Bylting á HBO Max veldur því að veitan kemur seinna til Íslands og efnisframboð minnkar

Bið Íslend­inga eftir HBO Max mun lengj­ast um rúm tvö ár. Ástæðan er sam­ein­ing móð­ur­fé­lags HBO við fjöl­miðl­aris­ann Discovery. Ný stjórn er í brúnni og allt virð­ist vera gert til að spara pen­ing.

Mikið var látið með HBO Max þegar streymisþjónustan var kynnt til leiks vorið 2020 og hún auglýst gríðarlega.
Mikið var látið með HBO Max þegar streym­is­þjón­ustan var kynnt til leiks vorið 2020 og hún aug­lýst gríð­ar­lega. Mynd: EPA

Um tíma var HBO Max talin heitasta streym­isveitan á mark­aðnum. Allt fyrra efni HBO ásamt nýjum þátta­röðum og kvik­myndum hittu beint í mark hjá neyt­endum og skutu sam­keppn­inni ref fyrir rass. Nærri því átta­tíu milljón manns borga áskrift að veit­unni um þessar mundir.

[links]Eftir ein­ungis tvö ár í loft­inu og gott gengi verður þó tals­verð breyt­ing á umgjörð og efn­is­fram­boði HBO Max og í raun öllu sem er undir sama móð­ur­fé­lagi, hinu nýstofn­aða Warner Bros. Discovery.

Í fyrsta lagi á að sam­eina HBO Max við streym­isveitu Discovery ein­hvern tím­ann á næsta ári. Þetta mun tefja komu Max til Íslands, en í fyrra var greint frá því að veitan yrði komin hingað fyrir árs­lok 2022. Það mun ekki ger­ast fyrr en í fyrsta lagi 2024.

Ekki nóg með það heldur á að taka veru­lega til í efn­is­fram­boði fyr­ir­tæk­is­ins til fram­tíðar. Til að gefa ein­hverja mynd af aðstæðum innan veggja Warner Bros. Discovery þá var heilli til­bú­inni kvik­mynd slaufað, vegna þess að hún kom illa út úr prufu­sýn­ingu.

Starfs­menn HBO hafa lýst ótta­á­standi á skrif­stof­unni og líkur eru á að meiri­hluti muni missa starf sitt.

Fram­kvæmda­stjóri Warner Bros. Discovery virð­ist ganga hart fram með áætl­anir sínar að gera fyr­ir­tækið jafn arð­samt og sjón­varps­mark­að­ur­inn var í gamla daga. Einnig verður tals­verð breyt­ing á kvik­mynda­fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins. Myndir þeirra hafa hingað til farið á HBO Max eftir 45 daga bíó­sýn­ingar. Það verður ekki lengur svo­leiðis.

Gamalt efni í bland við nýtt

HBO Max hóf starf­semi þann 27. maí árið 2020 og fékk strax góðar mót­tökur. Allt útgefið efni HBO er á streym­isveit­unni, nýir þættir voru settir á streymið sam­hliða því að vera sýndir í línu­legri dag­skrá. Þar mátti finna flest allt efni í eigu WarnerMedia, kvik­myndir frá Warner Bros og New Line Cinema ásamt efni frá sjón­varps­stöðv­unum CW og TNT svo fáein dæmi séu nefnd.

[adspot]Til við­bótar við eldra efni fór fyr­ir­tækið að fram­leiða bæði sjón­varps­þætti og kvik­myndir undir heit­inu HBO Max Orig­inals.

Veitan er einnig með allt efni frá teikni­mynda­söguris­anum DC, kvik­myndir á borð við Justice League, Wonder Woman og þætti eins og Peacemaker.

Þrátt fyrir sam­keppni við tvær aðrar nýjar streym­isveitur - Apple TV+ og Disney+ - náði HBO Max góðum áskrif­enda­fjölda. Í apríl voru um 76,8 milljón manns með áskrift.

