Eldfim umbrot og umræða

Þjóðin var bólusett á sama tíma og jörðin skalf og eldur braust úr jörðu á Reykjanesi. Kynferðis­brot karla voru fyrir­ferðamikil í umræðunni sem skipti lands­mönnum í fylkingar.

 

Janúar

6. janúar

Bóluefni Moderna var veitt íslenskt markaðs­leyfi.

6. janúar

Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson meðhöndlari var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðar­stofu sinni. Dómnum var áfrýjað sama dag. Um mitt ár 2020 birti Stundin ítarlega umfjöllun um brot Jóhannesar Tryggva gegn á annan tug kvenna. Í júní var Jóhannes síðan kærður fyrir fimmtu nauðgunina, fyrir að hafa brotið gegn Ragnhildi Eik Árna­dóttur, sem sagði einmitt sögu sína í Stundinni. Lands­réttur þyngdi dóminn yfir Jóhannesi í nóvember, í sex ára fangelsi.

12. janúar

Greint var frá því að bandaríska lyfja­fyrirtækið Pfizer hefði til skoðunar hvort nægt bóluefni væri til svo hægt væri að framkvæma bólu­setningar­rannsókn hér á landi. Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir og Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, stóðu í viðræðum við fyrir­tækið.

13. janúar

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör 2021

Mest lesið undanfarið ár