Bein og blöð brotin í sögu Grand Theft Auto

Síðustu ár hefur Rockstar Games bætt aðstæður starfs­manna sína tals­vert. Næsta leik í umdeildri tölvu­leikja­seríu hefur seinkað sökum þess. Sá leikur fær því til við­bótar yfir­haln­ingu, þar má helst nefna kven­kyns aðal­per­sónu.

Rockstar Games hefur dansað á áhuga­verðri línu á þeim tutt­ugu árum síðan fyr­ir­tækið var stofnað. Um er að ræða eitt virtasta tölvu­leikja­fyr­ir­tæki heims í dag, sem hefur fram­leitt marga af vin­sæl­ustu og sölu­hæstu tölvu­leikjum allra tíma. Leikur frá Rockstar hefur verið með ákveð­inn gæða­stimpil á sér; spil­arar vita að þeir eru að fá gæða­vöru í hend­urnar.

Fyr­ir­tækið hefur annan stimpil á sér, fyrir það að fram­leiða umdeilda og ofbeld­is­fulla leiki þar sem ævin­týra­gjarnir glæpa­menn hyggj­ast klífa met­orða­stig­ann í und­ir­heimunum. Rockstar hefur kom­ist upp á kant við hags­muna­hópa á borð við kirkjur, for­eldra­sam­tök, rit­skoð­ara og heilu rík­is­stjórn­irnar með umdeildum og ofbeld­is­fullum leikjum sínum.

Nú virð­ast nýir og breyttir tímar vera að ganga í garð hjá tölvu­leikj­aris­anum.

Samkvæmt frétta­flutn­ing hefur verið hreinsað til á skrif­stof­unum, stjórn­endur hafa unnið mark­visst að því að inn­leiða jákvæð­ari og skipu­lagð­ari starfsanda. Bæði fyrrum og núver­andi starfs­menn hafa birt ásak­anir af slæmum vinnu­að­stæðum, þá sér­stak­lega kven­kyns starfs­menn sem lýsa kerf­is­bundnu ofbeldi í þeirra garð.

Breyt­ing­arnar ná einnig yfir við­fangs­efni tölvu­leikj­anna. Næsti leikur í Grand Theft Auto ser­í­unni, titl­aður GTA 6, verður með einn kven­kyns spil­an­legan karakter, eitt­hvað sem hefur ekki verið í neinum leik þeirra hingað til. Einnig verður and­rúms­loft leikj­anna meira í takt við nútím­ann. GTA hefur ávallt verið svört ádeila á banda­rískt sam­fé­lag, en húmor leikj­anna er oftar en ekki á kostnað minni­hluta­hópa.

Heim­ildir herma að leik­ur­inn verði kom­inn út innan tveggja ára, en níu ár er síðan síð­asti leikur í ser­í­unni kom út. Það er ljóst að mikil eft­ir­vænt­ing ríkir eftir leiknum, en biðin hefur lengst vegna bættra vinnu­að­stæðna hjá starfs­mönnum Rockstar.

Háðsádeila á Bandarískt samfélag

Í gegnum rúm­lega tutt­ugu og fimm ára sögu GTA hafa allar spil­an­legar per­sónur verið karl­kyns. Lengst af var bara einn slíkur sem ferð­að­ist í gegnum sögu­svið síns leiks, iðu­lega byggt á banda­rískum borgum eins og Miami, Los Angeles eða New York, og vann sig upp met­orða­stig­ann í und­ir­heimunum. Spilarar hafa algjört frelsi í leikj­unum, geta rænt bílum, skotið fólk á förnum vegi og flúið undan lög­regl­unni.

[adspot]Það hefur þó aldrei verið meg­in­inn­tak leikj­anna. Efni­viður leikj­anna hefur ávallt verið djúp háðsá­deila á Banda­rískt sam­fé­lag. Gert hefur verið stólpa­grín að neyslu­væð­ingu, skot­vopna­eign og stjörnu­dýrkun svo fátt eitt sé nefnt.

Í GTA 6 verður ein af spil­an­legum aðal­per­sónum leiks­ins kona af lat­neskum upp­runa. Fram hefur komið að leik­ur­inn verði undir áhrifum sögu Bonnie og Clyde, glæpap­ars sem fór ráns­hendi um mið­ríki Banda­ríkj­anna í Krepp­unni Miklu. Spil­an­legar per­sónur verða því lík­leg­ast tvær, ef marka má efni­við­inn.

Annað sem tekið hefur verið fram er yfir­færsla á and­rúms­lofti og við­fangs­efni leikj­anna. Aðal­per­sónan mun vissu­lega vera glæpa­maður sem rænir og ruplar á ofbeld­is­fullan hátt, en umhverfið í kring og aðrar per­sónur verða aðeins meira í takt við nútím­ann.

Svartur húmor, kvenfyrirlitning og transfóbía

Leik­irnir eru þekktir fyrir raun­veru­lega og sann­fær­andi eft­ir­myndir í sögu­sviðum sínum. Með hækk­andi gæðum eru borg­irnar áþekkar venju­legri borg. Öll fyr­ir­tæki sem sjást á förnum vegi eru með nafn og jafn­vel slag­orð. Þessi nöfn eru oftar en ekki orða­grín í kló­sett-húmors­stíl. Þar má nefna Brown Streak Railroad eða Pharte Gas.

Það sem hefur þótt gagn­rýn­is­vert er karllægur og svartur húmor sem hefur verið mjög ein­kenn­andi fyrir leik­ina frá upp­hafi. Gagn­rýnendur hafa kallað leik­ina kven­fyr­ir­lít­andi, hómó­fó­bíska og trans­fó­bíska. Auka­per­sónur, sem annað hvort hjálpa eða standa í vegi fyrir aðal­per­sónum leikj­anna, eru margar hverjar ýktar stað­al­myndir af minni­hluta­hópum, eins og sam­kyn­hneigðum karl­mönnum eða inn­flytj­endum.

„Brand­arar“ á kostnað kvenna lit­uðu helst leik­ina til að byrja með.

GTA 3 frá 2001 endar á því að aðal­per­sónan, Claude, bjargar kærust­unni sinni frá aðal­skúrknum. Loka­at­riðið sýnir þau tvö ganga hægt og rólega frá víg­vell­inum, en kærastan talar Claude í kaf. Þegar skjár­inn verður svartur heyr­ist hleypt af byssu.

And­rúms­loft leikj­anna batn­aði reglu­lega með árunum, kol­svartur endir GTA 3 er til að mynda lík­leg­ast hápunktur kven­fyr­ir­lít­andi „brand­ara“ fyr­ir­tæk­is­ins.

Það sem helst hefur verið umdeilt er frjáls­leg notkun leikja­hönn­uða á gríni á kostnað trans sam­fé­lags­ins. Síðasti útgefni leik­ur­inn í ser­í­unni er GTA V, en hann kom út árið 2013. Til er fjöl­spil­un­ar­út­gáfa af leiknum, GTA Online, þar sem hópar spil­ara eru saman á einum net­þjón. Sá er reglu­lega upp­færður með nýjum auka­per­sónum og spil­an­legum athöfnum.

Frá 2013 hafa orðið tals­verðar bylt­ingar varð­andi orð­ræðu í garð minni­hluta­hópa. Síðustu ár hefur það helst verið trans sam­fé­lagið að keyra af stað vit­und­ar­vakn­ingu á meið­andi orð­ræðu sem eykur for­dóma í garð trans ein­stak­linga. Leik­ur­inn er því orð­inn barn síns tíma, árið 2013 var það enn nokkuð vin­sælt að nota trans fólk sem ein­hvers konar brand­ara­línu í kvik­myndum, sjón­varpi og tölvu­leikjum.

For­svars­menn Rockstar hafa sýnt fram á vilja til að koma til móts við aðdá­endur. Í end­ur­út­gáfu á GTA V sem kom út á nýj­ustu kyn­slóð leikja­tölva í ár, voru teknir út ýmsir hlutir sem töld­ust móðg­andi í garð trans sam­fé­lags­ins. Þar á meðal voru gang­andi veg­far­endur sem líkt­ust dragdrottn­ingum fjar­lægðir.

„Þessar per­sónur fóru aldrei í taug­arnar á mér sem kynsegin ein­stak­lingur, af því að ég sá þær alltaf bara sem dragdrottn­ingar, frekar en ein­hvers konar birt­ing­ar­mynd af trans konum,“ skrifar einn af stjórn­endum GTA Base, aðdá­enda­rek­inn fjöl­mið­ill um allt sem teng­ist leiknum. „Ég held frekar að það hafi verið trans­fó­bískt fólk sem ákvað að þetta ættu að vera trans­konur, sem varð til þess að allt í einu voru þetta orðnar ýktar stað­al­myndir.“

Miðað við þessar breyt­ingar og hvernig húmor­inn í fyrri leikjum hefur verið byggður á ýmsum stað­al­myndum og orða­gríni, lítur allt út fyrir að næsti leikur verði með allt annað and­rúms­loft en spil­arar hafa van­ist síð­ustu tutt­ugu ár.

Vandamál sem nær yfir alla menninguna

Síðustu tvö ár hafa nokkur af stærstu tölvu­leikja­fyr­ir­tækjum heims verið í brennid­epli vegna slæmra vinnu­að­stæðna. Í fyrra var Activision Blizzard, fram­leið­andi á sumum af vin­sæl­ustu leikjum okkar tíma eins og World of Warcraft og Call of Duty, kært af Atvinnu og Hús­næð­is­mála­ráðu­neyti Kali­forníu-ríkis fyrir það sem hefur verið kallað typpa­menn­ing (e. frat boy culture). Svipaða sögu er að segja um franska tölvu­leikj­aris­ann Ubisoft, sem hefur verið á bak við heims­frægar ser­íur á borð við Assassin’s Creed og Far Cry. Fyr­ir­tækið fékk á sig kæru í heima­land­inu fyrir svip­aðar sakir.

Í þessum fyr­ir­tækjum eru starfs­menn ekki bara af meiri­hluta karl­kyns, heldur eru stjórn­un­ar­stöður almennt mann­aðar af körlum. Kvenkyns starfs­menn hafa lýst stans­lausu áreiti, bæði kyn­ferð­is­legu og kyn­bundnu, á vinnu­staðnum. Í mál­sókn­inni á hendur Activision Blizzard var því lýst að menn skriðu eftir gólfum og undir skrif­borð kvenna í marg­vís­legum til­gangi. Konur lýstu ann­ars konar kyn­ferð­is­legu áreiti og ofbeldi í starfs­manna­hitt­ingum.

[adspot]Karlkyns stjórn­endur ýmist huns­uðu beiðnir um rann­sóknir á atvik­unum eða refsuðu karl­kyns starfs­mönnum lítið sem ekk­ert. Fundir og starfs­manna­hitt­ingar voru haldnir á nekt­ar­dans­stöðum og drykkja á vinnu­tíma var alls­ráð­andi.

Þessu til við­bótar hefur tölvu­leikja­iðn­að­ur­inn verið umdeildur fyrir það sem er kallað crunch, þar sem starfs­menn vinna alla daga vik­unnar þegar það stytt­ist í útgáfu leiks. Starfs­menn hafa lýst 60 til 100 klukku­stunda vinnu­vikum með litlu sem engu fríi, margir hverjir án almenni­legs yfir­vinnu­kaups. Í mörgum til­fellum var um að ræða verk­taka, ekki fast­ráðið starfs­fólk.

Rockstar hefur verið sakað um þessa typpa­menn­ingu, ásamt því að hafa verið eitt fyrsta fyr­ir­tækið sem var ásakað um að þræla starfs­mönnum sínum út í aðdrag­anda leikja­út­gáfu.

Árið 2018 kom hópur starfs­manna fram og kvart­aði yfir ósann­gjörnum vinnu­að­stæðum og löngum vinnu­tíma í aðdrag­anda útgáfu á Red Dead Redemption 2. Í kjöl­farið voru fleiri fyr­ir­tæki ásökuð um til­neydda yfir­vinnu sem var oftar en ekki án yfir­vinnu­kaups.

Samkvæmt nýj­ustu fréttum hafa for­svars­menn Rockstar farið í nafla­skoðun á þessum tíma­punkti og haf­ist handa við að taka fyr­ir­tækið í gegn.

Óþægilegum millistjórnendum hent út

Í des­em­ber 2018 lét Jeronimo Barrera, þá einn af fram­kvæmda­stjórum vöru­þró­unar Rockstar, af störfum eftir tutt­ugu ára feril hjá fyr­ir­tæk­inu. Hann hafði verið einn af mik­il­væg­ustu mönnum í brúnni, yfir­séð fram­leiðslu á öllum útgefnum leikjum og meira til. Í við­tali við Variety tjáði hann blaða­manni að hann væri til­bú­inn að róa á ný mið eftir langan og góðan feril.

Að öllum lík­indum spil­aði meira inn í þessa ákvörðun hans að hætta. Á dög­unum og mán­uðum eftir til­kynn­ing­una fóru á flug sögu­sagnir að innan veggja Rockstar hafði Barrera verið eins konar harð­stjóri sem hik­aði ekki við að öskra á und­ir­menn sína og hóta fólki brott­rekstri við minnstu sakir.

Einnig fóru á flug sögu­sagnir um kyn­ferð­is­lega áreitni af hálfu Barrera. Hann átti að hafa beðið leikja­hönnuð, sem var þá nýbyrj­aður, að setj­ast í kjöltu sína og nudda innra læri sitt. Starfs­mað­ur­inn, Colin Bundschu, reyndi að til­kynna atvikið til mannauðs­deildar Rockstar en ekk­ert varð úr. Hann gaf út bók um málið árið 2017, með breyttum nöfnum.

Hluti af umbreyt­ingu Rockstar hefur því verið að kasta út stjórn­endum sem starfs­fólk hefur lýst sem óþægi­legum að vinna með, eða voru hluti af typpa­menn­ing­unni sem var ráð­andi á nokkrum skrif­stofum í land­inu.

Einnig hefur starfs­fólki verið lofað að fá frek­ari vinnu­rétt­indi, þá helst að fara úr verk­taka­vinnu yfir í launað starf. Helst hefur fyr­ir­tækið lofað að eng­inn starfs­maður verður neyddur til að vinna yfir­vinnu við fram­leiðslu leiks­ins.

Brottför ýmissa manna, ekki bara Barrera, heldur einnig eins af stofn­endum Rockstar, Dan Houser, hefur tví­mæla­laust áhrif á næstu leiki.

Þetta þýðir auð­vitað að lengri tími fer í fram­leiðslu­ferlið. Leikja­fram­leið­endur vinna oft baki brotnu í aðdrag­anda leikja­út­gáfu sökum skila­frests sem útgef­endur og fjár­festar ákveða. Hvort GTA 6 verði lengur en tvö ár í við­bót í fram­leiðslu á eftir að koma í ljós, en einnig verður áhuga­vert að sjá hvernig spil­arar taka í fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar.

Það gæti komið í ljós á sunnu­dag­inn, þann 7. ágúst, en plakötum með þeirri dag­setn­ingu var bætt við leik­inn fyrir nokkrum vikum síðan. Á plakatinu er aug­lýst ein­hvers konar mót­or­hjóla­keppni í borg­inni Vice City. Þetta rennir stoðum undir kenn­ingar spil­ara að sögu­sviðið verði í þeirri borg, sama og í sam­nefndum leik frá 2002, byggt á borg­inni Miami í Flórída.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár