Svæði

Lúxemborg

Greinar

FréttirWintris-málið

Félag Gunn­laugs fjár­magnað með rúm­lega 250 millj­ónum frá Tortólu

Gunn­laugur Sig­munds­son varð fram­kvæmda­stjóri félags í Lúx­em­borg eftir að það hafði verið fjár­magnað í gegnum skatta­skjólið Tortólu. Fjöl­skyldu­auður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra teng­ist því líka skatta­skjól­inu Tortólu eins og félagið Wintris þar sem eig­in­kona hans, Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, seg­ist geyma fyr­ir­fram­greiddan arf sinn.
FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Vil­hjálmur hættir hjá Sam­fylk­ing­unni: Sagði ekki frá félag­inu sínu á Kýpur

Vil­hjálmur Þor­steins­son tal­aði um félag sitt í Lúx­em­borg sem opin­bert var að hann ætti en sagði ekki frá félag­inu sínu á Kýpur, Alamina Ltd. Félag hans á Kýpur er dótt­ur­fé­lag fyr­ir­tæk­is­ins í Lúx­em­borg og fjár­magnar við­skipti hans á Íslandi auk þess að halda utan um hlut í CCP. Hann sagði ekki frá Kýp­ur­fé­lag­inu fyrr en eftir að það var orðið opin­bert að hann tengd­ist því.
Fréttir

Alcoa á Íslandi flutti 3,5 millj­arða skatt­laust úr landi

Vaxta­greiðslur Alcoa á Íslandi ehf. til móð­ur­fé­lags síns í Lúx­em­borg nema nú tæp­lega 57 millj­örð­um króna frá bygg­ingu álvers­ins á Reyð­ar­firði. Á sama tíma hefur bók­fært tap numið rúm­lega 52 millj­örðum króna. Fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri hefur sagt tapið vera til­búið til að kom­ast hjá skatt­greiðslum en Alcoa rekur það til mik­illar fjár­fest­ingar á Íslandi.
FréttirÁlver

Alcoa greiðir millj­arða til fyr­ir­tækis í Lúx­em­borg

Upp­safnað tap Alcoa á Íslandi á tíu ára tíma­bili er lægra en vaxta­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins. Indriði Þor­láks­son segir vaxta­greiðsl­urnar í reynd vera dul­búnar arð­greiðslur. For­stjóri Alcoa segir tap­rekst­ur­inn eðli­legan fylgi­fisk mik­illa fjár­fest­inga Alcoa. Unnið að laga­frum­varpi sem koma í veg fyrir óeðli­leg við­skipti tengdra aðila.
ErlentÁlver

Volvo sleppur við skatt­inn í Svíþjóð eins og Alcoa á Íslandi

Frétt um hugs­an­leg skattaund­an­skot Volvo í Svíþjóð rifjar upp ítrek­aðar fréttir Kast­ljóss­ins um skatt­greiðslur Alcoa á Reyð­ar­firði. Samstæða Volvo skilar hagn­aði en fram­leiðslu­fyr­ir­tækið í Svíþjóð skilar ítrek­uðu tapi. Volvo hefur ekki greitt eina sænska krónu í fyr­ir­tækja­skatt frá því kín­verskt fyr­ir­tæki keypti bif­reiða­fram­leið­and­ann árið 2010.

Mest lesið undanfarið ár