Fjölskyldum með neikvætt eigið fé í fasteign fjölgar

Fjöl­skyldum sem skulda meira í fast­eign en nemur virði hennar fjölg­aði á milli ára. Staðan versn­aði eftir heims­far­aldur en hafði skánað frá fast­eigna­krísu eft­ir­hrunsár­anna.

Fjöl­skyldum með nei­kvætt eigið fé í fast­eign fjölg­aði á milli áranna 2023 til 2024 sam­kvæmt nýrri töl­fræði frá Hagstofu Íslands.

Eftir banka­hrun sat fjöldi fjöl­skyldna uppi með fast­eignir sem þau skuld­uðu meira í en nam virði fast­eign­anna. Þessa fjölgun má sjá á línu­rit­inu hér fyrir neðan en stjórn­völd brugð­ust við þessum vanda með ýmsum hætti, meðal ann­ars 110% leið­inni svoköll­uðu, sér­tækri skulda­að­lögun og svo loks Leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu þar sem fast­eigna­skuldir voru færðar niður með greiðslu úr rík­is­sjóði.

Þá fjölg­aði einnig þessum fjöl­skyldum eitt­hvað á árunum þegar Covid-19 far­ald­ur­inn gekk yfir en eftir það tók þeim að fækka á ný. Árið 2023 voru aðeins 2.779 fjöl­skyldur í þess­ari stöðu og höfðu ekki verið færri á þess­ari öld.

Í fyrra tók þeim hins vegar að fjölga á ný. 3,090 fjöl­skyldur voru með nei­kvætt eigið fé í fast­eign.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár