Flokkur

Erlent

Skýring

Fátækum fjölgar í Danmörku

Danir eru fátækastir Norður­landaþjóða. Fátækum fjölgar ört og nú efna dönsk hjálpar­samtök í fyrsta sinn í sögunni til lands­söfnunar fyrir fátæka Dani. Í nýlegri skýrslu Evrópsku hagstofunnar, Eurostat, kom fram að Danir eru fátækastir Norður­landaþjóða og þar hefur fátækum fjölgað á undan­förum árum. Í nágranna­löndunum hefur fátækum hins vegar fækkað. Mörgum Dönum var brugðið þegar fjöl­miðlar greindu frá niður­stöðum skýrslunnar....
Erlent

Fer fram á endur­talningu í helstu baráttu­ríkjunum

Jill Stein, fram­bjóðandi Græningja í forseta­kosningunum í Banda­ríkjunum, lagði gær fram formlega beiðni um endur­talningu atkvæða í Wisconsin ríki. Það er eitt þeirra þriggja ríkja þar sem afar mjótt var á munum milli Donald Trump og Hillary Clinton, en eins og alkunna er þá sigraði Trump í kosningunum, þrátt fyrir að Hillary hafi fengið meira en tveimur milljónum fleiri atkvæði...
Erlent

Bretar þurfa að taka 122 milljarða punda aukalega að láni

Áhrifin af útgöngu Bretlands úr Evrópu­sambandinu munu verða til þess að stjórn­völd þurfa að taka 122 milljarða punda meira að láni á kjör­tímabilinu en til stóð. Þetta tilkynnti Philip Hammond, fjármála­ráðherra Bretlands, í dag. Guardian greinir frá. Hann sagði engu að síður að efnahagur Bretlands stæði sterkum fótum eftir þjóðar­atkvæða­greiðsluna um útgönguna úr ESB fyrir nákvæmlega fimm mánuðum síðan, en...
Erlent

Trump: Það „getur verið“ að mann­fólkið eigi sök á hlýnun jarðar

Nýkjörinn forseti Banda­ríkjanna, Donald J. Trump, segir í viðtali við New York Times að það „geti verið“ að mann­fólkið á jörðinni eigi sök á hlýnun jarðar og hann segist ætla að nálgast það með „opnun huga“ hvort Banda­ríkin ætli sér að draga sig út úr Parísar­samkomu­laginu þar sem markmiðið er að draga verulega úr mengun og vinna gegn hlýnun jarðar....

Mest lesið undanfarið ár