Bjóða bílalán á mun lægri vöxtum en húsnæðislán

BL býður bíla­lán á óverð­tryggðum vöxtum sem eru eru tæp­lega 50 pró­sent lægri en vextir ann­arra fyr­ir­tækja sem lána fyrir bíla­kaupum. Vext­irnir eru auk þess lægri en þeir sem bjóð­ast á ódýrstu hús­næð­is­lán­unum á mark­aðnum.

Á meðal þeirra bíla sem B&L selur er hinn vinsæli rafbíll Nissan Leaf.
Á meðal þeirra bíla sem B&L selur er hinn vin­sæli raf­bíll Nissan Leaf. Mynd: bl.is

Bíla­um­boðið BL ætlar að bjóða við­skipta­vinum sínum bíla­lán á föstum 3,95 pró­sent óverð­tryggðum vöxtum kaupi þeir bíla frá umboð­inu. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Þeir vextir sem BL ætlar að bjóða eru næstum helm­ingi lægri en lægstu vextir sem aðrir lán­veit­endur sem lána til bíla­kaupa eru til­búnir að lána sínum við­skipta­vinum á. Samkvæmt sam­an­burði á bíla­lánum á síð­unni Aurbjörg.is eru lægstu vextir sem voru í boði á mark­aðnum 6,95 pró­sent breyti­legir hjá Arion banka, Ergo og Lykli ef láns­hlut­fallið var 50 pró­sent eða minna.

[links]Ef láns­hlut­fallið var hærra þá hækk­uðu vext­irnir og ef við­kom­andi þurfti til að mynda að taka 80 pró­sent lán til fjög­urra ára voru skap­leg­ustu vextir sem honum stóðu til boða 7,45 pró­sent hjá ofan­greindum þremur fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Lands­bank­inn býður hærri vexti en þetta, eða 7,75 pró­sent óverð­tryggða breyti­lega vexti.

Lánin sem BL ætlar að bjóða upp á verða í sam­starfi við Lykil fjár­mögnun, verða í boði fyrir alla nýja bíla sem seldir verða hjá umboð­inu, þeim fylgja engin lán­töku­gjöld, ekk­ert hámark er á upp­hæð­inni sem lánað er og veitt verða allt að 90 pró­sent lán. Láns­tím­inn verður þrjú til sjö ár en eig­in­fjár­krafan eykst eftir því sem láns­tím­inn leng­ist.

Skáka húsnæðislánunum

Vext­irnir sem BL ætlar að bjóða upp á eru merki­legir í stærra sam­hengi vegna þess að þeir eru einnig umtals­vert lægri en lægstu óverð­tryggðu vextir sem standa lán­tökum til boða við íbúð­ar­kaup. Almennt hafa bíla­lán verið dýr­ari en hús­næð­is­lán.

[adspot]Líkt og Kjarninn greindi frá í gær þá hefur Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna lækkað fasta fasta óverð­tryggða vexti sína á hús­næð­is­lánum mjög skarpt. Um miðjan síð­asta mánuð var til­kynnt um að þeir myndu fara úr 6,12 pró­sentum í 5,14 pró­sent, sem þýðir um 16 pró­sent lækkun.

Eftir þá breyt­ingu eru þeir vextir hag­stæð­ustu föstu óverð­tryggðu vextir sem standa íslenskum íbúð­ar­kaup­endum til boða. Birta líf­eyr­is­sjóður býður hins vegar upp á betri breyti­lega óverð­tryggða vexti til þeirra sjóðs­fé­laga sem upp­fylla skil­yrði til lán­töku. Þeir geta fengið allt að 65 pró­sent af kaup­verði á 4,85 pró­sent vöxtum hjá þeim sjóði. Sú breyt­ing átti sér stað í byrjun júlí.

Vext­irnir sem BL býður sínum við­skipta­vinum til bíla­kaupa eru tæp­lega 19 pró­sent lægri en vextir Birtu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár