Flokkur

Erlent

Erlent

Að breyta svína­kótelettu í nauta­steik

Þegar pistla­skrifari var að alast upp var töfra­maðurinn og búktal­arinn Baldur Georgs, ásamt dúkkunni Konna, vinsæll skemmti­kraftur. Baldur töfraði kanínur úr hatti og sýndi ýmsa galdra svo áhorf­endur stóðu á öndinni. Aldrei hefði þó hvarflað að Baldri (né Konna) að breyta svína­kótelettu í nauta­steik en það vefst hinsvegar ekki fyrir víetnömskum matvöru­svindlurum. Nokkurra mánaða aðgerð Alþjóða­lögreglunnar Interpol og Evrópu­lögreglunnar Europol...
ErlentWintris-málið

Upplýsingar um eignir Pútín og meinta spillingu birtar á næstu dögum

Á næstu dögum verða birtar ýmsar upplýsingar um Vladimír Pútín, forseta Rússlands, vini hans og fjöl­skyldu í ýmsum fjöl­miðlum víða um heim. Upplýs­ing­arnar munu birtast í fjöl­miðlum í Þýska­landi, Banda­ríkjunum, Bretlandi, Frakk­landi, Sviss, Rússlandi og fleiri löndum. Þær snúast meðal annars um hversu mikils virði eignir Pútín eru, um tengsl hans við rússneska viðskipta­jöfra, spillingu og þátttöku hans í ýmis...
Erlent

Kakka­lakk­arnir í frum­skóginum

Þúsundir einstaklinga halda til í flóttamanna­búðum við Erma­sundið sem hefur verið lýst sem þeim verstu í heimi. Þrátt fyrir bágbornar aðstæður í „frum­skóginum“ eins og búðirnar eru kallaðar hefur íbúunum tekist að byggja upp samfélag sem þeir tilheyra. Þar til nýlega mátti finna ýmsa þjónustu í þorpinu, svo sem bókasöfn, menningar­miðstöðvar, veitinga­staði, moskur, kaffihús og kirkjur. Frönsk yfirvöld rifu hins vegar niður stóran hluta búðanna og óvissa ríkir um fram­haldið.

15 mín. lestur

Erlent

Er Bang & Olufsen á leiðinni til Asíu

Hið gamal­gróna og heims­þekkta danska fyrirtæki Bang & Olufsen hefur um margra ára skeið átt í umtals­verðum rekstrar­erfiðleikum. Margt hefur verið reynt til að rétta skútuna af en þær tilraunir hafa ekki skilað viðunandi árangri. B&O, sem var stofnað 1924 í Struer á Jótlandi, hefur alla tíð einbeitt sér að fram­leiðslu útvarps-og hljóm­flutnings­tækja, síðar bættust sjón­vörpin við. Áherslan var frá...
Fréttir

53 prósent Íslendinga myndu kjósa Hillary Clinton - 4-5 prósent Donald Trump

Tæplega 53 prósent Íslendinga myndu kjósa Hillary Clinton sem forseta Banda­ríkjanna, ef þeir væru á kjörskrá þar í landi. Á bilinu 4-5 prósent lands­manna myndu kjósa Donald Trump. Þetta kemur fram í nýrri skoðana­könnum sem Maskína hefur framkvæmt. Þar kemur einnig fram að 38 prósent Íslendinga myndu kjósa Bernie Sanders. Af þessu er ljóst að þeir sem sækjast eftir útnefningu...
Erlent

Bræður sem taldir eru hafa sprengt sig í loft upp í Brussel nafn­greindir

Belgíska sjónvarps­stöðin RTBF hefur greint frá því að tveir þeirra sem frömdu sjálfsmorðs­árás á flug­vellinum í Brussel í gær hafi verið bræðurnir Khalid og Ibrahim el-Bakraoui. Bræðurnir eru belgískir ríkis­borgarar og góðkunn­ingjar lögreglu þar í landi. Þeir voru enn fremur taldir hafa skýr tengsl við hryðju­verkin sem framin voru í París í nóvember í fyrra. Ef þeir sem frömdu voða­verkin...
Erlent

ISIS lýsir árásinni á hendur sér - myndir birtar

Hryðjuverka­samtökin Íslamska ríkið hafa lýst árásinni í Brussel á hendur sér. Að minnsta kosti 34 eru látnir og 200 særðir eftir hryðju­verkin í morgun og varar forsætis­ráðherra Belgíu, Charles Michel, við frekari árásum. RÚV greinir frá því að ríkis­lögreglu­stjóri hafi í samráði við lögreglu­stjórann á Suðurnesjum ákveðið að efla viðbúnað og viðveru vopnaðra lögreglu­manna á Kefla­víkur­flugvelli eftir hryðju­verkin. Sérsveit ríkis­lögreglu­stjóra...

Mest lesið undanfarið ár