Ekki lengur sérstaða á íslenskum markaði

Síðustu ár hefur efni frá HBO ein­ungis verið aðgengi­legt á Íslandi í gegnum áskrift að Stöð 2. Árið 2014 gerði 365, þáver­andi eig­andi Stöð 2, fimm ára samn­ing við HBO um birt­ing­ar­rétt­indi á efni þeirra á íslenskum mark­aði. Stöð 2 var þá aug­lýst sem „Heimili HBO.“

Þá var nýkomin í loftið af stað eins konar streym­isveita fyrir áskrif­endur Stöðvar 2, sem kall­að­ist Stöð 2 Maraþon. Ásamt því að nýir þættir, eins og Game of Thrones, voru sýndir í línu­legri dag­skrá, var eldra efni HBO aðgengi­legt í gegnum mynd­lykla þeirra.

Í frétta­til­kynn­ingu um samn­ing­inn sagði:

„[...] áskrif­endur geta horft á heilar sjón­varps­þátta­ser­íur eftir hent­ug­leika, sem og rétt­indi fyrir streymi um snjall­tæki og vef. Samn­ing­ur­inn skapar því sér­stöðu fyrir Mara­þonið þar sem efni HBO er ekki aðgengi­legt á Netflix.“

Þessi sér­staða Stöðvar 2 átti þó ekki eftir að end­ast. Flest öll stóru fram­leiðslu­tækin eru annað hvort með streym­isveitu í loft­inu eða í start­hol­unum. Það er því ekki lengur verið að selja efni til ann­arra landa, heldur frekar er landið sett á markað streym­isveit­unnar. HBO hafði einmitt verið með það yfir­lýst að þau vildu ekki selja efni til lands­ins af þessum ástæðum.

Í fyrra­haust var einmitt greint frá því að Ísand væri í hópi landa sem ættu að bæt­ast næst við HBO Max mark­að­inn. Fyr­ir­huguð dag­setn­ing á því var sögð vera haustið 2022.

Stöð 2 þurfti því að efla fram­leiðslu á inn­lendu efni og sækja erlent efni til fyr­ir­tækja sem væru ekki á leið til lands­ins með streym­isveitu. Það sagði alla­vega Þóra Björg Clausen, dag­skrár­stjóri, í sam­tali við frétta­stofu RÚV í októ­ber.

„Það er nóg fram­boð af efni frá öðrum fram­leið­endum og við sjáum það líka í öllum áhorfs­mæl­ingum að íslenskt efni fær mesta áhorfið,“ sagði Þóra. Hún minnt­ist á að af nægu væri að taka af erlendu efni, Uni­ver­sal væri ekki á leið að flytja sína veitu til lands­ins á næstu miss­erum og Sony væri ekki með streym­isveitu yfir höfuð.

Eins og glöggir taka ef til vill eftir er streym­isveitan ekki enn komin til lands­ins. Í gær greindi Frétta­blaðið frá því að komu veit­unnar seinkar um meira en tvö ár.

Tekið úr sambandi eftir minna en mánuð

Fram­kvæmda­stjóri Warner Bros. Discovery, David Zaslav, hefur tekið nokkrar stórar ákvarð­anir á stuttum ferli sínum hjá fyr­ir­tæk­inu. Hann leiddi sam­ein­ingu WarnerMedia og Discovery í apríl eftir langan feril hjá hinu síð­ar­nefnda, þar var hann einnig fram­kvæmda­stjóri og for­seti.

Það leið ekki mán­uður frá því að Zaslav sett­ist í stól­inn að hann var strax búinn að taka 300 millj­óna doll­ara verk­efni úr sam­bandi; streym­isveit­una CNN+.

[adspot]Sú hafði farið í loftið í lok mars og átti að þjóna auka­lega við hlið frétta­stöðv­ar­innar. Þekkt and­lit CNN voru þar með sína eigin þætti, frétta­skýr­ingar og við­töl, ásamt öllu eldra efni sem hafði verið fram­leitt fyrir CNN.

Í lok mars var veit­unni slaufað og starfs­fólki ýmist sagt upp eða flutt í önnur verk­efni sem áttu frekar að þjóna fram­tíð­ar­sýn sam­steypunnar.

