Tuttugu mega koma saman

Samkvæmt nýrri reglu­gerð sem taka mun gildi á fimmtu­dag mega tutt­ugu koma saman í stað tíu nú. Þá mega lík­ams­rækt­ar­stöðvar og sund­staðir opna með ákveðnum fjölda­tak­mörk­unum. Krár má hafa opnar til kl. 21.

Ný reglu­gerð um aðgerðir inn­an­lands mun taka gildi á fimmtu­dag og er hún sam­hljóða til­lögum sem komu fram í minn­is­blaði Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis. Þetta sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra í sam­tali við Vísi eftir rík­is­stjórn­ar­fund í morgun. Hún sagði að „gegn­um­s­neytt“ hafi verið mjög mikil sam­staða um aðgerð­irnar í rík­is­stjórn.

Að því er fram kemur á Vísi munu nýjar aðgerðir taka gildi á mið­nætti aðfara­nótt fimmtu­dag og gilda í þrjár vikur. Helstu atriðin eru þau að tutt­ugu mega þá koma saman í stað tíu, sund- og lík­ams­rækt­ar­staðir mega opna með 50 pró­sent af leyfi­legum fjölda gesta og krár geta haft opið til kl. 21. Þá verða fjar­lægð­ar­reglur í skólum færðar niður úr tveimur metrum í einn. [adspot]

Helstu breytingar á almennum samkomutakmörkunum

Í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu er sagt frá helstu breyt­ingum á almennum sam­komu­tak­mörk­unum:

  • Almennar fjölda­tak­mark­anir verða 20 manns.
  • Sund- og bað­stöðum og heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvum heim­ilt að opna fyrir 50% af leyfi­legum hámarks­fjölda gesta, auk ann­arra skil­yrða.
  • Íþrótta­æf­ingar og -keppnir barna og full­orð­inna með og án snert­inga í öllum íþróttum heim­ilar, án áhorf­enda. Hámarks­fjöldi full­orð­inna verður 50 manns en fjöldi barna fer eftir sömu tak­mörk­unum og í skóla­starfi.
  • Skíða­svæðum heim­ilt að taka á móti 50% af hámarks­fjölda mót­töku­getu hvers svæðis.
  • Svið­listir, þar með talið kór­a­starf, heim­ilar með allt að 50 manns á sviði og 100 sitj­andi gestum í hverju hólfi, auk ann­arra skil­yrða.
  • Hámarks­fjöldi við athafnir trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga áfram 30 manns en fjölgar í 100 manns við útfarir.
  • Öllum versl­unum heim­ilt að taka á móti 5 við­skipta­vinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 manns, auk 20 starfs­manna í sama rými og við­skipta­vinir.
  • Skemmti­stöðum, krám, spila­sölum og spila­kössum heim­ilt að hafa opið með sömu skil­yrðum og veit­inga­stöðum þar sem heim­il­aðar eru áfeng­is­veit­ingar.
  • Verklegt öku­nám og flug­nám með kenn­ara heim­ilt.

Regl­urnar gilda um alla, óháð því hvort fólk er bólu­sett eða með mótefni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár