Rúmlega 80 prósent af tekjum Viðreisnar komu úr opinberum sjóðum

Félag í eigu eig­anda Frétta­blaðs­ins er á meðal þeirra sem gáfu Viðreisn hæsta lög­lega fjár­fram­lag í fyrra. Framlög úr rík­is­sjóði til flokks­ins hækk­uðu milli ára þrátt fyrir að þing­mönnum hans hafi fækkað umtals­vert.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er for­maður Við­reisnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tekjur Við­reisnar voru alls 61,1 milljón króna í fyrra. Að uppi­stöðu komu þær tekjur úr rík­is­sjóði, eða 49,7 millj­ónir króna. Það þýðir að 81,3 pró­sent af tekjum flokks­ins komu úr sam­eig­in­legum sjóðum. Rekstur Við­reisnar kost­aði alls 58,7 millj­ónir króna í fyrra og því skil­aði rekst­ur­inn smá­vægi­legum hagn­aði. Flokk­ur­inn skuld­aði 8,6 millj­ónir króna í lok síð­asta árs og lækk­uðu skuldir hans milli ára úr 10,2 millj­ónum króna.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í útdrætti úr árs­reikn­ingi Við­reisnar sem Rík­is­end­ur­skoðun birti í dag. Þetta er fyrsti útdrátt­ur­inn úr árs­reikn­ingi flokka sem eiga sæti á Alþingi sem stofn­unin birtir vegna árs­ins 2018. Viðreisn fékk 6,7 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og fjóra þing­menn kjörna. Flokk­ur­inn hafði fengið 10,5 pró­sent atkvæða og sjö þing­menn í kosn­ing­unum sem haldnar voru árið áður. Þrátt fyrir færri þing­menn á árinu 2018 en þorra árs­ins 2017 um 11,1 milljón króna milli ára.

[adspot]Árið 2018 var nefni­lega fyrsta árið í rekstri þeirra stjórn­mála­flokk­anna sem eiga full­trúa á þingi frá því að fram­lög til þeirra úr rík­is­sjóði voru hækkuð um 127 pró­sent, að til­lögu sex flokka sem sæti eiga á Alþingi. Fram­lög úr rík­is­sjóði til flokk­anna átta á þingi áttu að vera 286 millj­­­­ónir króna í fyrra en urðu 648 millj­­­­ónir króna eftir að sú ákvörðun var tek­in. Einu flokk­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

Þegar kosið verður næst, árið 2021, munu flokk­­arnir átta sem náðu inn á þing í haust­­kosn­­ing­unum 2017 verða búnir að fá alls úthlutað rúm­­lega 2,8 millj­­örðum króna úr rík­­is­­sjóði vegna áranna 2018-2021 til að standa straum af starf­­semi sinn­i.

Eigandi Fréttablaðsins á meðal helstu styrkjenda

Þrír lög­að­ilar og einn ein­stak­lingur gáfu Viðreisn hámarks­fjár­hæð í fram­lag sem lög heim­ila á síð­asta ári, eða 400 þús­und krónur. Um er að ræða félagið Varðberg ehf., í eigu Helga Magn­ús­sonar, Brim hf., sem nú heitir Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur og er að mestu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, og Símann, sem er skráð félag á mark­aði. Ein­stak­ling­ur­inn sem gaf 400 þús­und krónur heitir Páll Árni Jónsson.

Auk þess gáfu þrír lög­að­ilar flokknum 300 þús­und krónur í fyrra. Þeir eru KP Capital, í eigu Krist­ínar Pét­urs­dóttur, Th. Magn­ús­son ehf., í eigu Þórðar Magn­ús­sonar stærsta eig­anda Eyris Invest, og Samskip, skipa­fé­lag í eigu Ólafs Ólafs­sonar. Þessir þrír lög­að­ilar gáfu Viðreisn 300 þús­und krónur í fyrra.

[links]Helgi Magn­ús­son og aðilar tengdir honum hafa verið á meðal helstu fjár­hags­legra bak­hjarla Við­reisnar frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður árið 2016. Á fyrsta starfs­ári sínu mega stjórn­mála­flokkar fá hærri fram­lög en hið lög­bundna hámark segir til um. Alls gaf Helgi 1,6 millj­ónir króna beint og í gegnum eign­ar­halds­fé­lög sín og fyr­ir­tæki þar sem hann er stór hlut­hafi og stjórn­ar­maður gáfu 800 þús­und krónur til við­bót­a á því ári. Í fyrra gaf Helgi Viðreisn 400 þús­und krónur. Hann keypti á þessu ári allt hlutafé í Torgi, útgáfu­fé­lagið Frétta­blaðs­ins.

Ný lög sam­þykkt í fyrra

Ný lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka voru sam­þykkt á Alþingi í des­em­ber í fyrra. Á meðal breyt­inga sem þau lög fela í sér eru að stjórn­mála­flokkar mega nú taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­ling­um. Hámarks­fram­lagið var 400 þús­und krónur en var hækkað í 550 þús­und krón­ur.

[adspot]Auk þess var sú fjár­hæð sem ein­stak­lingur þarf að gefa til að vera nafn­greindur í árs­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­bjóð­enda hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­ur.

Hugtakið „tengdir aðil­ar“ var líka sam­ræmt, en Rík­is­end­ur­skoðun gerði í fyrra athuga­semdir við umfram­fram­lög aðila sem voru gefin í gegnum nokkur mis­mun­andi félög í eigu sömu aðila.

Þá var ákveðið að láta stjórn­mála­flokk­anna skila árs­reikn­ingum sínum til rík­is­end­ur­skoð­anda fyrir 1. nóv­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og nú er. Sú grund­vall­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­is­end­ur­skoðun mun hætta að birta tak­mark­aðar upp­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­kall­aðan útdrátt, og birtir þess í stað árs­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­ur­skoð­end­um.

Þessi breyt­ing á hins vegar ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári, þrátt fyrir að nýju lögin séu þegar komin í gagn­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár