Bretar þurfa að taka 122 milljarða punda aukalega að láni

Áhrifin af útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu munu verða til þess að stjórn­völd þurfa að taka 122 millj­arða punda meira að láni á kjör­tíma­bil­inu en til stóð. Þetta til­kynnti Philip Hammond, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, í dag. Guardian greinir frá.

Hann sagði engu að síður að efna­hagur Bret­lands stæði sterkum fótum eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um útgöng­una úr ESB fyrir nákvæm­lega fimm mán­uðum síðan, en við­ur­kenndi að hægj­ast myndi tölu­vert á hag­vexti á næsta ári, vegna minni fjár­fest­inga og minni einka­neyslu vegna hækk­andi fram­færslu­kostn­aðar.

Hammond sagði að stjórn­völd þyrftu að ráð­ast í meiri vinnu til þess að útrýma fjár­laga­halla. Áður hafði for­veri hans í starfi, George Osborne, stefnt á að í lok þessa kjör­tíma­bils yrði afgangur á fjár­lögum. Þetta er ekki lengur mark­miðið hjá stjórn­völdum, sem telja þá að ekki verði hægt að ná þessum áfanga í rík­is­fjár­mál­unum fyrir árið 2020, þegar kjör­tíma­bil­inu lýkur. Á móti ætlar Hammond að stefna á að lán­tökur rík­is­ins verði undir tveimur pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu undir lok kjör­tíma­bil­is­ins og lækka nettó skuldir rík­is­ins á sama tíma.

Hag­vöxtur á þessu ári verður 2,1% sam­kvæmt nýrri spá, en ekki 2% eins og spáð hafði verið í mars. Hins vegar hefur spáin fyrir næsta ár verið lækkuð úr 2,2% hag­vexti niður í 1,4%. „Þetta er hæg­ara auð­vitað en við vildum óska, en engu að síður sam­bæri­legt við spá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins fyrir Þýska­land, og hærra en spá um vöxt í mörgum nágranna­ríkjum okkar í Evrópu, þar á meðal Frakk­landi og Ítalíu,“ sagði Hammond. Hægari hag­vöxtur myndi aftur á móti hafa áhrif á rík­is­fjár­mála­á­ætl­anir stjórn­valda og valda því að ríkið þurfi að taka miklu hærri lán en áður var áætlað.

Nú er gert ráð fyrir því að ríkið þurfi að taka 68,2 millj­arða punda að láni á þessu ári, en ekki 55,5 millj­arða eins og áður var talið. Á næstu fimm árum mun auk­inn lána­kostn­aður rík­is­ins nema 122 millj­örðum punda meira en gert var ráð fyrir í spánni áður en Bretland ákvað að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár