Skellurinn af makrílbanni ekki eins stór og ætla mætti

Skell­ur­inn sem útgerðin varð fyrir vegna þess að Rússar bönn­uðu sölu á íslenskum mak­ríl og fleiri afurðum nýlega er stór en langt í frá eins stór og ætla mætti af opin­berri umræðu. Verð á mjöli og þó einkum lýsi vegur þar þungt á móti. Raunar má gróf­lega reikna það úr að skell­ur­inn sé nálægt tíu millj­örðum króna en ekki 30 millj­örðum eins og oft hefur verið nefnt.

Sigurður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra jók hlut­fall mak­ríls sem má fara í bræðslu í kjöl­far inn­flutn­ings­banns Rússa úr 30 pró­sent og í 50 pró­sent í síð­asta mán­uði. Heims­mark­aðs­verð á mjöli liggur nú í um 1.700 Banda­ríkja­dölum á tonnið og hefur farið hríð­lækk­andi frá ára­mótum þegar það stóð í um 2.400 Banda­ríkja­dölum. Sér­fræð­ingar spá því að þetta verð verði stöðugt næstu tvo árs­fjórð­unga.

Verð á lýsi hefur hins­vegar farið stöðugt hækk­andi und­an­farin miss­eri og stendur nú í um 2.500 doll­urum tonnið. Búist er við að það haldi áfram að hækka. Til sam­an­burðar feng­ust um 1.450 til 1.500 doll­arar fyrir frystan mak­ríl í Rúss­landi þegar bannið skall á. Hafði mak­ríl­verðið þá lækkað nokkuð frá því í fyrra þegar besti mak­ríll­inn seld­ist á vel yfir 2.000 doll­ara á tonnið og algengt verð var hátt í 1.700 doll­arar per tonn.

Nýt­ing­ar­stuðlar fyrir mjöl og lýsi hvað mak­ríl varðar eru 22,5 pró­sent í mjöl­inu og 21,5 pró­sent í lýs­inu. Það er úr hverju tonni af veiddum mak­ríl má vinna 225 kíló af mjöli og 215 kíló af lýsi. Miðað við fyrr­greind verð skilar mak­ríll í bræðslu í heild tæpum 1.000 Banda­ríkja­dölum á tonnið. Því má gróf­lega áætla að fjár­hags­legt tjón útgerð­ar­innar sé nær 10 millj­örðum krón en þeim 30 millj­örðum króna sem voru mikið í umræð­unni í sumar og byggði á árlegum inn­flutn­ingi mak­ríls á Rúss­lands­markað.

Kreppan hefur lítil áhrif


Við vinnslu þess­arar greinar var haft sam­band við menn sem reynslu hafa af sölu á mak­ríl inn á Rúss­lands­markað. Þeir segja að sem stendur selji Fær­ey­ingar sinn mak­ríl til Rúss­lands á verði sem liggur í kringum 1.650 doll­arar á tonnið og kannski væri nær að miða við það verð þegar tjón af völdum mak­ríl­banns­ins er metið. Á hitt ber að líta að Fæey­ingar eru eina þjóðin í Evrópu sem getur selt mak­ríl til Rúss­lands í dag og þeir eru örugg­lega að kreista eins mikið úr þeim við­skiptum og þeir geta.

Brott­hvarf Rúss­lands­mark­að­ar­ins er þó erf­iður fyrir Íslend­inga því að þrátt fyrir efna­hags­þreng­ingar þar í landi með hruni olíu­verðs á heims­mark­aði hélt mak­ríll­inn verði sínu betur en flestar aðrar inn­flutn­ings­vörur í lands­inu. „Rússar borg­uðu ætíð bestu verðið fyrir stærsta fisk­inn,“ eins og einn sölu­stjóri útgerðar orð­aði það í sam­tali. Þess vegna eru útgerð­ar­menn ekki að setja markríl­inn í bræðslu til hægri og vinstri. Enn er hægt að selja mak­ríl, einkum til Afr­íku­ríkja, á verði sem liggur á bil­inu 1.200 til 1.300 Banda­ríkja­dölum á tonnið. Og menn horfa nokkuð til þess að þann 31. jan­úar n.k. ætla Rússar að end­ur­skoða bannið.

Björt framtíð í bræðslunni


Greining Rabobank í Hollandi sendi frá sér viða­mikla skýrslu í sumar um ástand og horfur á mjöl- og lýs­is­mörk­uðum heims­ins. Þar kemur m.a. fram að lang­tíma­horfur hvað báðar afurðir eru góðar og þó einkum hvað lýsið varðar.

Helstu ástæður fyrir spáum um áfram­hald­andi hækkun á lýs­inu eru einkum sökum þess að æ stærri hluti þess fer til mann­eldis. Lýsið er m.a. und­ir­staðan undir sívax­andi fram­leiðslu á heilsu­af­urðum sem inni­halda omega 3 fitu­sýrur. Hvað varðar fiski­mjöl mun verð á því fara hækk­andi í fram­tíð­inni af tveimur ástæðum. Sú fyrri er að fisk­eldi getur ekki án þess verið. Sem stendur er mjölið á bil­inu 7 til 9% af fóðri fisk­eld­is­stöðva. Rabobank telur að hugs­an­lega sé hægt að ná því hlut­falli niður í 6% en alls ekki neðar því þá sé hætta á að fisk­eldið mis­farist.

Hin ástæðan er ört minnk­andi fram­boð af mjöli í heim­inum því æ hærra hlut­fall af þeim fiski sem fór í bræðslu er nú not­aður beint til mann­eldis. Við Íslend­ingar þekkjum Þetta vel t.d. hvað loðnu­veið­arnar varðar. Í upp­hafi fór nær allur loðnu­afl­inn í bræðslu. Síðan kom hrogna­takan fyrir Jap­ans­markað og fleiri. Enn síð­ar­var byrjað að heilfrysta loðnu til mann­eldis en þar hefur Rússland einnig verið stór mark­aður fyrir Íslend­inga.

Lýsið spólar framúr jurtaolíu


Í grein­ingu Rabobank er að finna sam­an­burð á verð­þróun á lýsi og jurta­olíu á und­an­förnum árum.

[caption id="attachment_39430" align="alignnone" width="533"] Heimild/Mynd: Bloomberg.[/caption]

Þar kemur fram að allt til árs­loka 2012 var verð fyrir lýsi nær hið sama og fyrir soja­olíu. Frá árinu 2013 hefur verð á lýsi hins­vegar rokið upp á meðan verð á soja­olíu hefur farið lækk­andi. Í dag er verð á tonn­inu af soja­olíu ekki nema rúm­lega fjórð­ungur af lýs­is­verð­inu. Hér er miðað við lýsi frá Perú sem er stærsti fram­leið­andi þess í dag. Reikna má með að íslenska lýsið sé verð­mæt­ara þar sem prótein­inni­hald þess er hærra.

Svipaða þróun má sjá hvað mjölið varðar frá árinu í fyrra. Fram til þess tíma var verð á fiski­möli á pari við verð á soja­mjöli en síðan hefur þró­unin verið í sitt­hvora átt­ina. Fiski­mjölið hefur hækkað í verði meðan að soja­mjölið hefur lækkað í verði og er orðið tæp­lega tvö­falt ódýr­ara í dag en fiski­mjöl. Rabobank reiknar með að sá munur fari vax­andi.

Olíuverðið hjálpar til


Annað sem mildar skell­inn sem útgerðin varð fyrir með mak­ríl­bann­inu í Rúss­landi er þróun olíu­verðs. Frá því í fyrra­sumar hefur heims­mark­aðs­verð á olíu lækkað úr nokkuð yfir 100 Banda­ríkja­dölum á tunn­una og niður í undir 50 Banda­ríkja­dali í dag eða um meira en helm­ing. Spár gera ráð fyrir að olíu­verðið hækki ekki mikið í náinni fram­tíð.

Olíu­kostn­aður útgerð­ar­innar er stærsti útgjald­póstur hennar á eftir launum eða um tutt­ugu pró­sent. Þar sem þessi kostn­aður hefur lækkað um helm­ing sam­kvæmt þessum tölum og að teknu til­liti til fram­an­greinds má jafn­vel gefa sér að hagn­að­ur­inn af mak­ríl­veiðum þessa árs sé næstum á pari við síð­asta ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár