Skila ljónynjurnar boltanum heim?

Evr­ópu­mót kvenna­lands­liða í knatt­spyrnu á Englandi, sem hefur slegið hvert metið á fætur öðru er varðar áhorf og áhuga, er senn á enda. Heima­fólk á Englandi, sem er leið­andi í fram­þróun knatt­spyrnu kvenna, eygir loks von um að fá fót­bolt­ann heim.

Ensku ljónynjurnar fagna í kjölfar þess að þær unnu Svía 4-0 í undanúrslitum á þriðjudag.
Ensku ljónynj­urnar fagna í kjöl­far þess að þær unnu Svía 4-0 í und­an­úr­slitum á þriðju­dag. Mynd: EPA

Evr­ópu­móti kvenna­lands­liða í knatt­spyrnu lýkur með úrslita­leik Englands og Þýska­lands á Wembley í kvöld, þegar þær ensku munu gera sitt besta til að koma loks með fót­bolt­ann heim til Englands, líkt og sungið er um í aðal­stuðn­ings­söng ensku knatt­spyrnu­lands­lið­anna. Um er að ræða for­dæma­lausan áhuga á Evr­ópu­móti kvenna­lands­liða, og ekki síst á enska kvenna­lands­lið­inu, enda fer mótið fram á Englandi og eygja heima­menn loks von um að koma fót­bolt­anum heim eftir ára­tuga­löng von­brigði með árangur karla­lands­liðs­ins.

Knatt­spyrnu kvenna hefur ekki aðeins vaxið fiskur um hrygg á Englandi, þó þar sé vöxt­ur­inn lík­lega mestur, heldur er knatt­spyrna kvenna á upp­leið á alþjóða­vísu.

Ekki er mjög langt síðan íslenskar stúlkur sem höfðu áhuga á að iðka knatt­spyrnu þurftu að æfa og spila með drengjum, og var það enn raunin þegar nokkrir núver­andi leik­menn íslenska kvenna­lands­liðs­ins voru að taka sín fyrstu spörk.

[adspot]Áhersla á kvennaknatt­spyrnu hefur farið vax­andi bæði hér­lendis og erlendis. Ísland, England, Noregur, Banda­ríkin og Spánn eru meðal þeirra landa sem greiða leik­mönnum kvenna- og karla­lands­liða sömu laun fyrir lands­liðs­verk­efni og á hafa laun einnig farið hækk­andi hjá kvenna­leik­mönnum félags­liða. Skammt er síðan danska lands­liðs­konan Pernille Harder varð dýr­asti leik­maður kvenna­liðs í sögu knatt­spyrn­unnar þegar Chelsea keypti hana frá Wolfsburg fyrir 250 þús­und pund.

Þá hefur áhorf­endum einnig farið fjölg­andi, en til að taka annað danskt dæmi lék danska kvenna­lands­liðið í fyrsta sinn á Parken í Kaup­manna­höfn í vin­áttu­lands­leik gegn Brasiíu í upp­hitun fyrir Evr­ópu­mótið og fyllti rúm­lega 20.000 sæti. Fram að því hafði kvenna­lands­liðið ávallt leikið í Viborg á Jótlandi. Margir Danir hafa nú kallað eftir því að Parken verði aðal­leik­vangur liðs­ins.

Sögulegt Evrópumót

En aftur að Evr­ópu­mót­inu, þar sem hvert áhorf­enda­metið á fætur öðru hefur verið slegið. Fyrsta metið var slegið í upp­haf­s­leik móts­ins þar sem heima­konur frá Englandi mættu Aust­ur­ríki á Old Trafford í Manchester. Áhorf­endur á þeim leik töldu rúm­lega 68 þús­und manns, sem sló auð­veld­lega fyrra met sem náð­ist þegar rúm­lega 41 þús­und manns horfðu á úrslita­leik Þýska­lands og Noregs á Evr­ópu­mót­inu í Svíþjóð árið 2013. Þegar litið er til þess að um var að ræða fyrsta leik loka­móts til sam­an­burðar við úrslita­leik er afrekið enn merki­legra.

Þegar litið er til heild­ar­fjölda áhorf­enda, þar sem fyrra met stóð í 240 þús­und áhorf­endum á Evr­ópu­mót­inu 2017, hafði metið þegar verið slegið um miðja riðla­keppn­ina og stóð í 357.993 í lok hennar. Áhorf­enda­tölur þegar aðeins úrslita­leik­ur­inn er eftir standa nú í 487,683, og hefur áhorf­enda­fjöldi því verið tvö­fald­aður frá síð­asta meti. Wembley tekur 87 þús­und í sæti og tak­ist að fylla leik­vang­inn í kvöld verður um að ræða áhorf­enda­met á leik í loka­keppni Evr­ópu­móts, líka þegar keppni karla­lands­liða er tekin með. Núver­andi met var slegið í úrslita­leik Spánar og Sóvét­ríkj­anna á Evr­ópu­móti karla­lands­liða árið 1964 þegar 79.115 áhorf­endur mættu á völl­inn.

En áhug­inn á vell­inum hefur ekki aðeins stór­auk­ist heldur einnig utan vallar, nánar til­tekið á sjón­varps­skjánum. Fjöldi áhorfs­meta hefur verið sleg­inn og náði hlut­fall svo­kall­aðra hlut­lausra sjón­varps­á­horf­enda, sem ekki halda sér­stak­lega með öðru hvoru lið­inu, í fyrsta sinn yfir fimm­tíu pró­sentum, sem EUFA segir merki um að auk­inn áhuga meðal almenn­ings.

Ljóst er að knatt­spyrna kvenna er á hraðri upp­leið, og ekki seinna vænna. Með auk­inni áherslu eflist íþróttin og með því eykst áhug­inn, sem skapar svo hvata til enn meiri áherslu og áhuga, og þar fram eftir göt­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kvennalandslið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár