Marsbúarnir verða menn innan skamms

Elon Musk ætlar að flytja yfir 100 far­þega í einu til Mars, innan nokk­urra ára. Áformin þykja í senn ótrú­leg og stór­huga.

Frum­kvöð­ull­inn Elon Musk, stjórn­andi og stofn­andi geimsku­tlu­fyr­ir­tæk­is­ins SpaceX og raf­bíla­fram­leið­and­ans Tesla Motors, hugsar stórt. Hann kynnti í gær áform SpaceX um að smíða geimsku­tlur sem munu fara til „nágranna“ plánetu jarð­ar­innar, eins og hann sagði sjálfur, Mars.

Hann seg­ist líta svo á að nauð­syn­legt sé fyrir mann­kynið að byrja að hugsa um tengj­ast öðrum hnöttum og plánetum í geimnum, og setja miklu meiri pen­inga, tíma og kraft í rann­sóknir á sviðum geim­vís­inda en nú er gert. Á næstu 40 til 100 árum muni mann­kynið verða að finna leið til fara frá jörð­inni og búa eða dvelja á öðrum hnöttum. Þetta sé rök­rétt fram­hald fyrir mann­kynið, og tæknin væri orðin nógu háþróuð til að stefna að þessu. Vilji og ákveðni væri það sem þyrfti einna helst, til að ná þessum breyt­ingum fram. „Við verðum að gera þetta,“ sagði Musk.

Til Mars og til baka

Á kynn­ing­ar­fundi sínum í gær, þar sem áform hans og SpaceX um að kom­ast til Mars með fólk voru kynnt, sagði hann að eitt væri alveg ljóst. Það fólk sem yrði í far­ar­broddi þess­arar vinnu, það er í geim­ferð­unum sjálfum, þyrfti að vera til­búið til þess að deyja. Það væri því miður fylgi­fiskur þess að ganga nógu langt til þess að geta fram­þróað bún­að­inn þannig að mark­miðið myndi nást. „Þetta verða hetjur fram­tíð­ar­innar,“ sagði Musk. Flaugin sem SpaceX ætlar að smíða og koma til Mars, mun geta flutt 100 far­þega ásamt far­angri og áhöfn. Flaugin verður því risa­vaxin og full­búin helstu þæg­indum. Stefnan er að smíða fjöl­margar slíkar flaugar og fljúga fólki út í geim.

Musk sagði að ekki væri hægt að selja fólki ferðir til Mars ef ferðin kost­aði 10 millj­arða Banda­ríkja­dala á mann, eða um 1.150 millj­arða króna. „Við teljum að það verði hægt að selja ferð­ina á það sem nemur um 200 þús­und Banda­ríkja­dölum (23 millj­ónum króna) á mann,“ sagði Musk.

Á fund­inum var jafn­framt kynnt mynd­band, þar sem fram­tíð­ar­sýn Musk birt­ist. Þar sést fólk ganga inn í geimsku­tl­una, og síðan er rakið hvernig ferða­lagið mun ganga fyrir sig, og tæknin útfærð. Óhætt er að segja að þetta hafi verið áhrifa­mikið, og sýndu gestir það margir hverjir með lík­ams­tján­ingu.

Efasemdaraddir

Eins og oft er raunin með stórar hug­myndir, þá eru efa­semd­araddir aldrei langt undan. Í þessu til­felli eru hindr­an­irnar margar og stórar. Sú fyrsta sem er aug­ljósust er kostn­að­ur­inn. Ljóst er að hann verður mjög mik­ill, og Musk mun þurfa að reiða sig á til­trú fjár­festa til að ná mark­mið­inu. Þó vasar hans séu djúpir, þá þurfa fleiri að koma að.

Áformin eru ekki ennþá fjár­mögnuð, þó mikil vinna hafi farið í þau. Geim­vís­inda­stofnun Banda­ríkj­anna, NASA, hefur lengi kallað eftir auknu fjár­magni til að geta flýtt þróun á tækni sem gerir geim­ferðir, sem með geim­förum inn­an­borðs, til Mars mögu­legar. Það hefur ekki feng­ist til þessa, þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing á Banda­ríkja­þing og stjórn­völd.

Í annan stað er það síðan traustið sem borið er til SpaceX. Margir efast um að innan fyr­ir­tæk­is­ins sé nægi­lega mikil þekk­ing á þeim þáttum sem þarf að leysa úr, til að geta náð mark­mið­inu. Stutt er síðan geimsku­tla þess sprakk með þeim afleið­ingum að tjón varð sem metið er á 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 25 millj­arða króna. Rannsókn á því stendur enn yfir, og ekki ljóst ennþá hvenær henni lýkur.

Musk sagð­ist á kynn­ing­ar­fund­inum stefna að því að ná að fljúgi mann­aðri geimsku­tlu til Mars fyrir árið 2024, og þegar allt væri til­búið, þá myndi fara full­mönnuð geimsku­tla, með 100 far­þegum, á 26 mán­aða fresti til Mars. Ferða­lagið er langt og strangt, tekur marga mán­uði.

Curiosity, geim­vagn­inn frá NASA, lenti á Mars í ágúst 2012 og hafa rann­sóknir hans ekki síst snúið að því að meta hvort örveru­líf sé að finna á Mars. Vagninn kost­aði um 300 millj­arða króna í smíðum, eða jafn­virði um 2,5 millj­arða Banda­ríkja­dala. NASA hefur sagt að mörg ár til við­bótar muni taka að vinna úr þeim upp­lýs­ingum sem vagn­inn hefur safnað saman í ein­stökum leið­angri sínum um rauða sanda Mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Geimvísindi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár