Helgi Magnússon eignast allt Fréttablaðið – Jón Þórisson nýr ritstjóri

Fjár­festir­inn Helgi Magn­ús­son hefur keypt þann hluta í Torgi, útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins, sem hann átti ekki fyrir. Til stendur að sam­eina Frétta­blaðið og Hring­braut.

Helgi Magn­ús­son og tengdir aðilar hafa keypt helm­ings­hlut 365 miðla í Torgi ehf., útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins. Fyrr á þessu ári keypti Helgi hinn helm­ing­inn í félag­inu.

Samhliða hefur Ólöf Skafta­dóttir látið af störfum sem rit­stjóri blaðs­ins en við starfi hennar tekur Jón Þórisson. Hann var áður for­stjóri VBS fjár­fest­inga­banka og starf­aði um skeið sem við­skipta­blaða­maður á Morg­un­blað­inu. Jón hefur und­an­farin ár starfað sem lög­fræð­ingur. Hann mun starfa við hlið Davíðs Stef­áns­sonar, sem ráð­inn var annar rit­stjóri Frétta­blaðs­ins fyrr á þessu ári. Davíð hafði að mestu starfað við almanna­tengsl og ráð­gjöf áður en hann tók við því starfi.

Frá þessu er greint á vef Frétta­blaðs­ins. Þar segir enn fremur: „Jóhanna Helga Við­ars­dóttir, sem gegnt hefur stöðu fram­kvæmda­stjóra hjá Torgi verður nú for­stjóri og útgef­andi Torgs. Fyr­ir­hugað er að flytja starf­semi Hring­brautar á Hafn­ar­torg þar sem rit­stjórn Frétta­blaðs­ins og fretta­bla­did.is er til húsa. Fyr­ir­hugað er að Guð­mundur Örn Jóhanns­son taki við starfi fram­kvæmda­stjóra sölu, mark­aðs­mála og dag­skrár­gerðar sam­ein­aðs fyr­ir­tækis og Sig­mundur Ernir Rún­ars­son verði áfram sjón­varps­stjóri.

Ætlunin er að eig­endur Hring­brautar leggi fyr­ir­tæki sitt inn í Torg og eign­ist hluta­bréf í félag­inu. Það eru þeir Sigurður Arn­gríms­son, gegnum félag sitt Saffron, og Guð­mundur Örn Jóhanns­son. Aðrir hlut­hafar í sam­ein­uðu félagi verða Jón Þórisson og Helgi Magn­ús­son sem verður eig­andi meiri­hluta hluta­fjár og mun gegna for­mennsku í stjórn Torgs ehf.“

Með þessum kaupum lýkur ára­löngu eign­ar­haldi hjón­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Ingi­bjargar Pálma­dóttur á íslenskum fjöl­miðlum, en þau hafa verið aðal­eig­endur 365 miðla og fyr­ir­renn­ara þeirrar fjöl­miðla­sam­steypu árum saman.

Greint var frá því í júní síð­ast­liðnum að félag í eigu Helga Magn­ús­sonar hefði keypt helm­ings­hlut í Torgi. Skömmu áður hafði Davíð Stef­áns­son verið ráð­inn rit­stjóri og hávær orðrómur hafði verið um að það tengd­ist kaupum Helga á blað­inu.

Frétta­­blaðið var lengi hluti af stærsta einka­reknu fjöl­miðla­­sam­­steypu lands­ins, 365 mið­l­­um. Hún var brotin upp seint á árinu 2017 þegar ljós­vaka­miðlar henn­­ar, fjar­­skipta­­starf­­semi og frétta­vef­­ur­inn Vísir voru seld til Voda­­fone á Íslandi, sem í dag heitir Sýn. Það félag tók við hinum keyptu eignum í des­em­ber 2017. Rekstur Frétta­­blaðs­ins og nýs frétta­vefs, fretta­bla­did.is, var í kjöl­farið settur í felagið Torg ehf. sem er í eigu 365 miðla.

Helgi hefur verið umsvifa­mik­ill í íslensku við­skipta­lífi árum sam­an. Hann er stór hlut­hafi í Mar­el, lang­verð­mætasta félags íslensku kaup­hall­ar­inn­ar, og stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins þar sem hann er einnig hlut­hafi. 

Frétta­blaðið er frí­blað sem er gefið út sex sinnum í viku og dreift í 80 þús­und ein­tök­um. Auk blaðs­ins rekur Torg tíma­ritið Gla­mour og vef­ina fretta­bla­did.is og marka­dur­inn.­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár