Och-Ziff Capital í miklum vanda

Fjár­festar hafa verið að flýja með pen­inga sína frá einu þeirra fyr­ir­tækja sem til­kynnt var um að væri orð­inn eig­andi Arion banka í mars síð­ast­liðnum.

Sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Och-Ziff Capital Mana­gement hefur verið í miklum vanda að und­an­förnu þar sem mikið fjár­magn hefur farið úr stýr­ingu hjá fyr­ir­tæk­inu.

Fjárfestar flýja fyrirtækið

Eignir fyr­ir­tæk­is­ins í stýr­ingu nema nú um 32 millj­örðum Banda­ríkja­dala, um 3.400 millj­örðum króna, en þær hafa minnkað um 22 pró­sent á aðeins einu ári, sam­kvæmt upp­gjöri félags­ins frá því í gær, vegna þess að fjár­festar hafa tekið fjár­magn úr stýr­ingu hjá fyr­ir­tæk­inu.

Sér­stak­lega hefur staða fyr­ir­tæk­is­ins versnað á fyrstu mán­uðum þessa árs en eignir í stýr­ingu hafa minnkað um 5,9 millj­arða Banda­ríkja­dala á þessu ári, sam­kvæmt til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Keypti í Arion banka

Á síð­ustu mán­uðum hefur þetta fyr­ir­tæki verið tölu­vert í umræð­unni hér á landi en til­kynnt var um kaup dótt­ur­fé­lags þess, Sculptor Invest­ments s.a.r.l. á 6,6 pró­senta hlut í Arion banka í mars síð­ast­liðnum. Fyr­ir­tækið er meðal hlut­hafa í Kaup­þingi, eftir að hafa átt kröfur í slitabú bank­ans.

Kaupskil ehf., félagi í eigu Kaup­þings, á 57,9 pró­sent hlut í Arion banka, íslenska ríkið 13 pró­sent, vog­un­ar­sjóður í eigu Taconic Capital Advisors 9,9 pró­sent, Attestor Capital LLP 9,9 pró­sent og Goldman Sachs 2,6 pró­sent.

Í ruslflokk

Ekki er nóg með að rekstur Och Ziff hafi gengið mjög illa að und­an­förnu, og veikst veru­lega vegna van­trausts fjár­festa á fyr­ir­tæk­inu, þá hafa láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki stað­fest brest­ina hjá því. Daginn eftir að til­kynnt var um kaup þess á hlut í Arion banka, þá var láns­hæf­is­ein­kunn fyr­ir­tæk­is­ins færð niður í rusl­flokk af Standard & Poor´s.

Hinn 29. sept­em­ber í fyrra var fyr­ir­tækið sektað um 213 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 25 millj­arða króna, eftir að upp komst um stór­felld lög­brot fyr­ir­tæk­is­ins í Afríku. Fyr­ir­tækið mút­aði emb­ætt­is­mönnum til að hagn­ast sem mest á stöðu­tökum sínum, meðal ann­ars í Líbíu, Níger og Kongó. Það var dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna sem lagði sekt­ina á fyr­ir­tækið og sagði ákvörð­un­ina marka tíma­mót. Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI er enn að rann­saka hluta þess­ara glæpa, og ýmsar hliðar þeirra, ef marka má það sem fram kemur í yfir­lýs­ing­unni frá því í sept­em­ber.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) er ennþá með þessa eign­ar­halds­breyt­ingu á Arion banka til skoð­unar, þar sem vog­un­ar­sjóða­hóp­ur­inn fyrr­nefndi breytti eign­ar­haldi sínu úr óbeinu eign­ar­haldi í beint. Meðal þess sem FME horfir til er hvort þessir telj­ist hæfir til að vera virkir eig­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár