Líf segir það Sóleyjar að útskýra brotthvarf sitt úr mannréttindaráði

Líf Magneu­dóttir, sem sett var af sem for­maður mann­réttinda­ráðs Reykja­vík­ur­borgar í gær, segir að það sem gert er gert. Sóley Tóm­as­dóttir, odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík og for­seti borg­ar­stjórnar, tók ákvörð­un­ina um að setja Líf, sem er flokks­systir hennar, af. Sóley sett­ist sjálf í for­manns­stól­inn í stað­inn.

Í stöðu­upp­færslu sem birt­ist á Facebook fyrir skemmstu segir Líf að það hljóti að vera Sóleyjar að útskýra ákvörð­un­ina. „Fyrir mér horfir málið svona við: Það sem er gert er gert. Núna skiptir mestu að við horfum fram á veg­inn og stöndum saman um að vinna að málum Vinstri-grænna í borg­inni og höfum áhrif til góðs fyrir íbúa og umhverfi. Inn­an­flokksá­tök um per­sónur hjálpa okkur ekki við það.

Ef það má draga lær­dóm af þessu þá er hann sá að það þurfi að bæta ákvarð­ana­töku­ferlið í borg­ar­stjórn­ar­hópnum og efla tengsl hóps­ins og gras­rót­ar­innar í flokknum. Það er verk­efni okkar allra og ég mun leggja mitt af mörkum í þeirri vinnu og treysti því að aðrir í borg­ar­stjórn­ar­hópnum geri slíkt hið sama."

Líf var skipuð for­maður ráðs­ins þegar meiri­hluti var mynd­aður í borg­inni í júní 2014 en á sama tíma tók Sóley við hlut­verki for­seta borg­ar­stjórnar.Fjöl­miðlar hafa greint frá því að sam­starfs­erf­ið­leikar hafi verið á milli Lífar og Sóleyjar um langa hríð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár