Bræðslan til bjargar

Við­skipta­bann Rússa hefur sett mikið strik í reikn­ing­inn hjá útgerð­ar­fyr­ir­tækjum hér á landi. Aukin bræðsla hefur þó minnkað slæm áhrif veru­lega.

Eins dauði er ann­ars brauð segir mál­tækið og það gæti vel átt við mak­ríl­bannið sem Rússar settu á Íslend­inga. Bræðslu­stöðvar hafa haft nóg að gera í stað­inn. Magn mak­ríls sem farið hefur í bræðslu hefur ríf­lega tvö­fald­ast milli ára, fór úr tæpum nút­ján þús­und tonnum í fyrra en er komið í yfir fjöru­tíu þús­und tonn í ár. Í sept­em­ber s.l. fór fimm­falt meira magn af mak­ríl í bræðslu en í sama mán­uði í fyrra. Sem hlut­fall af heild­ar­afl­anum hefur það magnið einnig tvö­fald­ast, fer úr ell­efu pró­sent í fyrra og í 22 pró­sent það sem af er ári.

Heims­mark­aðs­verð á mjöli er aftur á upp­leið eftir að hafa fallið stöðugt frá ára­mótum, það hækk­aði um rúmt pró­sent í sept­em­ber eftir að hafa lækkað stöðugt frá fyrsta árs­fjórð­ungi. Verð á lýsi hefur rokið upp á síð­ustu miss­erum og er komið í yfir 2.500 Banda­ríkja­dali á tonnið. Meðal þess sem veldur hækk­andi verði á þessum afurðum eru erf­ið­leikar með ansjó­su­veiðar í Perú, sem standa undir yfir helm­ingnum af öllu seldu mjöli og lýsi í heim­inum. Erf­ið­leik­arnir í Perú eru sem fyrr vegna El Nino. Það spilar einnig inn í dæmið að Perúmenn setja ansjó­sur í vax­andi mæli í aðra vinnslu, þ.e. til mann­eldis, eins og nið­ur­suðu. Einnig má nefna líkur á dræmum loðnu­veiðum í vetur. Upp­hafs­kvót­inn innan íslensku lög­sög­unnar er aðeins 44þús­und tonn og Norðmenn og Rússar hafa ákveðið að engin loðna verði veidd í Barnets­hafi á kom­andi ver­tíð.

Bent hefur verið á hér á kjarn­inn.is að skell­ur­inn af mak­ríl­banni Rússa er snökktum minni en útgerðin hvað hann verða í byrjun.

Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að úit­gerðir selji frystan mak­ríl á í kringum rétt rúm­lega 1.000 Banda­ríkja­dali á tonnið þessa dag­ana. Þetta er svipað afurða­verð og reikna má með að fáist úr tonn­inu af mak­ríl til bræðslu. Fyrr­greindar tölur sýna að skell­ur­inn af mak­ríl­bann­inu er tölu­vert undir tíu millj­örðum króna en ekki yfir 30 millj­örðum eins og sagt var í fyrstu. SA gaf raunar út álit um að tapið yrði á bil­inu ell­efu til sautján millj­arðar króna þær upp­hæðir eru í hærri kant­inum miðað við þró­un­ina á mjöl og lýs­is­mörk­uðum heims­ins í augna­blik­inu.

Gríðarleg aukning í mjölvinnslu

Útflutn­ings­verð­mæti mjöls jókst um tæp 90 pró­sent frá ára­mótum og til ágúst­loka m.v. sama tíma­bil í fyrra. Og verð­mæti lýsis jókst um hátt í 30 pró­sent milli ára. Það var loðna sem var helsti bræðslu­fisk­ur­inn á þessu tíma­bili en tölur um hlut mak­ríls í bræðslu marg­fald­ast milli ára. Ef svo heldur sem horfir eru líkur á að verð­mæti mjöls og lýsis unnið úr mak­ríl á þessu ári nemi gróf­lega reiknað um fjórð­ungi til þriðj­ungi af heild­inni.

Á vef­síðu Hag­stof­unnar má sjá tölur um útflutn­ings­verð­mæti mjöls og lýsis. Þar kemur fram að verð­mæti mjöls­ins nam tæpum 22 millj­örðum króna (fob verð) frá ára­mótum og til ágúst­loka í ár. Til sam­an­burðar nam verð­mætið tæpum 11,6 millj­örðum kr. á sama tíma­bili í fyrra og jókst um 89,4 pró­sent. Verðmæti lýsis fór úr tæpum 6 millj­örðum króna og í rúm­lega 7,5 millj­arða króna sem er aukn­ing um 26,7 pró­sent.

Mikil auking á loðnu í bræðslu

Sem fyrr segir er það loðnan sem stendur að mestu leiti undir þessum tölum þar til í sumar enda meir en þre­fald­að­ist loðnu­afl­inn á fisk­veiða­ár­inu 2014-2015 miðað við fyrra ár. Fór úr rúm­lega 110.000 tonnum og í yfir 350.000 tonn. Athygli vekur í tölum Fiski­stofu að hlut­fall loðnu til bræðslu fer úr rúm­lega helm­ing í fyrra og í yfir 80% í ár. Það er einkum tvennt sem veldur þessu. Verð á fisk­mjöli var mjög hátt á fyrsta árs­fjórð­ung þessa árs, eða yfir 2.000 doll­urum á tonnið, og mark­aður fyrir frysta loðnu, einkum í Rúss­landi, var á nið­ur­leið. Ekki verður brætt meira af loðnu á þessu ári og því hefur mjöl og lýsi unnið úr mak­ríl stöðugt aukið vægi sitt í heild­inni í sumar.

Tölur um mark­aðs­verð á mjöli og lýsi mið­ast við fram­leiðsl­una í Perú enda stendur hún undir yfir helm­ing af heims­mark­að­inum. Þær sýna lýs­is­verðið yfir 2.500 Banda­ríkja­dölum á tonnið og mjöl­verðið yfir 1.500 Banda­ríkja­dali. Íslensku afurð­irnar eru verð­mæt­ari vegna hærra prótein­inni­halds og sem þum­al­fing­ur­reglu eru óhætt að bæta 150 til 200 Banda­ríkja­dölum á tonnið til að reikna út íslenska verðið.

Auking makríls margfaldast

Tölur um afla sem ráð­stafað er til bræðslu ná til sept­em­ber­loka í ár en kjarn­inn.is fékk þær í fram­haldi af fyr­ir­spurn til Fiski­stofu. Þar kemur greini­lega fram við­brögð útgerð­ar­innar við frétt­unum af því í sumar að Rússar ætl­uðu sér að setja við­skipta­bann á Íslend­inga. Bannið var svo form­lega sett á í ágúst.

Eins og áður hefur komið fram var mark­að­ur­inn fyrir íslenskar sjáv­ar­af­urðir í Rúss­landi orð­inn þungur áður en bannið skall á. Það skýrir senni­lega að stórum hluta mikla hlut­falls­lega aukn­ingu á mjöl og lýs­is­vinnslu. Þannig jókst hlut­deild mak­ríls í bræðslu um yfir 200 pró­sent í maí og um 269 pró­sent í júní. Í sept­em­ber eftir að mak­ríl­bannið skall á fimm­fald­að­ist svo magnið milli ára.

Það sem af er októ­ber er botn­inn síðan dott­inn úr mak­ríl­bræðsl­unni enda veiðum lokið og enn fæst hærra verð fyrir frystar mak­ríl­af­urðir en þær bræddu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár