Flokkur

Fréttaskýringar

Skýring

Titr­ingur á Wall Street - Er mestu hækk­un­ar­sög­unni lokið?

Hluta­bréfa­vísi­tölur víða um heim lækk­uðu mikið í gær og lok­aði mark­aðnum á Wall Street í gær þannig, að mesta dags­lækkun í fjögur ár varð stað­reynd. Lækkun Nasdaq vísi­töl­unnar var 3,52 pró­sent og lækkun S&P 500 3,19 pró­sent. Í Evrópu og Asíu var svip­aða sögu að segja. DAX vísi­talan í Þýska­landi lækk­aði um 2,95 pró­sent, CAC 40 vísi­talan í Frakk­landi um...
Skýring

Keyptu í Símanum fyrir 1,3 millj­arða - Fyrrum for­stjóri Vodafone á meðal kaup­enda

Nokkrir stjórn­endur Símans og hópur ann­arra fjár­festa, meðal ann­ars erlendra, keyptu í dag fimm pró­sent hlut í félag­inu á 1.330 millj­ónir króna. Miðað við það verð er mark­aðsvirði Símans 26,6 millj­arðar króna. Hópinn leiðir hol­lenski fjár­festir­inn Bertrand Kan, sem er fyrrum yfir­maður hjá Morgan Stanley. Kan þekkir vel til Símans, en hann stýrði meðal ann­ars sölu­ferli hans árið 2005, þegar...
Skýring

Þeir komu, sáu og sigr­uðu...en voru farnir átta mán­uðum seinna

Þegar vinstri­flokk­ur­inn Syriza í Grikk­landi vann mik­inn kosn­inga­sigur, 25. jan­úar á þessu ári, hét hann því að binda enda á „nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Grikk­lands“. Hann vildi kom­ast út úr efna­hags­á­ætl­un­inni sem sam­þykkt var 2012, eftir við­ræður við kröfu­hafa lands­ins, þar á meðal Evr­ópu­sam­bandið, Seðla­banka Evrópu, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn og alþjóð­lega banka. Kosn­inga­sig­ur­inn var sögu­legur og með ólík­indum. Flokk­ur­inn fékk 149 þing­sæti af 300, næstum...
Skýring

Er Kaupþing sloppið undan Tchenguiz-bræðr­unum?

Í vik­unni barst slita­stjórn Kaup­þings ný stefna. Hún var frá Robert Tchenguiz, sem var stærsti ein­staki skuld­ari íslenska banka­kerf­is­ins þegar það hrundi haustið 2008. Tchenguiz vill fá skaða­bætur frá Kaup­þingi, og einum slita­stjórn­ar­manni, vegna þess að breska efna­hags­brota­deildin Special Fraud Office (SFO), rann­sak­aði hann. Tchenguiz telur að Kaupþing hafi haft frum­kvæði að og tekið þátt í umræddri rann­sókn, sem síðar...
Skýring

GrabTaxi að verða risi í Asíu - Gjör­breyttur leigu­bíla­mark­aður

Fyr­ir­tækið GrabTaxi er svipað og Uber, fólk pantar sér leigu­bíl í gegnum app. Það er á nokkrum mán­uðum orðið eitt vin­sælasta leigu­bíla­fyr­ir­tæki Suð­austur-Asíu og vext hratt víðar í Asíu. Í gær lauk það fjár­mögnun upp á 350 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 50 millj­örðum króna, en í heild hefur það aflað 650 millj­óna Banda­ríkja­dala, nálægt 90 millj­örðum króna. Í...
Skýring

Loftið lekur úr mestu fast­eigna­bólu sög­unnar - Óttinn við fall Kína

Und­an­farin miss­eri hafa merkin um að kín­verska hag­kerfið sé í hæga­gangi orðið aug­ljós­ari og ótt­inn við að mesta og hrað­asta hag­vaxt­ar­skeið sög­unnar sé lokið, orðið næstum áþreif­an­legur. Einn þeirra sem hefur lagt sig einna mest fram um að vara við afleið­ing­unum af því „þegar“ kín­verska hag­kerfið fer að gefa eftir er Robert Z. Aliber, hag­fræði­pró­fessor og rit­höf­undur. Hann er Íslend­ingum...
Skýring

Náms­lána­skuldir Banda­ríkja­manna þre­fald­ast á ára­tug - Hitamál í kosn­ingum

Náms­lána­skuldir Banda­ríkja­manna hafa þre­fald­ast á und­an­förnum ára­tug og eru nú 1.200 millj­arðar Banda­ríkja­dala (1,2 trillion), eða sem nemur tæp­lega 160 þús­und millj­örðum króna. Upphæðin er ógn­arhá, hvernig sem á hana er horft, og hafa stjórn­völd í Banda­ríkj­unum miklar áhyggjur af því hvernig þær hafa þró­ast. Það sem setti þær í mið­punkt umræð­unnar um það bil sem árlegar útskriftir úr banda­rískum...
Skýring

Vill flytja 4000 störf frá Kaup­manna­höfn

Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn (Dansk fol­ke­parti) vill að tólf opin­berar stofn­anir verði fluttar frá Kaup­manna­höfn og komið fyrir á lands­byggð­inni. Hug­myndin hefur fengið blendnar und­ir­tektir. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn jók stór­lega fylgi sitt í kosn­ing­unum 18. júní síð­ast­lið­inn og er nú næst stærsti flokk­ur­inn á danska þing­inu með 37 þing­menn. Flokk­ur­inn hefur þrátt fyrir vel­gengn­ina valið að vera utan stjórnar, telur sig þannig hafa...
Skýring

Þjóð­kirkjan vill hærri greiðslur úr rík­is­sjóði en meiri­hluti þjóð­ar­innar vill ekki Þjóð­kirkju

Þjóð­kirkjan hafn­aði á föstu­dag beiðni inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um áfram­hald­andi nið­ur­skurð. Hún vill að ríkið standi við hið svo­kall­aða krikju­jarða­sam­komu­lag sem gert var árið 1997. Í því sam­komu­lagi fólst að Þjóð­kirkjan afhenti rík­inu um 600 jarðir til eignar en á móti átti ríkið að greiða laun 138 presta og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu. Samkvæmt frétt á heima­síðu Þjóð­kirkj­unnar var land undir Garðabæ og...
Skýring

Ný fast­eigna­bóla að blása út - Við­vör­un­ar­bjöllur hringja

Víða um heim eru nú farin að sjást merki um ofhitnun á mörk­uðum með atvinnu­hús­næði, að því er segir í umfjöllun Wall Street Journal í dag. Fjármagn hefur flætt í fast­eigna­verk­efni þar sem er verið að byggja atvinnu­hús­næði og virð­ist lítið lát á því. Fer­metra­verð í heims­borg­unum London, Hong Kong, Osaka og Chicago er nú orðið hærra en það var...
Skýring

Afdrifa­rík ákvörðun Rússa sem ætti ekki að koma neinum á óvart

Rússar hafa bætt Íslend­ingum á lista yfir þau lönd sem Rússum er nú óheim­ilt að flytja inn mat­væli frá. Kjarninn greindi frá því í morgun, fyrstur íslenskra fjöl­miðla, að Dmitri Medvedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, hefði stað­fest að fimm ríkjum hefði verið bætt á slíkan lista. Löndin fimm eru Albanía, Svart­fjalla­land, Liechtenstein, Úkraína og auð­vitað Ísland. Fyrir voru á list­anum öll aðild­ar­ríki...

Mest lesið undanfarið ár