Áhorf á CNN+ var langt undir vænt­ingum, um 10.000 manns horfðu dag­lega á veit­una á fyrstu tveim vik­unum að sögn CNBC. Það var önnur yfir­lýst ástæða fyrir skurð­inum. Seinna meir var haft eftir Zaslav að CNN+ þjón­aði ekki til­gangi í fram­tíð­ar­sýn Warner Bros. Discovery, hann vildi frekar reka eina stóra streym­isveitu með öllu, eða alla­vega meiri­hluta, af efn­inu sem fyr­ir­tækið hefur undir höndum sér.

Hent undir rútuna

Zaslav leiddi á dög­unum tekju­fund WMD, fyrir fjár­festa og fjöl­miðla, þar sem hann flutti erindi um tekjur fyr­ir­tæk­is­ins, fram­tíð­ar­sýn og áætl­anir.

Til að ná téðri fram­tíð­ar­sýn virð­ist Zaslav ætla að henda all nokkrum breytum undir rút­una. Ekki nóg með að sam­eina HBO Max og Discovery+ veit­urnar, heldur hafa að minnsta kosti tvær nærri því til­búnar kvik­myndir verið settar upp í hillu til fram­búðar, að öllum lík­indum til að fá skatta­af­slátt. Í stuttu máli er flest að fara að breyt­ast.

Í lok árs 2021 varð breyt­ing á svoköll­uðu „Project Popcorn,“ þar sem allar myndir Warner Bros var streymt á HBO Max sam­hliða því að vera sýndar í bíó. Breyt­ingin fól í sér að myndin var sýnd í bíó í alla­vega 45 daga áður en hún fékk var­an­legt stæði á HBO Max.

Ekki lengur.

Kvik­myndin Elvis sló í gegn í sumar, græddi 447 millj­ónir doll­ara um heim allan og vakti lukku gagn­rýnenda. Hún átti að lenda á HBO Max í byrjun ágúst en er ekki enn komin þangað.

Ástæðan? Warner Bros. Discovery ætlar héðan í frá að velja myndir sér­stak­lega til að birt­ast á streym­isveitu sinni. Elvis varð ekki fyrir val­inu.

„Þessi hug­mynd að dýrar kvik­myndir fari beint á streym­isveitur, við finnum ekki gróða­vænar útskýr­ingar á því,“ sagði Zaslav á tekju­fund­inum. Elvis er hægt að leigja og kaupa staf­rænt á við­eig­andi miðlum en von­góðir áhorf­endur eru beðnir um að halda ekki niðri and­anum eftir að hún kemur á streym­isveitur.

Zaslav segir fyr­ir­tækið ætla fjár­festa meiri fjár­munum og tíma í bíó­upp­lifun­ina. Til þess þarf að spara og finna glufur í bók­hald­inu. Aðferðir hans til að finna téðar glufur eru í besta falli umdeildar.

Kvikmyndir breytast í skattaafslátt

Fram­leiðslu á kvik­mynd­inni Batgirl um sam­nefnda ofur­hetju var nokkuð langt komin í sumar. Kvik­mynda­töku var lokið og eftir-fram­leiðslu­stigið hafið. Leik­stjór­arnir, Adil El Arbi og Bilal Fallah, voru valdir eftir að fyrri kvik­mynd þeirra, Bad Boys For Life, sló í gegn hjá bæði áhorf­endum og gagn­rýnendum.

Þeir voru báðir staddir í Marokkó þar sem Adil var í þann mund að fagna brúð­kaupi sínu þegar þeim var tjáð að myndin, sem hafði kostað um 80 milljón doll­ara, væri komin upp í hillu og myndi aldrei birt­ast augum áhorf­enda.

Batgirl átti að fara beint í sýn­ingu á HBO Max.

Fram­leiðslan hafði þegar vakið athygli innan nör­da­menn­ing­ar­innar þar sem Michael Keaton var feng­inn til að leika Leð­ur­blöku­mann­inn á ný, í fyrsta sinn síðan árið 1992. Einnig var myndin hluti af upp­risu Brendan Fraser, sem var frægastur við upp­haf tutt­ug­ustu ald­ar­innar, en hann átti að leika vonda kall­inn, Eld­flug­una. Sjálf Leð­ur­blöku­stelpan átti að vera leikin af Leslie Grace, sem sló í gegn í söng­leiknum In the Heights.

Ekkert verður af mynd­inni. Ýmsar ástæður voru gefnar; þá helst að prufu­sýn­ing á mynd­inni gekk ekki vel og athuga­semdir ein­hverra áhorf­enda voru nei­kvæðar.

Lík­leg­ast er þó skatta­af­slátt­ur­inn sem Warner Bros. Discovery fær af slaufun mynd­ar­innar hafi spilað stærsta rullu í ákvörðun þeirra. Eins og áður kom fram er það yfir­lýst stefna David Zaslav að hafa nægt fjár­magn til að ná almenni­lega inn á bíó­mark­að­inn.

Batgirl er ekki eina myndin sem var fórnað. Teikni­mynd­inni Scoob! var einnig slaufað þrátt fyrir að vera svo gott sem til­búin og nokkrar þátt­araðir eru komnar í hættu­flokk þrátt fyrir að hafa fyrir nokkru síðan fengið stað­fest­ingu á annarri seríu.

Tíu ára plan eins og Marvel

David Zaslav hefur ekki farið leyndum orðum um áform sín. Hann vill græða að nýju á bíó­sýn­ingum og ná sömu hæðum og sjón­varps­fram­leiðsla tutt­ug­ustu ald­ar­innar náði eitt sinn. Eitt af því er að nýta gíf­ur­legt safn DC á ofur­hetjum, líkt og Marvel Studios hefur gert feikna vel síð­ustu tólf ár.

Samkvæmt ein­hverjum for­svars­mönnum gekk prufu­sýn­ing á Batgirl illa. Zaslav hefur sagt að hann vill vernda orð­spor kvik­mynda á vegum WMD, það þýðir að léleg kvik­mynd sem kost­aði tug­millj­ónir doll­ara gæti sett var­an­legt sár á orð­spor fram­leið­and­ans. Það kemur því ef til vill á óvart að til stendur enn að gefa út The Flash, þrátt fyrir að stjarna mynd­ar­innar, Ezra Miller, hafi verið hand­tek­inn fyrir óspektir og lík­ams­árás, ásamt því að vera sak­aður um að leiða ein­hvers konar sér­trú­ar­söfnuð.

Zaslav vill nefni­lega reyna að líkja eftir sam­eig­in­legum kvik­mynda­heim líkt og þeim sem Marvel Studios hefur full­komnað síð­ustu fjórtán ár. Myndir þeirra hafa náð inn millj­örðum doll­ara ásamt því að skapa um sig stóran og hlið­hollan hóp aðdá­enda.

[adspot]Það hafa myndir DC ekki gert. Þær hafa vissu­lega grætt ein­hvern pen­ing, en ekki gefið af sér nógu gott orð til að ein­hver nenni að skapa sam­eig­in­legan kvik­mynda­heim utan um. Justice League kom út árið 2017 við nokkuð volgar mót­tökur líkt og fyrri myndir um ofur­hetjur þess heims, eins og Batman v Superman.

Einnig ríkir nokkur óvissa um fyr­ir­hug­aðan þrí­leik Matt Reeves um Leð­ur­blöku­mann­inn.

Fyrsta myndin, The Batman, kom í bíó fyrr á árinu og sló ræki­lega í gegn, bæði hjá gagn­rýnendum og áhorf­endum. Myndin er ekk­ert tengd sam­eig­in­legum kvik­mynda­heim DC en tókst þó að græða um 770 millj­ónir doll­ara á heims­vísu.

Verður þessum þrí­leik fórnað í þágu ann­arra mynda sem David Zaslav hefur meiri hug á að setja í bíó? Hvað með þær myndir sem var eitt sinn lofað að myndu lifa svo að segja að eilífu á streym­isveit­unni en var svo hent út sökum sparn­að­ar­að­gerða?

Það ekki ljóst hvað ger­ist næst. HBO Max mun sam­ein­ast Discovery, en hvað þýðir það? Verður stærri og þar með dýr­ari streym­isveita í boði með minna efni en það sem áður var?

Það er þó ljóst að streym­isveitu­mark­að­ur­inn mun taka ein­hverjum breyt­ingum á næstu árum, ef þetta eru áherslur Warner Bros. Discovery.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár