Segir afnám einkasölu ríkisins á áfengi fjölgi dauðsföllum

Laufey Tryggva­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Krabba­meins­skráar, segir að það blasi við að slökun á aug­lýs­inga­banni og afnám einka­sölu rík­is­ins á áfengi muni valda auk­inni neyslu áfengis og þar með fjölgun dauðs­falla, meðal ann­ars vegna krabba­meina.

Laufey Tryggva­dóttir, klínískur pró­fessor í lækna­deild HÍ og fram­kvæmda­stjóri Krabba­meins­skrár Krabba­meins­fé­lags Íslands seg­ist vona að Alþingi fari ekki í öfuga átt við lýð­heilsu­stefnu stjórn­valda og slaki á aug­lýs­inga­banni á áfengi og afnemi einka­sölu rík­is­ins áfengi. Í rit­stjórn­ar­grein í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins segir Laufey það blasa við að afnám á einka­sölu rík­is­ins á áfengi muni valda auk­inni neyslu og þar með fjölgun dauðs­falla, meðal ann­ars vegna krabba­meina.

Goðsögnin um hóflega drykkju riðar til falls

Í rit­stjórn­ar­grein sinni, Krabba­mein, áfengi og sam­fé­lags­leg ábyrgð, í Lækna­blað­inu segir Laufey að það séu ekki nýjar fréttir að áfeng­is­neysla auki áhættu á til­teknum krabba­meinum. Lengi hafi verið vitað að sam­band sé á milli áfeng­is­neyslu og krabba­meins í munn­holi, koki, barka­kýli, vél­inda, lifur, brjóstum, ristli og enda­þarmi. Hún segir að samt sem áður hafi mörgum brugðið í brún þegar nið­ur­stöður stórrar rann­sóknar birt­ust í Lancet í ágúst­mán­uði í fyrra. Í nið­ur­stöðum þeirrar rann­sóknar kom fram að þótt hóf­leg neysla á áfengi, undir einu glasi á dag, geti lækkað áhættu á blóð­þurrð i hjarta og á syk­ur­sýki hjá konum þá vegi aukin áhætta á krabba­meini og fleiri sjúk­dómum upp þau áhrif.

„Samkvæmt þessu hefur öll áfeng­is­neysla heilsu­fars­á­hættu í för með sér og goð­sögnin um að hóf­lega drukkið vín bæti heils­una riðar til falls. Fyrri leið­bein­ingar hafa jafn­vel mælt með einu til tveimur glösum á dag en höf­undar reikna með að nið­ur­stöð­urnar muni valda breyt­ingum þar á,“ segir Laufey.

Fram kom í sömu rann­sókn að þriðj­ungur jarð­ar­búa neyti áfengis, að rekja megi þrjár millj­ónir dauðs­falla árlega til drykkj­unnar og að krabba­mein sé þar í efsta sæti hjá ein­stak­lingum yfir 50 ára. Laufey segir það athygl­is­vert að neyslan auk­ist með batn­andi efna­hag og þjóð­fé­lags­stöðu og þess vegna sé spáð auknum heilsu­far­s­vanda­málum í löndum sem þar efn­hags­staða fer batn­andi, ef ekki verði brugð­ist við.[adspot]

Drykkja myndi aukast um 31 prósent ef almennar verslanir tækju við áfengissölu

Í grein­inni segir Laufey frá rann­sókn sem sýni fram á að þegar sala áfengis er gefin frjáls eykst neyslan til muna. Í rann­sókn­inni voru áhrif þess að aflétta rík­is­ein­okun í Svíþjóð rann­sökuð, ef sala færð­ist ann­ars vegar yfir í einka­reknar sér­versl­anir með áfengi og hins vegar í almennar versl­anir. Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar myndi drykkja aukast um 20 pró­sent ef sér­versl­anir tækju við, en um 31 pró­sent ef það yrðu almennar versl­anir. Áfeng­is­tengd dauðs­föll vegna krabba­meina myndu aukast um 18 pró­sent með sér­versl­unum og 29 pró­sent með almennum versl­unum.

Laufey fjallar einnig um aðra nýlega rann­sókn sem gerð var af nor­rænum krabba­meins­skrám, í þeirri rann­sókn var áætlað hve mikið af nýgengi krabba­meina megi rekja til áfeng­is­neyslu í Danmörku, Finn­landi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Í nið­ur­stöðum segir að búast megi 83.000 áfeng­is­tengdum til­fellum næstu 30 árin og munu flest þess­ara meina grein­ast í ristli, enda­þarmi og brjóstum. Laufey segir að óraun­hæft sé að reikna með að hægt sé að fyr­ir­byggja öll þessi til­felli, það er að öll áfeng­is­neysla hverfi á næst­unni, en með helm­ings fækkun í hópi þeirra sem drekka eitt til fjögur glös á dag mætti koma í veg fyrir 21.500 til­felli.

Laufey bendir þó á í grein sinni að þótt áfengi valdi mörgum krabba­meinum í stóra sam­heng­inu, sé það aðeins einn af mörgum áhættu­þáttum. Þannig skýri áfeng­is­neysla til dæmis aðeins um 5 pró­sent brjóstakrabba­meina og 3 pró­sent ristil- og enda­þarmskrabba­meina á Norð­ur­lönd­unum. „Því er úti­lokað að segja til um það hvers vegna hver og einn fær sitt krabba­mein, enda erum við langt frá því að skilja til hlítar hið flókna sam­spil erfða og umhverfis sem þar er að verki,“ segir Laufey.

Áhrifaríkustu leiðirnar til að draga úr áfengisneyslu allar á valdi stjórnvalda

Laufey bendir á að áfengi sé sterk­lega sam­ofið menn­ingu Íslend­inga og segir að umfjöllun um nei­kvæð áhrif þess eigi ekki greiða leið að eyrum fólks. „Enda hefur WHO (Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin) bent á að áhrifa­rík­ustu leið­irnar til að draga úr áfeng­is­neyslu séu allar á valdi stjórn­valda og felist í tak­mörkun á fram­boði áfengis, verð­stýr­ingu og banni við áfeng­is­aug­lýs­ingum,“ segir Laufey. 

Laufey bendar að lokum á að í stefnu vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í lýð­heilsu og for­vörnum, sem kynnt var í sept­em­ber 2016, komi fram að eitt af mark­miðum ráðu­neyt­is­ins sé að draga úr áfengis- og vímu­efna­neyslu meðal ungs fólks. Í stefn­unni má finna aðgerðir líkt og stýr­ingu á áfeng­is­neyslu með verði, einka­sölu ríkis og háum ald­urs­mörkum til áfeng­is­kaupa. Laufey seg­ist því vona að Alþingi fari ekki í öfuga átt við lýð­heilsu­stefn­una. „Við blasir að slökun á aug­lýs­inga­banni og afnám einka­sölu rík­is­ins á áfengi mun valda auk­inni neyslu og þar með fjölgun dauðs­falla, meðal ann­ars vegna krabba­meina. Vonandi ber Alþingi Íslend­inga gæfu til að fara ekki í öfuga átt við lýð­heilsu­stefnu, heldur beini kröftum sínum í far­veg sem eflir heilsu, vel­ferð og ham­ingju lands­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár