Íslenskar heilbrigðisstofnanir afskrifuðu í fyrra alls rúmlega 36 milljónir vegna ógreiddra reikninga erlendra ferðamanna eða þeirra sem þangað leita sem ekki eru sjúkratryggðir hér á landi . Sú fjárhæð hefur hækkað um tæpar 13 milljónir frá árinu 2016 þegar afskrifaðar voru rúmlega 23 milljónir. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans.
[links]Langhæstu kröfurnar eru afskrifaðar hjá Landspítalanum. Þar voru afskrifaðar árið 2017 rúmar 28 milljónir króna. Athygli vekur að í fyrra voru engar kröfur afskrifaðar hjá Sjúkratryggingum Íslands, árin þar áður hljópu afskriftir á tugum þúsunda en á árunum 2008 til 2014 afskrifaði SÍ tæplega fimm milljónir vegna ógreiddra reikninga. Bætt verklag hjá stofnuninni hefur gert það að verkum að tekist hefur að útrýma afskriftum hjá SÍ.
[adspot]Alls eru voru útistandandi kröfur íslenskra heilbrigðisstofnana rúmar 300 milljónir árið 2017 vegna ógreiddra reikninga erlendra ferðamanna. Þar vega afskriftir Landspítalans enn þyngst, þar sem tæplega 286 milljónir voru ógreiddar í fyrra. Árið 2016 voru það rúmar 90 milljónir en árið 2015 tæpar 56 milljónir. Ógreiddar kröfur Landspítalans hafa því aukist umtalsvert á tveimur árum.
Heilbrigðisstofnanir sjá yfirleitt sjálfar um innheimtu sjúkrakostnaðar. Sem dæmi um ferli innheimtu er hjá Landspítalanum lögð mikil áhersla á staðgreiðslu komugjalda á bráða-, dag- og göngudeildir spítalans. Hlutfall staðgreiddra krafna er nokkuð misjafnt eftir deildum, en að meðal tali er það 80 prósent. Ef ekki er staðgreitt er krafa stofnuð í netbanka og greiðsluseðill sendur í pósti. Áminningarbréf er sent 10 dögum eftir eindaga, sem er 30 dagar, og ítrekunarbréf 45 dögum eftir eindaga. Ef ekki er greitt innan þess tíma er krafan send í lögfræðiinnheimtu.


Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir