Flokkur

Erlent

Erlent

Hefði farið öðruvísi ef fórnar­lömbin í París hefðu mátt vera vopnuð

Donald Trump, sem sækist eftir því að verða forseta­fram­bjóðandi Repúblikana­flokksins, sagði í gær að ef fórnar­lömb hryðjuverka­árásanna sem framin voru í París á föstudags­kvöld hefði verið leyft að bera vopn þá hefði niður­staða ástandsins orðið allt önnur. „Þegar þú horfir á París, strangasta byssu­löggjöf í heimi, París, engin var með byssur nema vondu karlarnir. Enginn var með byssur. Enginn. Þeir...
Erlent

Íslamska ríkið lýsir yfir ábyrgð á árásunum í París

Íslamska ríkið (ISIS) hefur sent frá sér yfir­lýsingu á frönsku þar sem samtökin lýsa yfir ábyrgð á árásunum í París í gærkvöldi. Þar segir að átta „bræður" með sprengju­belti og byssur hafi ráðist á skotmörk í hjarta Parísar í gær. Skot­mörkin hafi verið valin sérstak­lega í aðdrag­anda árásanna „Stade de France á meðan að lands­leikur gegn Þýska­landi stóð yfir sem...
Erlent

Hollande segir Íslamska ríkið ábyrgt fyrir árásunum

Francois Hollande, forseti Frakk­lands, segir Íslamska ríkið (ISIS) bera ábyrgð á árásunum í París í gær, þar sem að minnsta kosti 128 manns létu lífið og um 100 manns særðust alvarlega. Hann segir árásirnar, sem eru mann­skæðustu hryðjuverka­árásir í Evrópu síðan í Madríd 2004, sem huglausum og sem stríðs­aðgerð (e. act of war). Hollande segir að Frakkland muni verja sig...
Erlent

Danska ríkis­stjórnin boðar aðgerðir til að takmarka straum hælis­leitenda og flótta­fólks

Lars Løkke Rasmussen forsætis­ráðherra kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að fækka því flótta­fólki sem leitar til Danmerkur. Ráðherrann sagði að ástandið væri þannig að ekki yrði hjá því komist að grípa til aðgerða. „Ef við gerum það ekki missum við þetta allt úr böndunum,” sagði ráðherrann á fundi með frétta­mönnum. Fyrir kosningarnar sl. sumar var það eitt...

Mest lesið undanfarið ár