Lífeyrissjóðir hafa lagt 2,2 milljarða í United Silicon

Þrír líf­eyr­is­sjóðir hafa alls fjár­fest í kís­il­málm­verk­smiðju í Helguvík fyrir 2,2 millj­arða króna. Hún er nú í greiðslu­stöðvun vegna þess að hún getur ekki staðið við skuld­bind­ingar sínar. Ekki upp­lýst um eign­ar­haldið.

Alls hafa þrír íslenskir líf­eyr­is­sjóðir fjár­fest í United Silicon fyrir 2.166 millj­ónir króna. Sjóð­irnir sem um ræðir eru Festa líf­eyr­is­sjóður, Frjálsi líf­eyr­is­sjóður­inn og Eft­ir­launa­sjóður fé­lags ís­lenskra at­vinnu­flug­manna (EFÍA). Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]Þar segir að Frjálsi líf­eyr­is­sjóður­inn hafi fjár­fest mest, eða fyrir 1.178 millj­ónir króna. Rúmur helm­ingur af fjár­fest­ingu líf­eyr­is­sjóða í verk­smiðj­unni er því frá þeim sjóði komin. Allir þrír sjóð­irnir tóku þátt í hluta­fjár­aukn­ingu í apríl og lögðu þá 460 millj­ónir króna til við­bótar í United Silicon. Rúmum fjórum mán­uðum síðar var United Silicon komið í greiðslu­stöðvun og vinnur nú að gerð nauða­samn­inga við kröfu­hafa sína. Í þeim samn­ingum eru umræddir líf­eyr­is­sjóðir í tví­þættri stöðu, þar sem fjár­fest­ing þeirra í United Silicon er bæði í formi hluta­bréfa- og skulda­bréfa­eignar.

Arn­ald­ur Lofts­son, fram­kvæmda­stjóri Frjálsa líf­eyr­is­sjóðs­ins, og Bald­ur­Snorra­son, sjóð­stjóri Festa líf­eyr­is­sjóðs, seg­ja við Morg­un­blaðið að við­bót­ar­hluta­féð sem lagt var til í apríl hafi verið til að reyna að tryggja fyrri fjár­fest­ingu. Þeir hafi fengið ný C-hluta­bréf fyrir sem veiti rétt til for­gangs á arð­greiðslu og tvö­falt atkvæða­vægi. Aðspurðir um hvort að sjóðir þeirra muni leggja meira fé í United Silicon segja báðir að það sé ekki tíma­bært að svara þeirri spurn­ingu.

Áhrif á Arion banka opinberuð í næstu viku

Kjarninn greindi frá því í gær að hlutafé í United Silicon hefði verið aukið um 752 millj­ónir króna á nafn­virði í apr­íl, sam­kvæmt skjölum sem send voru til fyr­ir­tækja­skrá­ar. Arion banki tók einnig þátt í aukn­ing­unni og á í dag 16 pró­sent hlut í United Silicon. Það kom fram í svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarn­ans á þriðju­dag. Arion banki er líka aðal lán­ar­drott­inn United Silicon. Arion rekur auk þess Frjálsa líf­eyr­is­sjóð­inn og hann er til húsa í höf­uð­stöðvum bank­ans í Borg­ar­túni.

[adspot]Arion banki mun birta hálfs­árs­upp­gjör sitt í næstu viku og þar verður fjallað um stöðu United Silicon og áhrif hennar á bank­ann. Við­búið er að Arion þurfi að færa var­úð­ar­nið­ur­færslu vegna vand­ræða fyr­ir­tæk­is­ins. Kjarn­inn leit­aði upp­lýs­inga hjá United Silicon í gær um hvernig eig­enda­hóp­ur­inn væri sam­an­settur í dag, eftir áður­nefnda hluta­fjár­aukn­ingu í byrjun apr­íl. Sá hópur mun óhjá­kvæmi­lega verða fyrir miklum áhrifum vegna stöð­unnar sem er uppi. Fyrir liggur að rekst­ur­inn er að mestu í eigu félags sem er skráð í Hollandi en engar upp­lýs­ingar um hlut­hafa­skrá er að finna í íslenskri fyr­ir­tækja­skrá. Krist­leifur Andr­és­son, tals­maður United Silicon, sagði að upp­lýs­ingar um eign­ar­haldið verði ekki gefnar upp að svo stöddu.

Staða United Silicon hefur áhrif víðar en bara á þá sem lán­uðu fyr­ir­tæk­inu fé eða keyptu hluti í því. Lands­virkjun selur verk­smiðj­unni t.d. raf­magn og Reykja­nes­bær hefur umtals­verðar tekjur af rekstri hennar. Þá eiga Íslenskir Aðal­verk­takar (ÍAV) kröfu upp á millj­arð króna á United Silicon vegna van­greidds kostn­aðar sem féll til við bygg­ingu verk­smiðj­unnar. Þegar hefur verið greint frá því að Reykja­nes­bær hafi ekki fengið greitt á annað hund­rað millj­ónir sem United Silicon skuldar sveit­ar­fé­lag­inu í gatna­gerð­ar­gjöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár