1115. spurningaþraut: Hvar var helgiganga, síðan orrusta?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir ungi pilt­ur­inn á mynd­inni hér að ofan? Hann er nú afreks­maður mik­ill.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á dög­unum var frum­sýnt leik­rit í stór­mark­aði í Reykja­vík. Hvaða stór­mark­aði?

2.  Hverrar þjóðar var Nobel sá sem hin frægu verð­laun eru kennd við?

3.  Hvað hét höf­uð­borgin í Suður Víetnam á tímum Víetnam-stríðs­ins?

4.  Gam­al­kunnur íslenskur brand­ari átti að sýna fram á hve íslenskur stjórn­mála­maður (nokkrir voru nefndir til sög­unnar) væri lélegur í ensku. Eftir dýr­legan máls­verð með ægi­lega fínum gestum erlendis frá átti póli­tíkus­inn okkar að hafa sagt, mump­andi ánægju­lega ... ja, hvernig á hann að hafa látið í ljós ánægju sína?

5.  Hvaða stofnun stýrir Georg Lárusson?

6.  Hvaða stjörnu­merki er nú í gangi í dýra­hringnum?

7.   Hvaða Disney-mynd verður sett upp sem söng­leikur í Þjóð­leik­hús­inu á næsta leik­ári?

8.  Hver ætlar að leik­stýra verk­inu bæði hér og á öðrum Norð­ur­löndum?

9.   Í hvaða firði, flóa, vík eða vogi við Ísland strand­aði salt­flutn­inga­skip frá Barbados í síð­asta mán­uði?

10.  En á mótum hvaða tveggja haf­svæða er Barbados?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Mál­verkið hér að neðan (smellið á það til að skoða það nánar) er frá 19. öld og heitir „Helgi­ganga í XXX-hér­aði“. Í hér­að­inu, sem ég set staf­ina XXX yfir, fór seinna fram ein mesta orr­usta seinni heims­styrj­aldar sum­arið 1943, þótt ekki stæði hún mjög lengi. Þessi stutta og snarpa orr­usta er kennd við hér­aðið, rétt eins og mál­verkið. Hvað heitir þetta hérað? — Ef þið hafið að auki nafnið á mál­ar­anum, þá fáiði vita­skuld lár­við­ar­stig.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Krónunni.

2.  Sænskur.

3.  Saigon.

4.  „I'm so sad that I could spring.“

5.  Land­helg­is­gæsl­unni.

6.  Nautið.

7.  Frozen.

8.  Gísli Örn.

9.  Húnaflóa.

10.  Karí­ba­hafs og Atl­ants­hafs.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Pilt­ur­inn á efri mynd­inni heitir Erling Haaland.

Erling Haaland

Mál­verkið á neðri mynd­inni heitir fullu nafni Helgi­ganga í Kursk-hér­aði. Orrustan við Kursk var háð sum­arið 1943. Rétta svarið er sem sagt Kursk. — Málarinn hét Repin.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár