Vogunarsjóðir eiga mest í Kaupþingi - Wintris meðal hluthafa

Heild­ar­fjöldi hlut­hafa Kaup­þingis, sem á stærstan eign­ar­hluta í Arion banka, var 591 í lok árs í fyrra.

Vog­un­ar­sjóðir raða sér efst á lista yfir stærstu eig­endur Kaup­þings, sé mið tekið af árs­reikn­ingi félags­ins fyrir síð­asta ár. Félagið heldur á eignum sem áður til­heyrðu slita­búi hins fallna banka.

Samkvæmt árs­reikn­ingi Kaup­þings fyrir síð­asta ár námu heild­ar­eignir félags­ins um ára­mót námu 409,7 millj­örðum króna, og heild­ar­skuldir eru skráðar 396,3 millj­arðar, en sú tala hefur minnkað úr ríf­lega 800 millj­örðum frá því árið 2015, eftir greiðslu stöð­ug­leika­greiðslna til rík­is­sjóðs og upp­gjörs­ins sem því fylgdi.

Ársverk hjá félag­inu voru um 30 í fyrra en í stjórn voru Benedikt Gíslason, Piergi­orgio LoGreco Alan Jeffrey Carr, Paul David Copley, sem jafn­framt er for­stjóri, og Óttar Pálsson.

Ein stærsta eign Kaup­þings er eign­ar­hlutur í Arion banka. Eign­ar­hald á Arion banka hefur sem kunn­ugt er breyst á þessu ári, en eins og staða mála er nú á félagið Kaupskil, sem er í eigu Kaup­þings, enn 57 pró­sent hlut í bank­anum.

Íslenska ríkið á 13 pró­sent en vog­unar- og fjár­fest­inga­sjóðir, sem allir eru eða voru í hlut­hafa­hópi Kaup­þings í lok árs í fyrra, eiga afgang­inn, eða 30 pró­sent, sam­kvæmt upp­lýs­ing­unum eins og þær birt­ast á vef Arion banka.

Eign­ar­hlutir í félögum eru metnir á 160 millj­arða og lána­söfn á 115 millj­arða, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs í fyrra. Þá var 87 pró­sent eign­ar­hlutur í Arion banka met­inn á 147 millj­arða króna.

Stærsti hlut­hafi Kaup­þings er TCA Opp­urtunity Invest­ments Fund með 26,9 pró­sent hlut, en á meðal stærstu eig­enda eru stórar fjár­mála­stofn­anir og aðrir sjóðir, eins og sést á með­fylgj­andi myndum.

Hlut­hafar í lok árs­ins voru 591, að því er fram kemur í árs­reikn­ingi, en flestir þeirra sem eiga hlut í félag­inu eru þeir sem lýstu kröfu í bú Kaup­þings.

Á meðal þeirra sem eiga hlut er félagið Wintris, sem er í eigu Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og núver­andi for­manns Mið­flokks­ins. Á meðal stefnu­mála flokks­ins er að íslenska ríkið nýti for­kaups­rétt á eign­ar­hlutum í Arion banka, og vinni að end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­mála­kerf­inu með almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi.

Ákveðið hefur verið að bíða með sölu á eign­ar­hlutum í Arion banka, meðal ann­ars vegna póli­tískrar óvissu eftir stjórn­ar­slit og boðun til kosn­inga, 28. októ­ber næst­kom­andi. Óvíst er hvenær af við­skiptum getur orðið, en meðal þess sem að var stefnt var á skrá hlutafé Arion banka á markað.

Eign­ar­hlutur Wintris í Kaup­þingi nemur um 0,01 pró­senti af heild­ar­hlutafé, sam­kvæmt hlut­haf­alista félags­ins og árs­reikn­ingi. Stærstur hluti af heild­ar­fjölda hlut­hafa á litla hluti í félag­inu, eða á bil­inu 0,006 til 0,01 pró­sent.

Um 82 pró­sent af heild­ar­hlutafé félags­ins er undir stjórn 10 stærstu hlut­haf­ana, þar sem vog­unar- og fjár­fest­inga­sjóðir, ásamt stórum banda­rískum og evr­ópskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum, eru mest áber­andi á lista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár