Samkvæmisdans Trump og Kim nær nýjum hæðum

Óvænt heim­sókn Banda­ríkja­for­seta til Norður-Kóreu er ann­að­hvort hyllt sem sögu­legt afrek eða for­dæmd sem lélegt leik­hús fyrir ljós­mynd­ara.

„Trump for­seti gekk yfir aðgrein­ing­ar­lín­una rétt í þessu. Hann er þar með fyrsti for­seti Banda­ríkj­anna til að heim­sækja land okkar [...] ég trúi, bara með því að horfa á gjörðir hans, að þetta sé tján­ing vilja hans að eyða allri óheppi­legri for­tíð og opna á nýja fram­tíð.“

„Ég vil bara segja að þetta er minn heiður. Ég bjóst eig­in­lega ekki við þessu. Við vorum í Japan fyrir G20 fund­inn, við komum yfir og ég sagði „Hey, ég er hérna, mig langar að hringja í Kim for­mann“ og við gátum hist og að stíga yfir þessa línu var mik­ill heiður. Miklar fram­farir hafa átt sér stað, mik­ill vin­skapur hefur mynd­ast og þetta hefur verið sér­stak­lega frá­bær vin­skapur. Þannig að mig langar að þakka þér, þetta var stuttur fyr­ir­vari og ég vill þakka þér.“

Slík voru orð Kim Jong-Un, for­seta Norður-Kóreu, og Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, á sögu­legum fundi þeirra á sunnu­dag­inn síð­ast­lið­inn. Trump steig yfir lín­una sem aðgreinir einskis­manns­landið á milli Norður-Kóreu og Suður-Kóreu og varð hann þar með fyrsti sitj­andi for­seti Banda­ríkj­anna til að stíga fæti á Norður-kóreska grundu.

Áður hafa Jimmy Carter og Bill Clinton heim­sótt Norður-Kóreu, en það var eftir að kjör­tíma­bili þeirra sem for­setar Banda­ríkj­anna lauk. Obama, George W. Bush og Reagan heim­sóttu aðgrein­ing­ar­lín­una en stigu ekki yfir landa­mærin til Norður-Kóreu, sam­kvæmt umfjöllun The New York Times.

Boðskort á Twitter - Eigum við að hittast(?)!

Líkt og Trump benti á var aðdrag­and­inn að heim­sókn­inni afar stuttur. Föstu­dag­inn síð­ast­lið­inn birti Trump færslu á Twitter síðu sinni þar sem hann sagð­ist vera í Suður Kóreu. Hann skrif­aði að ef Kim sæi færsl­una hans, hvort þeir ættu að hitt­ast á landa­mærum Norður- og Suður-Kóreu, heils­ast og segja halló. Því má segja að boðskortið, ef kalla má það slíkt, hafi borist á Twitter.

Kim varð aug­ljós­lega við beiðn­inni og var mikið fjöl­miðla­fár á fund­inum sjálfum. Nýr fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, Steph­anie Grisham, lenti í stimp­ingum með norður-kóreskum örygg­is­vörðum þegar hún reyndi að hleypa inn banda­rísku fjöl­miðla­fólki á fjöl­miðla­fund for­set­anna tveggja. Grisham, sem tók við starf­inu fyrir ein­ungis nokkrum dögum, var marin eftir rysk­ing­arnar.

Starfs­fólk Trump var óund­ir­búið undir heim­sókn­ina, að því er kemur fram í umfjöllun The New York Times. Þurfti það að hafa sig allt við að hafa öryggis- og skipu­lags­mál á hreinu á ein­ungis örfáum dögum sem vana­lega tekur vikur.

Þrátt fyrir gagn­rýni að ein­ungis hafi verið um leik­rit að ræða virð­ist eitt­hvað hafa komið úr sam­ræðum helj­ar­mann­anna tveggja. Ákveðið var að við­ræður á milli Banda­ríkj­anna og Norður-Kóreu um afvopnun kjarn­orku­vopna hins síð­ar­nefnda muni halda áfram. Margir sér­fræð­ingar telja það þó ólík­legt að Norður-Kórea eyði öllum sínum kjarn­orku­vopnum líkt og Trump hefur kraf­ist.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, steig yfir línuna sem aðgreinir einskismannslandið á milli Norður-Kóreu og Suður-Kóreu og varð hann þar með fyrsti sitjandi forseti Bandaríkjanna til að stíga fæti á Norður-kóreska grundu.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, steig yfir lín­una sem aðgreinir einskis­manns­landið á milli Norður-Kóreu og Suður-Kóreu og varð hann þar með fyrsti sitj­andi for­seti Banda­ríkj­anna til að stíga fæti á Norður-kóreska grundu.

Pennavinirnir Kim og Trump

Trump og Kim hafa á síð­ustu vikum

skipst á bréfum

og

kall­aði

Kim eitt þeirra „frá­bært.“ Hann hrós­aði enn fremur Trump fyrir mikið hug­rekki. Trump kall­aði bréf sem hann fékk frá Kim „fal­legt“ ásamt því sem hann fékk afmæliskort frá Kim 14. júní síð­ast­lið­inn.

Xi Jinping, for­seti Kína, sótti Norður-Kóreu heim vik­una áður. Xi eyddi tveimur dögum í Pyongyang, höf­uð­borg Norður-Kóreu, og er það

fyrsta heim­sókn kín­versks leið­toga til lands­ins í 14 ár

. Mikill skrúður var við heim­sókn Xi þar sem flutt var tón­list og dansað var fyrir Xi og aðra

110 þús­und gesti á stórum leik­velli í Pyongyang

.

Trump hefur vegið hart að bæði Xi og Kim frá því að hann tók við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna. Til að mynda eiga Kína og Banda­rík­inn enn í við­skipta­erjum og hótar Trump reglu­lega að hækka tolla á kín­verskar vörur. Eftir fundi Banda­ríkj­anna og Kína á hann það þó til að segja að allt hafi gengið framar hans óskum og að von sé á að sam­skiptin þiðni.

Hvað næst?

Enn hefur eng­inn frétta­flutn­ingur af fundi Trump og Kim átt sér stað í Norður-kóreskum frétta­miðlum. Sumir sér­fræð­ingar telja að í raun hafi fund­ur­inn ekki haft neina þýð­ingu á meðan aðrir benda á að fund­ur­inn tákni að hægt sé að semja að nýju, sam­kvæmt frétta­flutn­ingi BBC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár