Viðhorfsbreyting í opinberum rekstri og hætta á ofhitnun

Þjóð­hags­ráð hitt­ist öðru sinni í apríl. Í fund­ar­gerð má grein áhyggjur af ofhitnun, ánægju með breytt verk­lag í opin­berum rekstri og mik­il­vægi þess að tíma­setja opin­berar fram­kvæmdir rétt.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Með til­komu þjóð­hags­ráðs og nýjum lögum um opin­ber fjár­mál hefur átt sér stað ákveðin við­horfs­breyt­ing hjá sveit­ar­fé­lögum. Spennan í hag­kerf­inu er aug­ljós og hætta á ofhitnun er fyrir hendi.

Þetta er eitt af því sem rætt var um á öðrum fundi þjóð­hags­ráðs. Fund­ur­inn fór fram 6. apríl síð­ast­lið­inn og stóð í tvo tíma, en fund­ar­gerð af fund­inum hefur nú verið birt.

Í þjóð­hags­ráði sitja Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra, Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, Halldór Hall­dórs­son, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga (Karl Björns­son sat fund­inn í hans stað), Már Guð­munds­son Seðla­banka­stjóri og Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Hér að neðan fara fimm mark­verðir punktar úr fund­ar­gerð­inni.

1. Karl Björns­son sagði á fund­inum að auk­ins skiln­ings gætti nú á hlut­verki sveit­ar­fé­laga og meiri sam­hæf­ing í fjár­málum væri af hinu góða. Í fund­ar­gerð­inni segir: „Við­horfs­breyt­ing hefði orðið hjá sveit­ar­fé­lög­unum en ekki skipti síður máli að skiln­ingur á fjár­málum sveit­ar­fé­laga hefði auk­ist mikið í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Til marks um auk­inn skiln­ing mætti nefna fram­lag rík­is­ins til sveit­ar­fé­laga í tengslum við jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda. Sagði hann sveit­ar­fé­lögin vinna eftir fjár­mála­reglum sveit­ar­stjórn­ar­laga sem væru leið­ar­ljós þeirra við fjár­mála­stjórn. Sveit­ar­fé­lögin hefðu verið að hag­ræða í rekstri sínum og greiða niður skuldir, en það væri erfitt án þess að draga úr fjár­fest­ingum. Það gengi ekki til lengdar að fjár­fest­ingar væru lægri en sem næmi afskriftum. Hann sagði sam­komu­lag milli ríkis og sveit­ar­fé­laga um afkomu­mark­mið og efna­hag sveit­ar­fé­laga verða und­ir­ritað síðar þann dag og sá samn­ingur væri hluti af fjár­mála­á­ætl­un­inni.“

Hætta á ofhitnun

2. Í máli Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra kom fram að þjóð­ar­bú­skap­ur­inn væri um þessar mundir tölu­vert spenntur, þó staðan væri um margt gjör­ó­lík þeirri sem var uppi fyrir fjár­málakrepp­una. Engu að síður væri hættan af ofhitnun fyrir hendi. Passa þyrfti upp á aðhald hjá hinu opin­ber. Þá benti Már á að 85% af inn­streymi á gjald­eyr­is­markað árið 2016 hefði átt rætur að rekja til við­skipta­af­gangs og við­skipta inn­lendra aðila sín á milli. Hins vegar hefði fjár­magnsinn­streymi vegna nýfjár­fest­ingar inn á inn­lendan skulda­bréfa­markað minnkað veru­lega eftir að Seðla­bank­inn fór að beita sér­stöku fjár­streym­is­tæki í fyrra sumar. Afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum var 155 millj­arðar í fyrra og útlit fyrir að hann verði einnig mik­ill á þessu ári. Samhliða þess­ari þróun hefur gengi krón­unnar styrkst hratt. Már sagði enn fremur að vand­inn á hús­næð­is­mark­aði væri einkum sá að skortur væri á íbúðum á markað, og passa þyrfti upp á að stuðn­ingur við kaup­endur á mark­aði leiddi ekki til þess að verðið hækk­aði áfram. Hann sagði að vaxta­lækkun við þessar aðstæður myndi ekki leiða til neins ann­ars en hærra hús­næð­is­verðs. Jafn­vægið þyrfti að vera fyrir hendi í aðgerðum til að styrkja stöð­una á hús­næð­is­mark­aði. Björt Ólafs­dóttir minnt­ist einnig á mik­il­vægi þess að hugað verði að lausnum fyrir ungt fólk sem leit­aði inn­göngu á fast­eigna­markað.

Aukning útgjalda

3. Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra, sagði á fund­inum að aukn­ing rík­is­út­gjalda á þessu ári væri „langt umfram“ það sem mætti reikna með til lengri tíma. „For­sæt­is­ráð­herra sagði að aukn­ing rík­is­út­gjalda á þessu ári væri langt umfram það sem hægt væri að standa undir til lengri tíma. Hann sagði að mikil umræða væri í sam­fé­lag­inu um nauð­syn auk­inna útgjalda en minna færi fyrir umræðu um hvort við hefðum getað mildað rík­is­fjár­mála­stefn­una eftir hrun og farið í gegnum kreppu­árin með öðrum og mild­ari áherslum. Jafn­framt kom fram hjá for­sæt­is­ráð­herra að lög um opin­ber fjár­mál væru farin að hafa mikil áhrif. Umhverfið væri mjög breytt. Í stað þess að ráð­staf­anir í tekju­málum rík­is­ins kæmu fram í nóv­em­ber til afgreiðslu fyrir árs­lok kæmu áætl­anir nú fram að vori og tækju til margra ára. Því væri mjög mik­il­vægt að fjár­mála­á­ætlun kæmi ætíð fram að vori, eins og lög­bundið er, og um hana næð­ist góð umræða,“ segir í fund­ar­gerð­inni.

Allt aðrar tölur á Norðurlöndunum

4. Halldór Benjamín Þor­bergs­son deildi reynslu sinni af sam­tali og sam­starfi við starfs­fólk á Norð­ur­lönd­unum. Hann sagði ljóst að þar væri verið að semja um laun­hækk­anir sem væru miklu minni en á Íslandi, og farið væri hægar í sak­irnar. Miðað væri við getu útflutn­ings­greina til að standa undir þeirri launa­þróun horft væri til. „Ljóst væri af þeim fundum að þar byggju menn við annan veru­leika en við þekkjum hér á landi. Í Svíþjóð hefði t.d. nýlega verið samið um sam­tals 6,5% hækkun launa næstu þrjú árin og í Noregi hefði verið samið um svip­aða hækkun. Þessar þjóðir mið­uðu við getu útflutn­ings­grein­anna þegar samið væri um laun,“ segir í fund­ar­gerð­inni. Til sam­an­burðar má nefna að laun hækk­uðu um 4,5 pró­sent, í einu stökki, 1. maí síð­ast­lið­inn.

Greiða niður skuldir

5. Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði að áherslan í rík­is­fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2018 til 2022 væri ekki síst sú að greiða niður skuldir rík­is­ins, gæta aðhalds í rekstri og stuðla að skyn­samri stjórnun fjár­fest­inga rík­is­ins. Hann sagði mik­il­vægt „að tíma­setja opin­berar fram­kvæmdir skyn­sam­lega og það ætti við um alla opin­bera aðila. Fundað hefði verið með sveit­ar­fé­lögum og stórum rík­is­fyr­ir­tækjum eins og Lands­virkjun og Isavia um tíma­setn­ingar þeirra fram­kvæmda. Mik­il­vægur hluti fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar væri lækkun skulda og gert væri ráð fyrir að þær lækk­uðu ár frá ári.“ Þá kom hann inn á það, að mögu­legt væri að leggja gistin­átta­skatt á sem sveit­fé­lögin fengju í sinn hlut, en útfærslur væru ekki komnar fram í því, á end­an­legt stig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár