Aðili

Norðurál

Greinar

Norðurál fjármagnaði áróðursherferð gegn Landsvirkjun
Rannsókn

Norðurál fjár­magn­aði áróð­urs­her­ferð gegn Lands­virkjun

Norðurál fjár­magn­aði og skipu­lagði áróð­urs­her­ferð sem átti að veikja samn­ings­stöðu Lands­virkj­unar um raf­orku­verð. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins gekkst við þessu og baðst afsök­unar áður en samn­ingar náð­ust árið 2016. Her­ferðin hafði ásýnd gras­rót­ar­hreyf­ingar en var í raun þaul­skipu­lögð og fjár­mögnuð með milli­göngu lítt þekkts almanna­teng­ils.
Stjórnendur álveranna væru lögbrjótar í Noregi
FréttirÁlver

Stjórn­endur álver­anna væru lög­brjótar í Noregi

Norsk meng­un­ar­lög­gjöf er með tals­vert öðru sniði en sú íslenska. Í henni eru heim­ildir fyrir því að refsa stjórn­endum fyr­ir­tækja sér­stak­lega, fremji þau ítrekað það sem kallað er „meng­un­ar­glæpi“. Reglu­legt eft­ir­lit fag­að­ila með vöktun álvera og hegn­ing fyrir brot á meng­un­ar­lögum, sem er við­tek­inn siður í Noregi, þekk­ist ekki á íslandi.
Skattafléttur álfyrirtækjanna: Vaxtakjör Norðuráls hjá móðurfélagi sínu tekin út úr opinberum ársreikningi
FréttirÁlver

Skattafléttur álfyr­ir­tækj­anna: Vaxta­kjör Norð­ur­áls hjá móð­ur­fé­lagi sínu tekin út úr opin­berum árs­reikn­ingi

Skýring með lána­kjörum Norð­ur­áls er ekki birt í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Móð­ur­fé­lag Norð­ur­áls hefur lækkað vexti Norð­ur­áls ehf. niður 5 pró­sentum. Indriði Þor­láks­son segir að fyr­ir­tækið noti fléttur til að kom­ast hjá skatt­greiðslum á Íslandi en Norðurál segir að vaxta­kjör fyr­ir­tæk­is­ins séu ákveðin hjá „óháðum“ aðila.
Svona sleppa álfyrirtækin við að borga skatta á Íslandi
ÚttektÁlver

Svona sleppa álfyr­ir­tækin við að borga skatta á Íslandi

Norðurál hefur greitt 74 millj­arða í fjár­magns­kostnað, mest til eigin móð­ur­fé­lags, á sama tíma og fyr­ir­tækið hefur skilað bók­færðum hagn­aði upp á 45 millj­arða króna. Indriði Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, segir fyr­ir­tækið nota „fléttu“ til að kom­ast hjá skatt­greiðslum á Íslandi. Öll álfyr­ir­tækin þrjú beita ýmsum aðferðum til að eiga í sem mestum við­skiptum við móð­ur­fé­lög sín og önnur tengd fyr­ir­tæki. Álfyr­ir­tækin segja að um eðli­leg lán vegna fjár­fest­inga sé að ræða. Unnið er að breyt­ingum á skatta­lögum í fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem eiga að girða fyrir óeðli­leg við­skipti tengdra fyr­ir­tækja.
Grundartangi: Paradís þungaiðnaðarins
Rannsókn

Grund­ar­tangi: Paradís þunga­iðn­að­ar­ins

Í starfs­leyfum Norð­ur­áls kemur skýrt fram að fyr­ir­tækið sér sjálft um vöktun og rann­sóknir á umhverf­is­á­hrifum sínum, og leggur til hvernig sú vinna fer fram. Afleið­ing þess, að hags­muna­að­ilar vakti sig sjálfir, virð­ist vera að stór hluti þeirra áhrifa sem álverið hefur á umhverfi sitt, koma aldrei fram í skýrslum þeirra. Norðurál sýnir svo einnig mik­inn metnað í því að gera sem minnst úr þeim áhrifum, sem þó sjást. Ekki er að undra, þegar svo gríð­ar­legir hags­munir fel­ast í því að allt líti sem best út á papp­írum. En rétt er þó, eins og þau benda sjálf á, að farið er eftir lögum í einu og öllu. En við hvern er þá að sakast? Liggur ábyrgðin hjá iðju­ver­unum sjálfum? Hjá Umhverfis- og Skipu­lags­stofnun? Er reglu­verkið ekki nógu stíft? Og hvers vegna fær nátt­úran aldrei að njóta vafans í stað iðn­að­ar­ins?
Draumurinn um verbúðina Ísland
Ingi Freyr Vilhjálmsson
PistillRíkisstjórnin

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Draum­ur­inn um ver­búð­ina Ísland

Ísland fram­tíð­ar­innar gæti litið út eins og stækkuð útgáfa af Vest­manna­eyjum árið 2015. Ef útgerð­irnar Ísfé­lagið, Vinnslu­stöðin, Bergur-Huginn, Huginn og aðrar minni væru ekki í Vest­manna­eyjum væri grund­völlur áfram­hald­andi byggðar þar tæpur nema sem ein­hvers konar þjón­ustu­mið­stöð fyrir ferða­menn. Þökk sé útgerð­unum er atvinnu­leysi hjá á fimmta þús­und íbúa Vest­manna­eyja nán­ast ekk­ert og fast­eigna­verð hefur hækkað um 70 pró­sent á...
Kosningastjóri Framsóknar prókúruhafi félags sem berst gegn sæstreng
Fréttir

Kosn­inga­stjóri Fram­sóknar pró­kúru­hafi félags sem berst gegn sæstreng

Svanur Guð­munds­son seg­ist ekki vera í Fram­sókn­ar­flokknum og að Facebooksíðan „Auð­lind­irnar okkar“ teng­ist hvorki flokknum hags­mun­að­ilum. Einn af for­svars­mönnum síð­unnar hefur unnið sem verk­taki fyrir Norðurál í gegnum árin. Sæstrengur gæti komið sér illa fyrir álfyr­ir­tæki eins og Alcoa og Norðurál því með honum gæti raf­magns­verð hækkað.

Mest lesið undanfarið ár