Fréttamál

Laugaland/Varpholt

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Barna­vernd­ar­stofa fer yfir mál kvenn­ana sem dvöldu á Lauga­landi

Heiða Björg Pálma­dóttir, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að farið verði yfir mál­efni með­ferð­ar­heim­il­is­ins að Lauga­landi, áður í Varp­holti, hjá stofn­un­inni í ljósi umfjöll­unar Stund­ar­innar um meint harð­ræði og ofbeldi gegn stúlkum sem þar voru vistaðar á árunum 1997 til 2007. Heiða Björg segir einnig að hún sé boðin og búin að funda með þeim konum sem lýst hafa ofbeld­inu sem þær hafi orðið fyrir á heim­il­inu, standi vilji þeirra til þess.
ÚttektVarnarlaus börn á vistheimili

Ábend­ingar um harð­ræði og ofbeldi þegar komnar fram árið 2000

Kvartað var undan fram­göngu Ingjalds Arn­þórs­sonar sem for­stöðu­manns Varp­holts og Lauga­lands strax árið 2000 til Barna­vernd­ar­stofu. Umboðs­maður barna fékk fjölda ábend­inga um ofbeldi og illa með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­unum árið 2001, bæði frá stúlkum sem þar dvöldu eða höfðu dvalið og frá for­eldrum. Svo virð­ist sem ásak­an­irnar sem voru settar fram hafi lítt eða ekki verið rann­sak­aðar af hálfu Barna­vernd­ar­stofu. Ingj­aldur starf­aði sem for­stöðu­maður Lauga­lands allt til árs­ins 2007 og hafnar ásök­unum.

19 mín. lestur

ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili

„Upphafið að versta tíma­bili lífs míns“

„Ég er búin að vera að reyna að safna kjarki í mörg ár til að stíga fram og segja frá því sem ég upp­lifði á með­ferð­ar­heim­il­unum Varp­holti og Lauga­landi þegar ég var ung­lingur. Ég vissi alltaf að ég þyrfti að segja frá því sem gerð­ist,“ segir Kolbrún Þor­steins­dóttir, sem var fyrst vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti, sem árið 2000 var flutt í Lauga­land í Eyja­firði. Ingj­aldur Arn­þórs­son stýrði báðum heim­il­unum.
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili

„Kerfið brást dóttur minni og fjöl­skyld­unni allri“

Dagný Rut Magn­ús­dóttir segir að orð geti ekki lýst því hvernig sér hafi liðið á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi. Þetta hafi verið hræði­legur tími. Hún var þar um nokk­urra mán­aða skeið þegar hún var fimmtán ára. Pabbi hennar, Magnús Viðar Krist­jáns­son, ótt­ast að hún jafni sig aldrei að fullu eftir reynsl­una sem hún hafi orðið fyrir á með­ferð­ar­heim­il­inu. Hann segir að kerfið hafi ekki aðeins brugð­ist Dagnýju heldur allri fjöl­skyld­unni.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Varn­ar­laus börn á vist­heim­ili upp­lifðu ótta og ofríki

Sex konur stíga fram í Stund­inni og lýsa alvar­legu ofbeldi sem þær segj­ast hafa orðið fyrir á meðan þær dvöldu á með­ferð­ar­heim­il­unum Varp­holti og Lauga­landi, sem stýrt var af sömu aðilum. For­stöðu­maður heim­il­anna hafnar ásök­unum. Ábend­ingar um ofbeldið bár­ust þegar árið 2000 en Barna­vernd­ar­stofa taldi ekk­ert hafa átt sér stað. Konurnar upp­lifa að málum þeirra hafi verið sópað undir teppið. „Við vorum bara börn.“

Mest lesið undanfarið ár