, sér­fræð­ingur í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytiKrist­inn Þórð­ar­son, for­maður Samtaka íslenskra kvik­mynda­fram­leið­enda og full­trúi Samtaka iðn­að­ar­ins og Margrét Örn­ólfs­dóttir, for­maður Félags leik­skálda og hand­rits­höf­unda

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár